Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2007, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 14.07.2007, Qupperneq 32
hús&heimili BLÓMIN fara vel í þessum fallegu blómapottum frá versluninni J Schatz í New York. Pottarnir eru allir egglaga og er hægt að hengja þá upp bæði innan dyra og utan. Engir tveir pottar eru eins og er hver og einn skorinn út í höndum. Nánar á www.jschatz.com. Forsíðumynd: Anton Brink tók þessa mynd af hús- gagna- og innanhúshönnuðunum Oddgeiri Þórðar- syni og Guðrúnu Margréti Ólafsdóttur. Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristi- neva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@ frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir s. 5175724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. hönnun CHARLES R. MACKINTOSH Þessi stóll byggir á hönnun skoska inn- anhússhönnuðarins Charles Rennie Mackintosh. Stóllinn var hannaður í upphafi 20. aldar fyrir útgefandann Walter Blackie og notaður í Hill House undir hanska og hatta, en ekki mátti undir neinum kringumstæðum setjast á hann. Nú þykir hins vegar ekkert at- hugavert við að nota hann sem setu- stól. „Við erum mikið í innréttinga- hönnun fyrir fyrirtæki og stofn- anir eins og skrifstofur og slíkt en líka fyrir einstaklinga,“ segir Odd- geir og bætir því við að þau vinni skrifstofuhúsgögn fyrir Á. Guð- mundsson og eldhúsinnréttingar fyrir Brúnás. „Húsgögnin í MGO-línunni eru sú hönnun sem hefur fengið hvað mesta athygli frá okkur og sú fyrsta sem hefur farið í fram- leiðslu og sölu erlendis. Guðrún bætir því við að línan hafi verið í framleiðslu hjá sænska fyrir- tækinu Möbelsnickarmastare Jo- hansson í á annað ár þótt aðeins lengra sé síðan hún var hönnuð. „Mublurnar eru úr eik og hægt er að fá þær í ýmsum stærðum, gerð- um og viðartegundum. Þá er hægt að fá borðið hringlaga og með stækkunarplötum þannig að það eru heilmiklir möguleikar í fram- leiðslunni. Hjá sænska fyrirtækinu starfa handverksmenn sem fram- leiða línuna og vinnan hjá þeim er ofboðslega flott. Það var eitt af því sem við féllum fyrir þegar við tókum upp samstarf við þá,“ segir Guðrún og bætir því við að þau hafi lagt áherslu á að húsgögnin fengj- ust í svörtu. „Þeir töldu sig þó ekki geta framleitt þetta í svörtu upp- haflega en eru nú nýbúnir að finna aðferð til að lita svart án þess að þurfa að lakka mublurnar,“ segir Guðrún og bætir því við að oftast séu mublur lakkaðar ef þær eru svartar að lit.“ Oddgeir segir mublurnar hafa fengið fínar viðtökur erlendis en þær hafa verið í sölu í Svíþjóð, Danmörku, Skotlandi og víðar. Hér heima fást þær hins vegar í Epal. sigridurh@frettabladid.is Góðar viðtökur erlendis Húsgagna- og innanhússhönnuðirnir Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson eiga fyrirtækið GoForm. Þau hafa starfað saman í um tuttugu ár og eru nú með MGO-hús- gagnalínuna sína á sýningu á Kjarvalsstöðum en línan hefur verið í framleiðslu og sölu í á annað ár. Oddgeir og Guðrún sitja hér við eldhúsborð úr GMO-línunni. Borðið er hægt að fá í ýmsum stærðum, gerðum og viðartegundum, auk þess sem því fylgja stækkunarplötur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þessi stóll er sýningareintak úr smiðju GoForm og er framhald af GMO-línunni. Hann mun meðal annars verða til leður- klæddur þegar fram líða stundir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ABRA CADABRA er nafn á litlum post- ulínsskálum sem fást í versluninni Kokku á Laugavegi 47. Nú fæst postulínslok á þær líka og það gætt þeim eig- inleika að hægt er að skrifa á það með blýanti eða trélit. Myndir og texta má síðan stroka út með strokleðri eða þvo af með vatni og sápu. Blýantur fylgir meira að segja með. Lokið hentar vel þegar margar skálar með mismunandi innihaldi eru lagðar á borð og þörf er að merkja þær. topdrive.is Smiðjuvellir 3 Keflavík Sími: 422-7722 Allar þessar ólíku vörur eiga það sameiginlegt að fást hjá topdrive.is Smiðjuvellir 3 Keflavík Sími: 422-7722 14. JÚLÍ 2007 LAUGARDAGUR2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.