Fréttablaðið - 14.07.2007, Blaðsíða 65
Handknattleiks-
samband Evrópu dæmdi fyrir
helgi í máli Frakkans Daniel
Narcisse gegn Gummersbach.
Narcisse taldi sig lausan allra
mála hjá þýska félaginu og hafði
ákveðið að ganga í raðir síns gamla
félags, Chambery í Frakklandi.
Því var Gummersbach ekki
sammála þar sem ákvæði var í
samningnum um að hægt væri að
framlengja hann.
Alfreð Gíslason, þjálfari
Gummersbach, segir niðurstöðuna
hafa komið félaginu á óvart og að
það muni áfrýja dómnum.
„Það hafa verið tvö svipuð mál í
gangi hér í Þýskalandi, eitt í
handboltanum og annað í
fótboltanum, og þar var í bæði
skiptin dæmt félögunum í hag.
Þetta mál fer lengra,“ sagði Alfreð.
Narcisse var búinn að ganga frá
munnlegu samkomulagi um að
vera áfram áður en honum snerist
hugur að því er Alfreð segir.
„Ef dómurinn stendur gæti það
haft áhrif á samninga annarra
leikmanna en það er óþarfi að
hugsa svo langt núna þar sem ég á
frekar von á því að dómurinn
breytist aftur,“ sagði Alfreð, sem
engu að síður býst ekki við
Narcisse í leikmannahópi félagsins
á næstu leiktíð, en Gummersbach
vill fá sanngjarna greiðslu frá
Chambery fyrir leikmanninn.
Gummersbach mun áfrýja niðurstöðunni
Sir Alex Ferguson, stjóri
Englandsmeistara Manchester
United, segir að Arsenal verði
betra á næsta tímabili en því
síðasta þrátt fyrir að liðið sé búið
að missa Thierry Henry.
Arsenal endaði í 4. sætinu í
vetur, 21 stigi á eftir United, en
liðið hefur aldrei endað neðar
síðan Arsene Wenger kom til
liðsins haustið 1996.
„Ég sannfærður um að Arsenal
verði meðal efstu fjögurra
liðanna þrátt fyrir að hafa misst
Henry. Það var kominn tími fyrir
hann að fara. Arsene vissi það og
ég held að liðið verði betra án
hans,“ sagði Skotinn sigursæli í
gær. Arsenal spilar í dag sinn
fyrsta leik eftir brottför Henrys
þegar liðið mætir Barnet í
æfingaleik.
Arsenal verður
betra án Henry
Enska liðið Liverpool er
á fullu að styrkja sig og í gær
kynnti félagið tvo nýja leikmenn.
Þetta eru ísraelski
miðjumaðurinn Yossi Benayoun
(27 ára) og hollenski sóknar-
maðurinn Ryan Babel (20 ára).
Benayoun var keyptur frá West
Ham fyrir óuppgefna upphæð og
gerði samning til 2011 en Babel
kom frá Ajax fyrir 17 milljónir
evra, um 1,4 milljarða íslenskra
króna, á fimm ára samningi.
Babel verður í treyju númer 19
en hann var lykilmaður í
hollenska 21 árs landsliðinu sem
varð Evrópumeistari á dögunum.
Rafael Benitez, stjóri Liverpool,
er því heldur betur búinn að
styrkja sóknina því hann var
þegar búinn að fá þá Andriy
Voronin og Fernando Torres á
Anfield.
Benitez bætir
enn í sóknina
Knattspyrnusamband
Evrópu hefur skikkað danska
liðið FC Kaupmannahöfn til þess
að fara til Ísrael og spila þar við
Beitar Jerúsalem í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu í næstu
viku.
Danirnir óttast mikið um
öryggi sitt en stuðningsmenn
Beitar eru þekktir fyrir allt annað
en prúðmannlega framkomu á
pöllunum. Fyrr á árinu var
félagið dæmt í bann eftir að allt
sauð upp úr í heimaleik gegn
Hapoel Petah Tikva í ísraelsku
deildinni.
Fimmtíu manns slösuðst í
átökunum, þar af fimm alvarlega,
og hundruð stuðningsmanna
ruddust inn á leikvöllinn. UEFA
segir það sem gerist í deildunum
heima fyrir ekki hafa nein áhrif á
alþjóðlega leiki liðsins og því
komi ekkert í veg fyrir að spilað
verði í Jerúsalem.
Verður að spila
í Jerúsalem LANDSBANKADEILD KARLA
10. UMFERÐ
lau. 14. júlí kl. 16:00 FH – ÍA
sun. 15. júlí kl. 19:15 Keflavík – KR
mán. 16. júlí kl. 19:15 Fylkir – Breiðablik
mán. 16. júlí kl. 19:15 HK – Víkingur R.
mán. 16. júlí kl. 20:00 Fram – Valur
Komdu og sjáðu gullmörkin!
Fyrir hvert einasta mark sem skorað verður í
10. umferð karla greiðir Landsbankinn 30.000 kr.
Framlagið rennur til góðra málefna sem félögin
velja sjálf. Leikmenn í Landsbankadeild kvenna
munu skora fyrir gott málefni í næstu umferð
kvennadeildarinnar, 27. júlí.
Aðsókn á leiki Landsbankadeildarinnar hefur
aldrei verið eins góð og í sumar.
Komdu á völlinn og hvettu þitt lið til góðra verka!
Sjá nánar á www.landsbanki.is