Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.07.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 12.07.2007, Qupperneq 2
 Hæstiréttur í Líbíu staðfesti í gær dauðadóma frá undirrétti yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og palest- ínskum lækni, sem sögð voru sek um að hafa smitað meira en 400 börn af alnæmisveirunni. Hæstiréttur hefur þó ekki endilega síðasta orðið í málinu, því dómsmálaráð Líbíu hefur vald til þess að ógilda eða staðfesta dóma, eða ákveða vægari refsingu. Dómsmálaráðherra landsins er í forsæti dómsmála- ráðsins. Utanríkisráðherra Líbíu segir að dómsmálaráðið muni koma saman á mánudag. Dauðadómar staðfestir Ragnheiður, græturðu þessar viðtökur? Íbúar við Grettis- götu hafa um árabil kvartað yfir frágangi bakhússins við Laugaveg 74 sem brann á þriðjudagskvöld. Kveikt var í gömlu þvottahúsi á sömu lóð fyrir nokkrum árum. Úti- gangsfólk hefur haldið til í húsun- um um árabil. Borgaryfirvöld hafa margítrekað óskað eftir því að eig- endur húsanna geri nauðsynlegar lagfæringar á húsunum eða þau verði ella rifin. Erfitt er fyrir yfir- völd að fylgja því eftir að eigendur gangi frá eignum sínum á þann hátt að ekki stafi hætta af. „Gólfið í húsinu var löngu hrunið og einnig þakið að hluta. Ef gengið var inn í húsið af tröppunum var tveggja til þriggja metra fall beint niður í grunninn. Það má segja að húsin á lóðinni hafi verið dauðagildrur,“ segir Kristbjörn Theódórsson, íbúi á Grettisgötu, en húsið sem brann stóð fast við heimili hans. Kristbjörn segir að útigangs- fólk hafi lengi dvalið í húsinu sem brann svo og húsinu að Laugavegi 74, sem var flutt burt fyrir skömmu. „Fólkið var búið að setja upp gard- ínur í því húsi sem var búið að rífa innan úr. Maður spyr sig af hverju yfirvöld hafa ekkert gert.“ Krist- björn segir að áhyggjur nágranna hafi aðallega verið augljós eldhætta og sú staðreynd að áður hafi verið kveikt í á þessum stað. Fleiri íbúar við Grettisgötu taka undir orð Krist- björns og sérstaklega hafi verið óhugnanlegt að sjá börn að leik við húsin. Bjarni Þór Jónsson, skrifstofu- stjóri Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að allt frá árinu 2002 hafi eigendur húsanna verið beðnir um skýringar á ástandi bygginganna og tímasettar tillögur vegna endurbóta á þeim eða óska um niðurrif. Þáverandi eigendur fengu frest til að gera endurbætur á húsunum vegna leyfis sem þá hafði fengist til að reisa ný mann- virki á reitnum. Þeir seldu fyrir- tækinu Laugavegur 74 ehf. húsin árið 2005. Guðbjörn Ásbjörnsson, bygging- arfræðingur hjá Skipulags- og byggingarsviði, staðfestir að íbúar hafi ítrekað kvartað yfir ástandi húsanna. „Það var búið að vara eig- endur húsanna við hættu á íkveikju.“ Annar eigenda Laugavegs 74 ehf. segir að borgaryfirvöld hafi aldrei haft samband við fyrirtækið vegna ástands húsanna eða varað við hættu á íkveikju. Hann segist engar upplýsingar hafa um að útigangs- fólk hafi haldið til í húsunum. Áður verið kveikt í bakhúsi við Laugaveg Íbúar við Grettisgötu hafa lengi kvartað yfir ástandi bakhússins við Laugaveg 74 sem brann á þriðjudagskvöld. Talið er að um íkveikju sé að ræða. Kveikt var í á sama stað fyrir nokkrum árum. Húsunum er öllum lýst sem dauðagildrum. Áreksturinn sem varð á Strandvegi í Grafarvogi í fyrrakvöld, þegar BMW-bifreið lenti aftan á Audi-jeppa, er enn í rannsókn. Áreksturinn var mjög harður en varðstjóri lögreglunnar í Reykjavík telur ólíklegt að um ásetning hafi verið að ræða. Meiðsli á fólki voru minnihátt- ar en ökumaður BMW-bifreiðar- innar er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglu á maðurinn langan sakaferil að baki. Hann hefur meðal annars verið dæmdur fyrir fíkniefnamisferli, nytjastuld, þjófnað og líkams- árás. Grunaður um fíkniefnaakstur „Það verður áfram svipað veður með norðaustlægri átt. Þó verður frekar þungbúið yfir Norður- og Austurlandi en bjartara yfir Suðurlandi um helgina,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann bætir við að í slíkri átt sé svalara á Norður- og Austurlandi og mun hitinn einungis fara í tíu stig yfir daginn um helgina á þeim slóðum. Þorsteinn spáir meiri hættu á skúrum á Suðvesturlandi en hefur verið síðustu daga. „Minnstu líkurnar á úrkomu um helgina eru á Vesturlandi.“ Hann segir að von sé á svipuðu veðri og hefur verið síðustu vikur en þó verður eitthvað þungbúnara. Kólnar norð- austanlands Allt að sex milljarða viðskipti ferðamanna munu eiga sér stað á næstu tveimur vikum samkvæmt Ferðamálastofu. Næstu tvær vikur verða þær annasömustu í íslenskri ferðaþjónustu frá upphafi. Fer þar í hönd toppur í komu erlendra gesta og mesti sumarleyfistími Íslendinga. „Mér sýnist að við séum að fá um fjörutíu þúsund erlenda gesti hingað á næstu tveimur vikum þessa háannatíma, auk mikils fjölda Íslendinga á ferð um landið,“ segir Magnús Oddsson ferðamálastjóri. Gert er ráð fyrir að fjórir af þessum sex millj- örðum verði hreinar gjaldeyris- tekjur. Búist við sex milljarða króna viðskiptum Bragi Steingríms- son, sjómaður á Þrasa VE, veiddi risalúðu í fyrradag. Mældist hún 198 kg og tveir og hálfur metri á lengd. Þetta er stærsta lúða sem vitað er til að hafi veiðst á handfæri við Íslandsstrendur. Bragi hafði verið nokkra tíma á sjó þegar hann sá lúðuna koma upp. „Ég hringdi í nokkra báta sem voru nálægt mér til að biðja um aðstoð ef þess þyrfti,“ sagði Bragi. Hann gerði sér þó ekki grein fyrir því þá hvað hún væri stór. Lúðan var þrjú korter að koma upp og svo tók tíu mínútur að ná henni inn. Þrír menn af tveim bátum komu Braga til hjálpar við að hífa lúðuna um borð. Gunnar Berg Viktorsson, atvinnumaður í handbolta, var einn af þeim. „Við komum þarna að og fórum um borð hjá Braga og létum bát- inn okkar reka í burtu,“ sagði Gunnar. „Ég fór upp á stýrishúsið á meðan þrír voru á dekkinu að reyna að toga lúðuna um borð. Ég var með haka og náði að kom- ast með hann undir lúðuna við sporðinn og náði að húkka hana um borð. Við vorum allir búnir á því eftir að við náðum að hífa hana inn. Bragi lá á dekkinu við hlið- ina á lúðunni í korter áður en hann gat staðið á fætur.“ Fjóra þurfti til að landa risalúðunni Öllu starfsfólki rækjuvinnslunnar Ramma á Siglu- firði verður sagt upp og vinnslu hætt í október. Þetta tilkynnti fyrirtækið í gær. Þrjátíu og einn starfsmaður starfar hjá fyrirtæk- inu núna, flestir í fullu starfi. „Þetta er mjög slæmt fyrir bæjar- félagið og ekki síður fyrir fólkið sem missir vinnuna,“ segir Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð. „Við munum gera allt til að tryggja fólkinu störf í byggðarlaginu og munum við fyrsta tækifæri setjast niður með mönnum frá Ramma og verkalýðsforystunni og fara yfir málin,“ segir hann. Þórir segist einnig munu óska eftir fundi með fulltrúum ríkis- stjórnarinnar og ræða við þá um flutning starfa af höfuðborgar- svæðinu til Fjallabyggðar. Í tilkynningu Ramma kemur fram að fyrirtækið hafi, á síðast- liðnum tveimur og hálfu ári, tapað ríflega 300 milljónum fyrir fjár- magnskostnað og afskriftir. Hátt gengi íslensku krónunnar, hrun rækjuveiða og aukin samkeppni á helstu mörkuðum eru sagðar aðal- ástæður þessa mikla tapreksturs. Einnig segir að lausatök við stjórn efnahagsmála samhliða stóriðju- uppbyggingu og hávaxtastefnu séu útflutningsatvinnuvegum fjandsamleg. Mjög slæmt fyrir bæjarfélagið Gólfið í húsinu var löngu hrunið og einnig þakið að hluta. Ef gengið var inn í húsið af tröppunum var tveggja til þriggja metra fall beint niður í grunninn. Það má segja að húsin á lóðinni hafi verið dauðagildrur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.