Fréttablaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 17
[Hlutabréf]
Lífeyrissjóðum er óheimilt að
stunda verðbréfalán samkvæmt
nýbirtri túlkun Fjármálaeftirlitsins
á 36. grein laga um skyldutrygg-
ingu lífeyrisrétt-
inda og starfsemi
lífeyrissjóða.
Lagagreinin
kveður á um fjár-
festingaheimild-
ir lífeyrissjóða.
„Túlkunin lýtur
að heimildum lífeyrissjóða til að
stunda verðbréfalán (securities
lending) en í hugtakinu felst að
verðbréf eru yfirfærð tímabundið
frá eiganda verðbréfanna, lánveit-
anda, til lántaka gegn þóknun sam-
kvæmt samningi þar um,“ segir
Fjármálaeftirlitið og bendir á að
fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða
séu skýrt afmarkaðar í lögum. „Þar
er ekki að finna heimild til að
stunda verðbréfalán,“ segir Fjár-
málaeftirlitið.
FME fjallar um
verðbréfalán
Kaupþing banki hefur verið
valinn besti bankinn á Norður-
löndum og
einnig besti
bankinn á
Íslandi af
alþjóðlega
viðskiptatímarit-
inu Euromoney.
Ármann
Þorvaldsson,
forstjóri
Kaupþings
Singer & Friedlander, tók við
verðlaunum Euromoney, fyrir
hönd bankans, við hátíðlega
athöfn í Lundúnum nú í vikulokin.
Í tilkynningu frá Euromoney
segir að verðlaunin séu þau
virtustu í alþjóðlega bankaheim-
inum. Í rökstuðningi fyrir valinu
bendir tímaritið á mikinn vöxt
Kaupþings í fyrra og nefnir
glæsilega arðsemi eiginfjár.
Besti banki
Norðurlanda
Hekla Energy GmbH heitir nýtt dóttur-
fyrirtæki Jarðborana hf. í Þýskalandi.
Höfuðstöðvar þess verða í Celle í
Neðra-Saxlandi, en verkefni fyrirtækis-
ins verða borframkvæmdir í Þýska-
landi.
Framkvæmdastjóri Heklu Energy
verður Thor Növig en hann er sagður
þrautreyndur í geiranum, stýrir nú
næststærsta borfyrirtæki Þýskalands,
ITAG Tiefbohr GmbH. Þar hefur hann
verið í brúnni í 15 ár „og undir hans
stjórn hefur fyrirtækið skipað sér í
fremstu röð borverktaka í Evrópu,“
segir í tilkynningu Jarðborana.
Bent Einarsson, forstjóri Jarðborana,
segir góðan markað fyrir nýja og
endurnýjanlega orku í Þýskalandi þar
sem aukning í orkunotkun sé ekki síst til
komin vegna verkefna á því sviði. „En
hjá Jarðborunum er ánægjuefni að sú
mikla þekking sem við höfum yfir
langan tíma öðlast hér heima við
krefjandi aðstæður skuli breytast í
verðmæta útflutningsvöru,“ bætir hann
við, en stofnun Heklu Energy er sögð
liður í að framfylgja stóraukinni áherslu
Atorku og Jarðborana á útrás sérhæfðrar
þekkingar á erlenda markaði.
„Nýlega var samið við þýska
fyrirtækið Herrenknecht Vertical
GmbH um kaup og kauprétt á nýrri
gerð hátæknivæddra stórbora sem eru
sérstaklega hannaðir til að afla jarðhita
á miklu dýpi. Fyrsti borinn verður
afhentur Heklu Energy nú í september
og þegar uppsetningu, prófunum tækja-
búnaðar og öðrum undirbúningi lýkur
er fyrirhugað að fyrstu borfram-
kvæmdir á vegum Heklu Energy hefj-
ist í Suður-Þýskalandi,“ segir í tilkynn-
ingu Jarðborana.
Jarðboranir eru stærsta borfyrir-
tæki á heimsvísu sem sérhæfir sig í
jarðhita og er í eigu fjárfestingar-
félagsins Atorku Group.
Jarðboranir stofna Heklu Energy
Wood and Company, sem er að
helmingshlut í eigu Straums-
Burðaráss fjárfestingarbanka,
fékk í gær viðurkenningu sem
besta hlutabréfamiðlunin í Tékk-
landi.
Viðskiptatímaritið Euromoney
veitir verðlaunin. Er þetta í 9.
skiptið sem Wood and Company
hreppir hnossið.
Straumur keypti helmingshlut í
Wood and Company í júní síðast-
liðnum og samdi jafnframt um
kauprétt að eftirstandandi hlutum
ekki síðar en fyrri hluta 2011.
Bestir í Tékklandi