Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 60
Nýlega náði ég þeim
merka áfanga að verða
þrítugur. Fyrir utan að
vera statt og stöðugt
minntur á að vera kominn
á fertugsaldurinn átti ég
alveg frábæran afmælisdag
og get ekki sagt að ég hafi fundið
fyrir neinni meiriháttar breytingu
þann daginn eða dagana þar á eftir.
Tilhugsunin um þetta óbreytta
ástand var mér í fyrstu uppspretta
ómældrar gleði. Ég sveif um á
bleiku skýi og horfði á heiminn með
sömu augum og hvítvoðungur, sem
er að uppgötva allt í fyrsta sinn. „Vá
hvað lífið er dásamlegt með öllum
sínum fögru fyrirheitum,“ hugsaði
ég þar sem ég fylgdist með flugum í
trylltum mökunardansi.
Smám saman fór ég þó að efast
um að ástandið væri eins sniðugt
og mér þótti í fyrstu. Hefði ekki
verið eðlilegra að fara úr hárum
eða finna fyrir vaxtarverkjum? Þótt
ekki nema væri fyrir smá seiðingi í
tánni, á meðan afmælið gekk yfir.
Að lokum komst ég að þeirri
niðurstöðu að fyrst allsherjar
líkamsbreytinga hefði ekki orðið vart
hlyti hreinlega að vera um einhverja
skelfilega stöðnun að ræða.
Þegar þessi hugleiðing náði
hámarki var ég staddur heima og
hentist því í dauðans ofboði í næsta
albúm, til að sjá hvort þar leyndist
ekki Dorian Gray-kennd mynd af
mér. Mér til sárra vonbrigða var
enga slíka að finna, heldur aragrúi
mynda frá ýmsum tímabilum þar
sem ég virtist ósköp svipaður útlits.
Þar sem ég stóð með albúmið,
þess fullviss að ég þjáðist af ein-
hverjum dularfullum sjúkdómi,
rann það skyndilega upp fyrir mér
að í höndunum héldi ég á ótvíræðu
sönnunargagni um að aldurinn hefði
færst yfir. Hver ætti annars albúm
með myndum af sjálfum sér nema
vera kominn á vissan aldur?
Vísbendingarnar æptu skyndi-
lega á mig úr öllum áttum: Koff-
ínlausa sojalatteið, afalegu inni-
skórnir, rafmagnsrúmið með inn-
byggða nuddtækinu og ekki síst
slendertone-magavöðvatækið. Ég
lyppaðist niður í rúmið alsæll með
að vera ekki haldinn dularfullum
sjúkdómi og enn ánægðari með að
vera orðinn pínku gamall.
– ódýrari valkostur
Vantar
þig
auka-
pening?
Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu
fólki til að bera út blöð milli 6 og 7 á
morgnana. Um er að ræða holla og hressandi
útiveru, annars vegar á virkum dögum og hins
vegar um helgar.
Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu
þig og fáðu borgað fyrir það.
Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild
Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt
að sækja um á www.posthusid.is
Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is
Pósthúsið er ungt og öflugt
dreifingarfyrirtæki á sviði
blaða- og vörudreifingar.
Hjá Pósthúsinu starfa um
sjöhundruð manns að
uppbyggingu á fjölbreyttum
og skemmtilegum vettvangi.
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA