Fréttablaðið - 14.07.2007, Page 20

Fréttablaðið - 14.07.2007, Page 20
„Ég vona ég verði aldrei það gamall að ég gerist trúaður.“ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, Helga Sigtryggsdóttir lést þann 11. júlí sl. á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þann 19. júlí nk. klukkan 15.00. Ólöf Stefánsdóttir Sigtryggur Stefánsson María Markúsdóttir Sævar Stefánsson Margrét Gunnarsdóttir Valborg Stefánsdóttir Þórólfur Kristjánsson Kolbrún Stefánsdóttir Jóhannes Reynisson Sigurður Stefánsson Svava Guðmannsdóttir Haukur Sigtryggsson Unnur Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristinn Jónsson fyrrv. skipstjóri á Akranesi, lést mánudaginn 9. júlí á Hrafnistu í Reykjavík. Minningarathöfn fer fram í Grensáskirkju þriðjudaginn 17. júlí kl. 13.00. Jarðsett verður í Akraneskirkjugarði sama dag. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Sigurborg Kristinsdóttir Kári Valvesson Guðmundur Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, Svavar Jónsson húsasmíðameistari, Flétturima 36, Reykjavík, sem lést 8. júlí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánu daginn 16. júlí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Guðný Eiríksdóttir Hrefna Katrín Svavarsdóttir Baldvin S. Ingimarsson Óskar Svavarsson María Kristín Þrastardóttir Reynir Svavarsson Sigrún Anna Snorradóttir Heiðdís Rós Svavarsdóttir Birgir Karl Ragnarsson Hrefna Líneik Jónsdóttir og barnabörn. Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Aldís Pála Benediktsdóttir bankafulltrúi, Raufarseli 11, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 12. júlí síðastliðinn. Útför hennar verður tilkynnt síðar. Sigurður E. Guðmundsson Guðrún Helga Sigurðardóttir Friðrik Friðriksson Benedikt Sigurðsson Kjartan Emil Sigurðsson Aldís Eva Friðriksson Dagur Páll Friðriksson Faðir minn, kær bróðir okkar og mágur, Hannes Jóhannsson málarameistari, Bollagötu 9, Rvk, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi, 27. júní sl. Útför hans fór fram í kyrrþey 9. júlí. Þökkum sýnda samúð við lát hans og útför. Hrefna Hannesdóttir Arnar Andrésson Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Guðmundur Kr. Jóhannsson Ingibjörg Dan Kristjánsdóttir Birgir Jóh. Jóhannsson Heimir Brynjúlfur Jóhannsson Friðrikka Baldvinsdóttir Sigríður H. Jóhannsdóttir Sveinn Sæmundssoon Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Haukur Svanberg Guðmundsson Skúlagötu 20, Reykjavík, lést á Hjartadeild Landspítalans við Hringbraut, fimmtudaginn 12. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhanna Hálfdánardóttir Ingvar Hauksson Sigríður Axelsdóttir Elín Hauksdóttir Svavar Helgason Guðmundur Vignir Hauksson Lilja Guðmundsdóttir Sigurdís Hauksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. www.minningargreinar.is Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón Sveinsson Arahólum 2, Reykjavík, lést fimmtudaginn 12. júlí á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut. Jarðarförin auglýst síðar. Helga Haraldsdóttir Sveinn Vilberg Jónsson Guðný Lilja Guðmundsdóttir Haraldur Þór Jónsson Helga Jóhanna Úlfarsdóttir Jóhann Helgi Sveinsson Helga María Sveinsdóttir Sunneva Björg Davíðsdóttir Jón Ágúst Haraldsson Sextánda James Bond-myndin, Licence to Kill, var frumsýnd Harmóníkuhátíð Reykja- víkur 2007 verður haldin í Árbæjarsafni sunnudag- inn 15. júlí. Hátíðin hefst klukkan 13.00 og verður spilað um allt safnið eins og venja er. Hátíðin hefur fall- ið í góðan jarðveg undan- farin ár og fjölgar gestum ár frá ári. Á hátíðinni gefst fólki tækifæri á að hlusta á marga af þekktustu, bestu og efnilegustu harmóníku- leikurum landsins í þjóð- legri umgjörð safnsins. Hátíðinni lýkur með fjöldasamleik upp úr klukk- an fjögur. Harmóníkuhátíð Þjóðhátíðardagur Frakka er haldinn hátíðlegur í dag, 218 árum eftir fall Bastillunnar, og er dagurinn jafnan nefndur Bastilludagurinn. Mikil efnahagskreppa geisaði í Frakklandi á þessum árum og Lúðvík 16. tók þá ákvörðun að auka skatta almennings til að auka tekjur sínar. Í kjölfarið gerði lýðurinn upp- reisn og réðist inn í Bastilluna. Dagurinn markar upphafið á frönsku byltingunni sem endaði með aftöku konungsfjölskyldunnar árið 1793. Á sama tíma var lénsveldisskipulagið afnumið og landið fékk nýja stjórnar- skrá sem tryggðu hinni nýju stétt borgara aukin réttindi. Hjónin Þórunn Anspach og Olivier Brémond eru bæði alin upp í París. Þau eru nú búsett í Reykjavík og reka verslunina Kisuna á Laugavegi þar sem þau bjóða upp á franskar vörur. Þórunn er hálf íslensk og fæddist í Vestmannaeyjum, þar sem hún var á sumrin hjá afa sínum og ömmu sem barn. Hjónin bjuggu lengst af í París, þar sem þau ráku stærsta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kvikmynda og sjónvarps. Þar fögnuðu þau þjóðhátíðardeginum með því að fara út að borða með fjölskyldunni og dansa fram á nótt. „Öll hverfin hafa sína eigin skemmt- un þar sem slegið er upp balli og allir dansa saman. Þar hittum við nágrannana og fórum í önnur hverfi og kíktum á stemninguna. Síðan fórum við með börnin að Eiffelturninum þar sem var skotið upp flugeldum,“ segir Þórunn, sem flutti í fyrra til landsins ásamt eiginmanninum og þremur börnum á aldrinum þriggja til ellefu ára. „Ég vildi að börnin myndu læra íslensku og það er ekki hægt almenni- lega án þess að búa hér. Börnin elska að búa hérna og ég efast um að við eigum afturkvæmt til Parísar. Börnin eru svo frjáls svo þetta er allt annað líf,“ segir Þórunn, sem fagnar deginum í franska sendiráðinu en á Íslandi eru búsettir 450 Frakkar. „Við lyftum glasi í tilefni dagsins í franska sendiráðinu og hittum aðra Frakka. Það er mjög ánægjulegt en ekkert sambærilegt hátíðarhöldunum í París. Við söknum að sjálfsögðu Parísar en erum þar um það bil sex sinnum á ári og þá hittum við vini og fjölskyldu,“ segir Þórunn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.