Fréttablaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 74
„Þetta er farið að verða
okkur allt of dýrkeypt,“ segir
Ólafur Þórðarson, þjálfari Fram,
en slakar vítaspyrnur leikmanna
hans í vítaspyrnukeppninni gegn
Haukum í fyrradag varð þess
valdandi að liðið er fallið úr keppni
í VISA-bikarnum. Vítaspyrnunýt-
ing Fram það sem af er leiktíð
hefur verið með allra versta móti
og hafa aðeins fjórar af 10 spyrn-
um nýst. Í Landsbankadeildinni
hefur liðið aðeins náð að skora eitt
mark úr fjórum vítum og í bikar-
keppninni í gær klúðruðu leik-
menn þremur spyrnum í víta-
keppninni.
„Það er engin einföld lausn til á
þessu. Fyrst og fremst hafa menn
ekki sjálfstraust til að taka víta-
spyrnur. Síðan verður ákveðin
keðjuverkun þegar spyrnurnar
halda áfram að klúðrast og þá
verður sjálfstraustið enn minna,“
segir Ólafur. Spurður hvernig
hann hyggist ná sínum mönnum
úr þessum vítahring segist Ólafur
ætla að láta þá taka fleiri víta-
spyrnur á æfingum. „Eins og í svo
mörgu öðru er það æfingin sem
skapar meistarann.“
Framarar voru langt frá sínu
besta gegn Haukum í gær og
máttu þakka fyrir að komast í
vítaspyrnukeppni miðað við gang
leiksins. Ólafur segir alveg ljóst
að leikmenn sínir hafi vanmetið
andstæðinginn.
„Hugarfarið var ekki til staðar
hjá leikmönnum og því fór sem
fór. Menn hafa jafnvel haldið að
þeir væru betri en þeir raunveru-
lega eru,“ segir Ólafur, en hann
húðskammaði sína menn í klefan-
um eftir leik svo eftir var tekið.
„Ég held að allir stjórnendur yrðu
ósáttir ef framlag þeirra sem
vinna fyrir hann er óviðunandi.
Þannig var það hjá mínu liði í þess-
um leik.“
Menn hafa ekki sjálfstraustið
VISA-bikar karla:
Ítalskir fjölmiðlar
fullyrða að Silvio Berlusconi,
aðaleigandi AC Milan, sé að
undirbúa 89 milljóna punda tilboð
í Ronaldinho hjá Barcelona. Það
gerir tæplega 11 milljarða
íslenskra króna, en það ku vera
það verð sem þarf til að losa
Brasilíumanninn frá Barcelona,
samkvæmt samningi hans við
félagið.
Berlusconi hefur lengi verið á
höttunum á eftir Ronaldinho en
ekki verið tilbúinn að borga
uppsett verð. Nú mun fyrrver-
andi forsetinn hins vegar vera
búinn að gefa upp möguleikann á
að fá Andriy Shevchenko aftur til
liðsins og því er hann reiðubúinn
að setja þær þrjátíu milljónir
punda sem hann hafði frátekið
fyrir Shevchenko í kaupverðið á
Ronaldinho.
Undirbýr risaboð
í Ronaldinho
Youssi Benayoun og
Ryan Babel eru við það að skrifa
undir samninga við Liverpool.
Babel kemur frá Ajax en hann er
talinn vera eitt mesta efni
Hollendinga og var hann meðal
annars ein helsta stjarna HM U21
liða nýverið. Hann er talinn kosta
um tíu milljónir punda.
Benayoun kemur frá West Ham
fyrir um fjórar milljónir punda.
„Hann er svipaður leikmaður og
Luis Garcia,“ sagði Rafael
Benítez um Ísraelann. „Luis
skorar kannski fleiri mörk en
Benayoun leggur fleiri upp. Hann
er mjög teknískur og snjall
leikmaður sem gefur okkur mikla
möguleika þar sem hann er svo
fjölhæfur.“
Benayoun og
Babel á Anfield
Úrvalsdeildarlið Fylkis
vann öruggan 4-1 sigur á Þórsur-
um fyrir norðan í gær og eru þar
með komnir í átta liða úrslit
bikarsins. Heimamenn í Þór
sýndu gestunum enga virðingu í
fyrri hálfleik og vörðust þá vel en
mark Vals Fannars Gíslasonar
rétt undir lok hálfleiksins virtist
brjóta niður sjálfstraustið.
Í síðari hálfleik tóku gestirnir
öll völd og bættu við tveimur
mörkum með skömmu millibili.
Ingi Hrannar Heimisson minnk-
aði muninn stundarfjórðungi
fyrir leikslok í 3-1 en Christian
Christiansen innsiglaði öruggan
sigur Fylkis skömmu fyrir
leikslok.
Sannfærandi
sigur Fylkis
Bikarmeistarar Keflavík-
ur hófu titilvörn sína með litlum
glans í gær þegar liðið lagði Þrótt,
0-1, á Valbjarnarvelli. Keflavíkur-
liðið mætti illa stemmt til leiks og
skoraði nánast úr sínu eina færi í
leiknum. Góður varnarleikur
tryggði því síðan sæti í átta liða
úrslitum VISA-bikarsins.
Kristján Guðmundsson hafði
gert nokkrar breytingar á liði sínu
og gaf minni spámönnum á borð
við Sigurbjörn Hafþórsson og Þor-
stein Georgsson tækifæri og svo
fékk Bjarki Guðmundsson að
standa á milli stanganna.
Heimamenn í Þrótti byrjuðu
leikinn í kartöflugarðinum sem
kallast Valbjarnarvöllur betur, en
Keflavík varðist.
Keflvíkingar höfðu í raun ekki
gert nokkurn skapaðan hlut í
leiknum þegar Simun Samuelsen
geystist upp vinstri vænginn og
skildi Jens Elvar Sævarsson eftir í
rykinu, hann lagði boltann fyrir
markið þar sem Sigurbjörn Haf-
þórsson ýtti honum auðveldlega
yfir línuna.
1-0 í hálfleik og Keflavík nýtti
eina færi sitt í hálfleiknum. Kefl-
víkingar tóku þann pól í hæðina í
síðari hálfleik að bakka og leyfa
Þrótturum að koma. Þeir spöruðu
bensínið og virtust ætla að komast
frá leiknum án þess að eyða of
mikilli orku.
Vörnin var gríðarsterk hjá þeim
og Þrótturum gekk nákvæmlega
ekkert að brjóta hana niður, sama
hvað þeir reyndu. Það vantaði allt
hugmyndaflug, kraft, áræðni og
hreinlega getu hjá Þrótturum til
að brjóta niður varnarmúr gest-
anna. Hjörtur Hjartarson var lús-
iðinn, sýndi lipur tilþrif og komst
nokkuð áleiðis en vantaði sárlega
stuðning félaga sinna. Hann var
svekktur í leikslok.
„Við erum klárlega betri allan
leikinn og það er skelfilegt að fá
ekki opnari færi,“ sagði Hjörtur
hundfúll. „Þetta er mjög svekkj-
andi miðað við hversu slakir Kefl-
víkingarnir voru en þeir voru nán-
ast á hælunum allan leikinn.“
Kristjáni Guðmundssyni,
þjálfara Keflavíkur, var létt í
leikslok en pressa Þróttara tók á
taugarnar undir lokin.
„Ég get viðurkennt að við vorum
ekki vel stemmdir hér í dag,“ sagði
Kristján en eftirmál leiksins á
Akranesi virtist sitja í Keflvíking-
um. „Það hefur verið erfitt að
vinna sig út úr síðasta leik og allt í
kringum þann leik hefur haft
áhrif. Leikmenn eru gríðarlega
svekktir út í umræðuna. Það er
mikill léttir að vera búinn með
þennan leik.“
Keflavík og ÍA eru bæði í pottin-
um fyrir næsta leik. Hvernig
legðist það í Kristján að fara aftur
upp á Skaga í átta liða úrslitunum?
„Ef það er drátturinn þá er það
bara þannig. Við sjáum hvað
setur.”
Tilþrifalítill sigur bikarmeistara Keflavíkur
Breiðablik er komið í
átta liða úrslit bikarsins í fyrsta
sinn í fimm ár eftir 3-1 sigur á
nágrönnum sínum úr HK í dramat-
ískum bikarslag á Kópavogs-
vellinum í gær. HK hefur verið
bikarliðið í Kópavogi undanfarin
ár og það leit út fyrir að engin
breyting yrði á því í gær en
jöfnunarmark sautján ára
varamanns Blika, Kristins
Steindórssonar, í uppbótartíma
endurvakti bikardrauma Blika.
Það voru síðan varamennirnir
Gunnar Örn Jónsson og Prince
Rajcomar sem tryggðu Blikum
sigurinn með mörkum í lok beggja
hluta framlengingarinnar.
Stangarskot, sláarskot og
frábær markvarsla Gunnleifs
Gunnleifssonar voru hápunktarnir
fram eftir leik og það stefndi í að
Blikar yrðu enn á ný sjálfum sér
verstir því ekkert gekk uppi við
markið fyrr en sautján ára
varamaður var réttur maður á
réttum stað í uppbótartíma.
Blikar voru með góð tök á vell-
inum og sköpuðu sér nánast öll
færi leiksins en eins og oft áður
fóru leikmenn liðsins oft illa með
fyrirtaksfæri.
Fyrsta mark leiksins kom eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Saklaus
fyrirgjöf Calums Þórs Bett kom
inn á teiginn en í stað þess að leika
boltanum lét Árni Kristinn
Gunnarsson boltann fara og
ætlaðist til að Casper Jacobsen
tæki hann. Kristján Ari Halldórsson
nýtti sér þetta, tók boltann og
skoraði í tómt markið. Árni Kristinn
húðskammaði félaga sína eftir
markið en það var erfitt að finna
einhvern annan sökudólg enda gaf
hann hreinlega þetta mark.
Gunnleifur Gunnleifsson varði
nokkrum sinnum frábærlega frá
Blikum í leiknum. Kristján Óli
Sigurðsson komst einn gegn
honum í lok fyrri hálfleiks en
Gunnleifur varði vel líkt og frá
Nenad Zivanovic í upphafi seinni
hálfleiks eftir að hornspyrna Arn-
ars Grétarssonar hafði ratað alla
leið inn á markteiginn.
Varamaðurinn Kristinn Stein-
dórsson virtist hafa farið með síð-
ustu von Blika þegar hann skallaði
boltann í slána af örstuttu færi
mínútu fyrir leikslok. Kristinn
fékk hins vegar annan möguleika
í uppbótartíma og nýtti hann við
mikinn fögnuð Blika, sem höfðu
hvað eftir annað þurft að svekkja
sig yfir klúðri sinna manna uppi
við markið. Markið er hægt að
skrifa á sofandahátt í vörninni
sem leyfði aukaspyrnu Arnars
Grétarssonar að rata alla leið inn
á markteiginn.
Nauðvörn HK-inga hélt áfram í
framlengingunni og það var ljóst
að þeir ætluðu að reyna að halda
út í vítaspyrnukeppni úr því sem
komið var. Blikar voru hins vegar
ekki á því og Gunnar Örn Jónsson
skoraði laglegt mark á 102. mín-
útu eftir laglega fyrirgjöf Arnórs
Aðalsteinssonar.
Vonir HK-inga um að jafna leik-
inn runnu endanlega út í sandinn
þegar Hólmar Örn Eyjólfsson
fékk sitt annað gula spjald þegar
átta mínútur voru eftir af
framlengingunni. Blikar nýttu
sér það og þriðji varamaðurinn,
Prince Rajcomar, innsiglaði
sigurinn á 116. mínútu.
Ekki er hægt að segja annað en
að þessi úrslit hafi verið sanngjörn
þó að Blikar hafi bjargað sér með
dramatískum hætti. Þeir voru
betri, sköpuðu sér fleiri færi og
eru bikarliðið í bænum að minnsta
kosti þetta sumarið.
„Þetta var erfið fæðing hjá
okkur en þetta hófst að lokum.
Það hefur gengið skelfilega hjá
okkur fyrir framan markið og ég
hélt að þetta yrði enn einn
leikurinn þar sem við höfðum
yfirhöndina nánast allan tímann
en við kláruðum ekki dæmið,“
sagði Arnar Grétarsson, fyrirliði
Breiðabliks, eftir leik.
Gunnar Guðmundsson, þjálfari
HK, var sáttur við sína menn en
að vonum svekktur með niður-
stöðuna. „Það vantaði herslu-
muninn hjá okkur, það vantaði
nokkrar sekúndur hjá okkur en
svona er þetta bara. Það sem
stendur upp úr hjá mér er frábær
leikur minna manna. Þeir gerðu
það sem við lögðum upp með en
óneitanlega var þetta mjög
svekkjandi.“
Varamennirnir Kristinn Steindórsson, Gunnar Örn Jónsson og Prince Rajcomar skoruðu mörk í uppbótar-
tíma og framlengingu og tryggðu Breiðabliki 3-1 sigur á HK og sæti í átta liða úrslitum bikarsins.