Fréttablaðið - 14.07.2007, Síða 13
Undanfarið hafa heyrst gagn-rýnisraddir á aðferðafræði
Hafró við mat á stofnstærð þorsks
og ráðleggingar þeirra um veiðar í
kjölfarið. Mæling á stofnstærð er
flókið ferli og mikið af óvissuþátt-
um sem leiða verður líkum að,
endanleg niðurstaða um hvort
matið hafi verið rétt kemur ekki
að fullu fram fyrr en hver árgang-
ur er horfinn en það eru 14 ár í til-
felli þorsksins.
Vitaskuld verður seint hægt að
útiloka óvissuþætti, til þess þarf
heildarmódel af umhverfinu og
nákvæma vitneskju um alla þætti
sem hugsanlega geta haft áhrif og
hvernig þau áhrif eru. Slík vitn-
eskja verður ekki á okkar færi í
fyrirsjáanlegri framtíð. Það eru
hins vegar til aðferðir til þess að
nýta þá þætti í umhverfinu sem
eru mældir þótt samband þeirra
við þorskstofninn sé ekki hægt að
setja fram í formúlu á auðveldan
hátt, ein slík aðferð er notkun
gervitauganeta.
Fyrir um 12 árum síðan, kann-
aði ég möguleikann á því að þjálfa
gervitauganet til þess að meta
stofnstærð þorsks þar sem tillit er
tekið til umhverfisþátta auk
hefðbundinna gagna. Inntaki
skipti ég niður í 52 þætti er fjöll-
uðu um stofninn sjálfan, 8 sem
fjölluðu um æti og stöðu þess s.s.
loðnu, rækju, kolmunna og karfa
og 16 umhverfisþætti s.s. hitastig,
seltu, átu, þörunga, strauma og
veiðar úr grænlenska
þorskstofninum. Alls 76
þættir sem ég mat hæfa
til notkunar úr þeim
gögnum sem ég vissi að
Hafró hafði í gagn-
agrunnum sínum og ég
hafði kynnt mér að gætu
skipt máli. Ég lét gervi-
tauganetið læra tengslin
á milli þessara þátta úr
11-14 árum af upplýs-
ingum og áætla stofninn
næstu 4-6 ár. Niðurstað-
an var að mínu mati mjög
ásættanleg, og gaf tilefni til frek-
ari rannsókna á því að nota þessa
tækni við að tengja umhverf-
isþætti við stofnstærðarútreikn-
inga.
Síðan ég gerði þessa
rannsókn hef ég þróað
og þjálfað gervitaug-
anet af öðrum toga
byggð á mynstur- og
áhættugreiningum
mínum fyrir fjölþjóð-
legt fyrirtæki á fjár-
málamarkaðnum, þau
net hafa verið keyrð í
Bretlandi, Ítalíu, Tyrk-
landi og í Belgíu með
mjög góðum árangri.
Net þessi eru þjálfuð til
þess að finna misferli og
hafa náð því að finna allt að 80% af
fjármagni sem reynt hefur verið
að svíkja út, sams konar módel má
nota til þess að greina peninga-
þvætti, tryggingasvik, misferli í
farsímakerfum, bókhaldssvik
o.s.frv. Sú reynsla sem af þessu
hefur fengist nýtist til þess að
betrumbæta upprunalega stofn-
stærðarmatsnetið.
Vinnslugeta tölva hefur veruleg
áhrif á hvað hægt er að þjálfa stór
gervitauganet, en á 12 árum hefur
vinnsluhraði áttfaldast í venjuleg-
um tölvum og minniskostnaður
minnkað gríðarlega. Það er því
hægt að þjálfa mun flóknari og
stærri net núna en þá. Fjöldi rann-
sókna á gervitauganetum hefur
einnig margfaldast. Gott dæmi
um það er gríðarlegt magn nýrra
vísindarita um efnið sem verður
gefið út í tengslum við ráðstefnu
IJCNN 2007 en ég var kjörinn
rýnir fyrir hönd INNS á þeirri ráð-
stefnu.
Líklega hefur á þessum tíma
einnig orðið töluverð þróun á
stofnstærðarútreikningum og
þekkingu okkar á umhverfi
þorsksins. Ég held því að hægt sé
að gera töluvert betur í þessari
aðferðafræði nú en fyrir 12 árum.
Ég hef nokkrum sinnum leitað
til Hafró um samstarf um
áframhaldandi rannsókn á nýt-
ingu þessarar tækni, en hana má
hugsanlega nota einnig til þess að
byggja hermi þar sem hægt er að
breyta umhverfisþáttum og spá
fyrir um áhrifin á stofninn en til
þessa hefur ekki verið áhugi fyrir
því.
Höfundur er ráðgjafi.
Umhverfisþættir í stofnstærðarmat
SIMPLY CLEVER
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
7
4
8
0
Fjölskylduskemmtun
árið um kring í boði Skoda
FÁÐU ÁRSMIÐA FYRIR FJÖLSKYLDUNA Í FJÖLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐINN
SkodaOctavia
Skoda Octavia er þekktur fyrir að vera áreiðanlegur og eyðslugrannur.
Nú bjóðum við með í kaupum á nýjum Skoda Octavia kort fyrir alla
fjölskylduna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í heilt ár.
Skoda Octavia með 1,9 lítra TDI® dísilvél sannar að afl og
hagkvæmni geta farið saman. Vélin skilar 105 hestöflum en eyðslan
er einungis 4,9 lítrar í blönduðum akstri á hverja 100 km.
Skoda Octavia – skemmtilegur fjölskyldumeðlimur
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Auglýsingasími
– Mest lesið