Fréttablaðið - 12.07.2007, Page 34
12. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið sumarið 2007
Aðsókn erlendra ferðamanna
hefur aldrei verið meiri í kajak-
ferðir á Stokkseyri en nú í ár.
„Aðsóknin hefur aukist gríðarlega
á milli ára og nú koma hingað stór-
ir hópar að utan. Ég á meðal ann-
ars von á þrjú hundruð Þjóðverj-
um,“ segir Reynir Már Sigurvins-
son glaður í bragði, en hann tók við
rekstri Kajakferða á Stokkseyri í
fyrravor, þegar fyrirtækið hafði
verið starfrækt í ellefu ár.
Að sögn Reynis er svoköll-
uð Challenge-ferð, sú sem nýtur
mestra vinsælda á meðal er-
lendra ferðamanna, það er að segja
klukkustundar löng ferð á vatninu
með leiðsögn. „Hún er líka vinsæl
sem óvissu- og fyrirtækjaferð eða
í gæsa- og steggjanir,“ bætir hann
við. „Síðan er til tveggja tíma út-
gáfa af ferðinni, sem kallast Power
Challenge, og er Löngudæld þá farin
á enda, þar sem Hraunsá rennur til
sjávar og síðan snúið við.“
Einnig er boðið upp tvær aðrar
ferðir, Róbinson Krúsó og Sjóferð-
ina. „Í fyrrnefndu ferðinni gefst
fólki tækifæri til að rata um fenja-
svæði, sem einkennist af þröngum
skurðum og háu grasi með aðstoð
korts,“ bendir hann á. „Er ferðin
vinsæl á meðal einstaklinga og fjöl-
skyldufólks.
Í þeirri síðarnefndu er siglt vest-
ur með landinu og inn á selasvæði,
þar sem sést til sela í um það bil 85
prósentum tilvika. Þetta eru frið-
sæl dýr, sem eru jafn forvitin um
okkur mannfólkið og við um þau.
Sum hætta sér meira að segja alveg
ótrúlega nálægt manni.“
Reynir bendir enn fremur á að
kajakbátarnir njóti sérstöðu, þar
sem um „sit-on-top“ kajaka sé að
ræða. En í stað þess að setjast ofan
í kajakinn eins og algengt er, er sest
ofan á hann, sem á að auka öryggi.
Auk þess reyni þeir ekki eins mikið
á kunnáttu ræðara, sem geti fyrir
vikið skellt sér beint út í vatnið.
„Svo gefst öllum kostur á að fara
í sund og pott að hverri ferð lok-
inni,“ segir Reynir. „Enda veitir
víst ekki af smá afslöppun eftir alla
þessa útiveru.“ roald@frettabladid.isa
Boðið er upp á regngalla, stígvél og
annan búnað.
Stokkið í sjóinn við Stokkseyri.
Þjóðverjar flykkjast í fenin
Aðsókn erlendra ferðamanna hefur aukist í kajakferðir á Stokkseyri.
Reynir Már Sigurvinsson sést hér í kajak, en hann rekur Kajakferðir á Stokkseyri.
Fjöllistahópurinn Morrinn
setur svip á Ísafjörð á sumr-
in. Hann býður meðal annars
farþega skemmtiferðaskip-
anna velkomna með þjóð-
legum dansi og söng.
„Morrinn er skipaður krökk-
um úr efstu bekkjum grunn-
skólans og hressir verulega upp
á bæjarlífið. „Eitt aðalverk-
efnið er að taka skemmtilega
á móti skemmtiferðaskipum.
Það er alltaf að vinda upp á sig
enda 26 skip sem koma hingað í
sumar og fátt er betra en æskan
til að kynna bæinn, hún er efni-
leg, fjölhæf og skapandi.“ Þetta
segir Elvar Logi Hannesson,
stjórnandi Kómedíuleikhússins,
sem tók að sér Morrann þetta
sumarið og réði leikstjóra en
bærinn greiðir rekstur og hús-
næði. Elvar Logi lýsir gestamót-
tökunni svo:
„Nokkrir Morrar eru stadd-
ir á bryggjunni þegar skipin
leggjast að, taka á móti gestun-
um með léttu sprelli og bjóða þá
velkomna og einnig bjóða þeir
upp á þjóðlega dagskrá í Neðsta
kaupstað þar sem safnið okkar
er. Strákarnir fara í föt sem
voru í tísku fyrir hundrað árum
eða svo og stúlkurnar eru ýmist
í þjóðbúningum eða lopapeysum
og pilsum. Þar stíga ungmennin
dans og fara í leiki eins og Ein ég
sit og sauma og Í grænni lautu.
Svo taka þau nokkur þjóðleg lög.
Þetta hefur verið vinsælt mynd-
efni hjá ferðalöngunum. Þeir
smella stanslaust af.“
Elvar Logi segir Morrann
deild í vinnuskólanum. Hann
hafi verið stofnaður að frum-
kvæði ungra Ísfirðinga árið
1999. „Þetta er full vinna frá 8
til 14 og vinnutíminn getur verið
breytilegur því skemmtiferða-
skipin eru um helgar og á öllum
tímum,“ segir hann og lýsir fleiri
verkefnum. „Um daginn heim-
sótti Morrinn alla leikskóla bæj-
arins og sýndi leikskólaleikrit og
á föstudögum í júlí flytur hann
Strikið hingað á Ísafjörð. Okkar
Strik er Silfurtorgið sem gefur
mikla möguleika fyrir uppi-
stand og sprell. Þar eru lista-
menn með trönur og mála mynd-
ir af vegfarendum eftir pöntun-
um, tónlistarmenn með gítara og
töskurnar fyrir framan sig og
handverksfólk sem selur sínar
afurðir. Þetta hefur gengið mjög
vel.“
Hressir upp
á bæjarlífið
Morrinn er fjöllistahópur úr efstu bekkjum grunnskólans. MYND/BB