Fréttablaðið - 12.07.2007, Side 36
12. JÚLÍ 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið sumarið 2007
Fjölskrúðugt dýralíf ríkir að
Klausturseli í Efri-Jökuldal.
Á bænum Klausturseli í Efri-Jök-
uldal búa hjónin Aðalsteinn Jóns-
son og Ólafía Sigmarsdóttir. Þar
eru þau með sauðfjárbúskap auk
þess sem Ólafía rekur gallerí með
vörum úr hreindýraleðri og við
bæinn má sjá ýmis dýr á vappi
sem sjást ekki við hvern sveita-
bæ.
„Við erum með dálítið af
dýrum,“ segir Aðalsteinn og bætir
við: „Til dæmis hreindýrsbelju
með kálfi og þrjú önnur hrein-
dýr. Svo erum við með tófuhvolpa,
endur, gæsir, hænur, kanínur og
fleira.“
Aðalsteinn segir hreindýr-
in uppalin í Klausturseli og séu
í girðingu svo hægt sé að skoða
þau. „Við byrjuðum með hreindýr-
in árið 1996 og svo hefur þetta allt
saman undið upp á sig síðan.“
Klaustursel er rúmlega sjö-
tíu kílómetrum frá Egilsstöðum
í átt að Akureyri og er Klaustur-
sel þrettán kílómetrum frá hring-
vegi eitt. „Það kemur heilmikið af
fólki hingað til okkar og þá mest
fjölskyldufólk og fólk sem hefur
áhuga fyrir handverki,“ segir Að-
alsteinn og bætir því við að Ólafía
hanni og saumi meðal annars hatta,
töskur, púða og fleiri smærri hluti
úr hreindýraleðri sem hún selur í
galleríinu.
sigridurh@frettabladid.is
Búskapur og handverk í Klausturseli
Svanurinn lætur sig að sjálfsögðu ekki
vanta í skemmtilegu dýraflóruna í
Klausturseli.
Þessar töskur eru úr hreindýraleðri og
má finna í galleríinu í Klausturseli.
Fallegir púðar úr hreindýraleðri úr
smiðju Ólafíu. Haninn í Klausturseli í góðum gír.
Hreindýrskálfurinn á bænum slakar á í sólskininu í Jökuldalnum.
Hjónin Aðalsteinn og Ólafía í Klausturseli eru með skemmtilegan sveitabæ sem
gaman er að skoða enda má þar finna hin ýmsu dýr auk þess sem Ólafía rekur lítið
gallerí með vörum úr hreindýraleðri.
Menningarhátíðin Húnavaka verð-
ur um helgina á Blönduósi og ná-
grenni. Hún verður formlega sett
klukkan 19.45 á nýja torginu fyrir
utan félagsheimilið. Þar verður
tóninn sleginn fyrir helgina. Eftir
setninguna er unga fólkið hvatt til
að fara í sundlaugarpartí og þeir
eldri á kvöldskemmtun í félags-
heimilinu með Erni Árnasyni og
Óskari Péturssyni. Útitónleikar
hefjast á Grímstorgi klukkan 22
þar sem Polyester, Spor og Veður-
guðirnir koma fram. Á laugardag-
inn verður torfærukeppni milli 11
og 14 og Blönduhlaup milli 13 og 14
en klukkan 13.15 hefst fjölskyldu-
skemmtun á hátíðarsviði þar sem
Jógvan Hansen, Skoppa og Skrítla
og Hara-systur koma fram. Söng-
keppni ungmenna verður á dag-
skrá og boðið er upp á hoppkast-
ala og hesta fyrir börnin. Mark-
aðstjald verður líka á svæðinu.
Bjarni Hell opnar listsýningu
á lofti veitingahússins Við ár-
bakkann klukkan 14 og spennandi
knattspyrnuleikur milli Hvatar
1987 og Hvatar 2007 verður milli
16 og 17 en hljómsveitin Ground
Floor heldur tónleika í Blöndu-
óskirkju milli 17 og 18. Kvöld-
vaka hefst í íþróttahúsinu klukk-
an 20.30 þar sem söngur og tón-
list er í aðalhlutverki og kynnir er
Björgvin Franz Gíslason. Á eftir
er dansleikur með hljómsveitinni
Í svörtum fötum.
Á sunnudaginn verður leið-
sögn um Hafíssetrið með Þór Jak-
obssyni bæði klukkan 13 og 15
og hátíðardagskrá í Heimilisiðn-
aðarsafninu verður milli 14 og
17. Klukkan 16 hefjast tónleik-
ar í Blönduóskirkju með Magn-
úsi Guðmundssyni tenór. Sýning-
ar verða um allan bæ á Húnavöku
og hátíðarkvöldverðir á hótelinu
og Við árbakkann.
- gun
Hopp og hí á Húnavöku
Fjölbreytt dagskrá verður um helgina á Blönduósi.