Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 64
Fimmta kvikmyndin um
Harry Potter var frumsýnd
í gærkvöldi. Þetta þýðir að
einungis tvær myndir eru
eftir um galdrastrákinn
að þessu sinni þótt heims-
byggðin eigi eflaust eftir
að sjá eina eða tvær endur-
gerðir eftir nokkra áratugi
eða aldir enda hefur það
sýnt sig að allt sem Harry
Potter snertir verður að
gulli.
Ævintýrið um Harry Potter er eitt
mesta æði sem heimurinn hefur
alið af sér og kemst klárlega í hóp
með Bítlunum og Elvis. Sérhvert
mannsbarn þekkir til stráksins
með gleraugun og jafnvel hefur
Potter gerst svo frægur að bæk-
urnar um hann hafa verið brennd-
ar á báli af ofstækisfullum kristn-
um mönnum. Rétt eins og gert var
við rokkarana á árum áður.
Öskubuskusaga J.K. Rowling er
flestum að góðu kunn. Atvinnu-
lausa þernan sem skrifaði sögu af
galdrastrák á munnþurrkur. Nú
lifir Rowling hins vegar í
vellystingum, svo vægt sé til orða
tekið, enda veltir Potter-fyrirbærið
milljörðum á hverju ári.
Sé eingöngu tekið mið af bókunum
hafa sögurnar sex um Harry
Potter selst í yfir 325 milljónum
eintaka. Slíkt myndi samsvara því
að hver einasti Bandaríkjamaður
ætti eina bók og eru þá ólöglegir
innflytjendur teknir með í þann
reikning. Hvað næstu bók varðar
hefur Harry Potter and the
Deathly Hollows þegar slegið met
í forsölu því yfir hálf milljón
eintaka hefur verið fyrirfram
pöntuð. Bækurnar hafa nú verið
þýddar á yfir 63 tungumál og ekki
sér fyrir endann á vinsældum
galdrastráksins. Jafnvel má halda
því fram að Harry Potter muni
leiða af sér betri ensku í
Frakklandi en þar gerðust þau
undur og stórmerki fyrir tveimur
árum að enska útgáfan af Harry
Potter og Phoenix-reglunni komst
á toppinn, fyrst enskra bóka.
Slíkur er áhrifamáttur Harry
Potter að á meðan J.K Rowling
nýtur lífsins lystisemda eru
eigendur Bloomsbury-útgáfunnar
ekki alveg eins bjartsýnir á fram-
haldið. Potter hefur haldið þeim á
lífi og floti í ótryggum heimi bóka-
útgáfunnar en eftir að Rowling
lýsti því yfir að hún hygðist binda
enda á ævintýri Potter hríðféllu
hlutabréfin í Bloomsbury og leita
forsvarsmenn fyrirtækisins nú
logandi ljósi að arftaka Potter-
maníunnar.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær hafa aðdáendur bókanna nú
biðlað til J.K. Rowling um að
hætta við að hætta. „Viltu vera
svo væn að reisa Harry Potter
upp frá dauðum? Það er ef hann
deyr í bókinni,“ stendur á heima-
síðu netbókaverslunarinnar
Waterstone.
En þótt bækurnar séu upphafið
að þessu mikla æði – og þeir eru
ófáir sem kjósa bara að lesa bæk-
urnar og fúlsa við kvikmyndaút-
gáfunum – þá eru það fyrst og
fremst kvikmyndirnar fimm sem
hafa gert Rowling ríkari en sjálfa
Elísabetu drottningu. Af myndun-
um hafa sprottið tölvuleikir á
Playstation og PC og samkvæmt
vefsíðunni Wikipedia hafa yfir
fimm hundruð vörutegundir verið
markaðssettar í tengslum við
Potter-ævintýrið, þar á meðal
Harry Potter-iPod. Eins og gefur
að skilja hefur þetta gert Rowling
að margmilljóner en áætlað er að
Harry Potter-vörumerkið sé
jafnvirði fjögurra milljarða
Bandaríkjadala, eða 242 milljarða
íslenskra króna.
Harry Potter er því ekki bara
einhver galdrastrákur heldur er
hann jafnstór og kók eða
McDonald‘s. Því miður fyrir þessi
fyrirtæki gerist Potter í óráðnu
landi þar sem engin gúffar slíku í
sig og er Potter því einráður hvar
sem hann ber niður.
Kvikmyndaframleiðandinn JJ
Abrams hefur haldið bandarísk-
um stórmyndaaðdáendum í helj-
argreipum eftir frumsýningu
Transformers. Á undan myndinni
hefur mátt sjá myndbrot úr kvik-
mynd sem gekk í fyrstu undir
vinnuheitinu Cloverfield án þess
að það sé upplýst einhvern tímann
á sýningarferlinum. Á imdb.com
hefur verið greint frá því að
myndin verði byggð upp á
myndbrotum New York–búa sem
verða fyrir árás einhvers konar
skrímsla. Málið er allt hið
dularfyllsta og Abrams hefur
hingað til neitað að tjá sig um
málið, en fengið fína auglýsingu
enda sló Transformers rækilega í
gegn um síðastliðna helgi. Og
áhuginn hefur verið slíkur á þessu
myndbroti, það þykir reyndar æði
kræsilegt, að væntanlega verður
þessarar ónefndu myndar beðið
með mikilli óþreyju.
Empire Online tók málið upp á
sína arma og greindi frá því að
framleiðandinn stórtæki hefði
opnað tvær heimasíður, aðra undir
heitinu ethanhaaswasright.com
og hina undir ethanhaaswaswrong.
com. Abrams hafði síðan samband
við vefsíðuna og útskýrði þar að
þessar heimasíður ættu ekkert
skylt við myndina sem nú hafði
fengið nafnið 1.18.08 en vildi að
öðru leyti ekkert tjá sig um málið.
Aðdáendur Abrams hefðu hins
vegar ekki átt að láta þessa hegðun
hans koma sér á óvart því
framleiðandinn er eins og mörgum
ætti að vera kunnugt skapari
sjónvarpsþáttanna Lost eða
Lífsháska þar sem ekkert er eins
og það sýnist og söguþráðurinn
flóknari en elsta sápuópera.
Dularfullur Abrams
Steven Spielberg og Electronic
Arts munu að öllum líkindum
kynna þrjá nýja tölvuleiki á E3-
tölvuleikjahátíðinni sem fram
fer nú um helgina. Mikil leynd
hefur hvílt yfir þessu verkefni
en aðdáendur Spielbergs bíða
spenntir eftir því að sjá hvað
gullkálfurinn hefur að geyma í
farteski sínu.
Samkvæmt BBC-fréttavefn-
um gengur fyrsti leikurinn undir
dulnefninu LMNO og er sagður
vera samtíma-hasarleikur. Hefur
honum verið líkt við samblöndu
af ET og Hitchcock-myndinni
North by Northwest. Seinni
leikurinn er eitthvað í rólegri
kantinum og ku vera
púsluspilsleikur, eitthvað sem
Spielberg hannaði með alla
fjölskylduna í huga.
Engar upplýsingar hafa borist
um þriðja leikinn, sem á að vera
lokatrompið í þessum þríleik
Spielbergs á leikjamarkaðinum.
Spielberg leikur sér
Augu alheimsins munu beinast að bænum Springfield í
Vermont 21. júlí næstkomandi en þá verður fyrsta
Simpsons-kvikmynd í fullri lengd forsýnd. Þetta var
ákveðið í atkvæðagreiðslu á netinu nýverið en alls
komu þrettán bæir sem allir heita þessu nafni í
Bandaríkjunum til greina. Hörð barátta stóð um fyrsta
sætið en Springfield í Vermont bar sigur úr býtum
eftir spennandi kapphlaup við nafna sína í Oregon og
Massachusetts. Matt Groening, skapari gulu
fjölskyldunnar, gaf heimabæ hennar þetta nafn því
honum fannst það vera mjög algengt á landakortinu.
Allir fjórtán bæirnir eða borgirnar sendu inn
myndbönd í keppnina, sem var haldin á vegum USA
Today. Í einni útgáfunni mátti sjá höfundinn Groening
hlusta á vitnisburð íbúa um að þeirra Springfield væri
fyrirmyndin, auk þess sem þingmaðurinn Ted
Kennedy talaði máli Springfield í Massachusetts. Það
þótti nokkuð kyndugt enda hefur Kennedy ósjaldan
orðið fyrir barðinu á hispurslausum húmor þáttanna.
Íbúarnir í Springfield í Vermont voru himinlifandi
yfir úrslitunum enda ekki á hverjum degi sem svona
lítill bær kemst í heimspressuna. Þar búa rétt liðlega
níu þúsund manns og lét bæjarstjórnarfulltrúinn
Patricia Chaffe hafa eftir sér að þetta væri einn
stærsti sigur bæjarfélagsins. „Við
öttum kappi, líkt og
Davíð gegn Golíat,
og það gerir
sigurinn enn
sætari.“
Springfield er í Vermont
Hryllingsmyndir eru allar jafn slæmar