Fréttablaðið - 17.07.2007, Síða 2
Fjórtán ára gömul
stúlka gekk ásamt stórum hópi ungl-
inga í skrokk á jafnöldru sinni í tívol-
íinu við Smáralind á þriðjudag fyrir
viku. Á bloggsíðu sinni stærir hún sig
mjög af líkamsárásinni, sem og ann-
arri sem hún segist hafa framið sama
dag. Hún réðst einnig á lögregluþjón
við handtöku.
Í lögregluskýrslu kemur fram að
stór hópur unglinga, líklega á þriðja
tug, hafi ráðist á eina stúlku með
ofbeldi, að því er virtist að tilefnis-
lausu. Af ummælum stúlkunnar á
bloggsíðu hennar má ráða að hún hafi
verið einna atkvæðamest árásar-
mannanna. Haft er eftir vitnum í lög-
regluskýrslunni að stúlkan hafi verið
slegin margoft í andlitið og rifið hafi
verið í hár hennar. „Ég reif í hárið á
henni og bombaði henni í jörðina svo
tók ég hana aftur uppá hárinu og
bombaði 1000 sinnum í andlitið á
henni,“ skrifar stúlkan á síðu sína um
árásina.
Stúlkan lýsir í bloggfærslunni ann-
arri árás sem hún segir hafa átt sér
stað örskömmu síðar. Hún hafi hitt
aðra stelpu ásamt vinkonu sinni sem
reif við þær kjaft. Þær hafi þá mis-
þyrmt henni. Skömmu síðar bar lög-
reglumenn að og mætti þeim þá ofsi
stúlkunnar. Garðar Helgi Magnús-
son, varðstjóri lögreglu, segir hana
hafa veist að lögreglu með ofbeldi og
sóðamunnsöfnuði og hótunum um
alvarlegar líkamsmeiðingar. Sjálf
segist hún hafa sparkað í lögreglu-
þjón og hrækt á hann.
„Þetta hlýtur að vera nánast eins-
dæmi,“ segir Garðar. „Ég man ekki
eftir að hafa áður lesið svona lýsing-
ar um hegðun svona ungrar stúlku.“
Garðar segir stúlkuna sem ráðist
var á fyrst hafa hlotið nokkra áverka
í andliti og hugsanlega víðar. Hann
segir að ekki liggi ljóst fyrir hver
aðdragandi árásarinnar var, en ljóst
sé að illindi hafi sprottið á milli
stúlknanna. Stúlkan segir á vefsíð-
unni að ástæðan sé sú að fórnarlamb-
ið hafi kært systur hennar. Garðar
segir þó einnig margt benda til þess
að farið hafi verið mannavillt og röng
stúlka hafi orðið fyrir barðinu á hópn-
um.
Haft var samband við barnavernd-
aryfirvöld vegna málsins. Segist
stúlkan hafa verið vistuð á meðferð-
arheimilinu Stuðlum eftir atvikið.
Eldri maður var
fluttur á slysadeild til Reykjavík-
ur um hádegisbil í gær eftir
árekstur á Borgarfjarðarbrú.
Hann var ekki talinn alvarlega
meiddur. Í bílnum var einnig
fimm ára abarnabarn hans sem
slapp án meiðsla.
Slysið varð þannig að tveir
bílar sem komu úr gagnstæðri átt
rákust saman. Í hinum bílnum
voru eldri hjón sem voru flutt
óslösuð til skoðunar á heilsu-
gæslustöð. Bílarnir skemmdust
talsvert og þurfti að draga þá
báða af vettvangi. Loka þurfti
Borgarfjarðarbrúnni í tæpa
klukkustund eftir slysið.
Fimm ára afa-
barn slapp vel
Hreykir sér af líkams-
árásum á bloggsíðu
Fjórtán ára stúlka gekk illa í skrokk á tveimur jafnöldrum sínum við Smáralind
fyrir viku og réðst á lögregluþjón. Á bloggsíðu gortar hún sig af árásunum. Varð-
stjóri lögreglu segir hegðun af þessu tagi hjá svo ungri stúlku nánast einsdæmi.
Athugull vegfarandi
tók á dögunum eftir ófleygum erni
sem var á flakki á túni nokkru í
Kolgrafarfirði á Snæfellsnesi.
Skilaboðum var komið til starfs-
manna Náttúrustofu Vesturlands,
sem brugðust skjótt við. Fuglinn
var handsamaður og kom þá í ljós
að hann var grútarblautur, líklega
eftir viðureign við fýl. Ein kló var
brotin og stélið nokkuð laskað.
Fuglinn var fremur rýr, sem bendir
til að hann hafi verið þarna um
nokkurn tíma. Fuglinn var ómerkt-
ur en rígfullorðinn ef marka má lit
á goggi og ljósu höfði, einkennum
fullorðinna arna ásamt ljósu stéli.
Eins og lesa má á heimasíðu nátt-
úrustofunnar kom starfsfólk fuglin-
um í Húsdýragarðinn í Reykjavík,
þar sem grúturinn verður þveginn úr
fiðri hans á næstu dögum og honum
gefið að éta. Vonast er til að hægt
verði að sleppa honum aftur.
Flugfélagið Ernir
fékk í gær nýja flugvél til
landsins. Vélin er af gerðinni
Jetstream 32 og tekur nítján
manns í sæti. Hún verður notuð í
áætlunarflug Ernis á Höfn í
Hornafirði og Sauðárkrók. Einnig
verður hún nýtt í leiguflug bæði
innanlands og utan. Nýja flugvél-
in verður sú sjötta í flota Ernis.
Um áramótin tók flugfélagið
Ernir við áætlunarflugi á Höfn,
Sauðárkrók, Bíldudal og Gjögur
en auk þess eru vélar félagsins
notaðar í leiguflugi. Flug með
erlenda ferðamenn og útsýnisflug
eru vaxandi hluti af starfsemi
Ernis.
Kom til
andsins í gær
Undirritaður hefur
verið samstarfssamningur milli
Háskóla Íslands og Íslenskrar
erfðagreiningar um samstarf á
sviði mennta og rannsókna.
Fjórir vísindamenn Íslenskrar
erfðagreiningar munu starfa sem
rannsóknakennarar við HÍ en auk
þess munu skólinn og fyrirtækið
eiga í víðtæku samstarfi með
rannsóknir.
Samið um víð-
tækt samstarf
Novator hefur tryggt sér
yfir 90 prósenta hlutafjár í Actavis.
Við þetta myndast söluskylda hjá
eftirstandandi hluthöfum.
Yfirtökutilboð
Actavis hljóðar
upp á 1,075
evrur á hvern
hlut. Hluthafar
sem ekki hafa
samþykkt
tilboðið hafa
frest þar til á
morgun til að
ganga frá
samþykki, öðrum kosti fellur niður
réttur þeirra á viðbótargreiðslu
komi til þess að Novator selji hlut
sinn innan 12 mánaða.
Björgólfur Thor Björgólfsson
eigandi Novators þakkar hluthöf-
um samferðina. Hann segir ekkert
liggja fyrir um mögulegan
samruna við önnur félög.
90 prósenta
markinu náð
Karl Gauti, var þetta ekki
þrælgaman?
Refum hefur fjölgað mjög
undanfarið. Mófugli hefur fækkað
vegna álags og rjúpunni líka.
Guðni Bjarnason, refaskytta hjá
Mosfellsbæ, hefur verið iðinn við
veiðarnar. „Mér leist ekki á þetta á
tímabili en ég tel að við náum að
halda í horfinu,“ segir hann.
Tveir menn sjá um veiðar fyrir
Reykjavíkurborg á Kjalarnesi og
sömu menn eru í Kjós. Einn er í
Þingvallasveit við veiðar og tveir
menn í Grafningi. Engar refaveið-
ar eru hins vegar í Garðabæ og
Hafnarfirði. „Ég tel að refurinn
komi mikið til þaðan,“ segir Guðni.
Þessi sveitarfélög hafi takmarkað-
an áhuga á veiðum því ekkert
sauðfé sé þar.
Refum fjölgar
og fugli fækkar
Rússnesk stjórnvöld
hóta því að grípa til harðra aðgerða
gegn Bretlandi í kjölfar þess að
bresk stjórnvöld ákváðu að reka
fjóra rússneska stjórnarerindreka
úr landi.
Bretar höfðu sagst gera þetta
vegna þess að Rússar hefðu ekki
orðið við óskum Breta um að fram-
selja Andrei Lugovoi, rússneskan
kaupsýslumann og fyrrverandi
njósnara, sem er grunaður um að
hafa byrlað Alexander Litvinenko
geislavirkt eiturefni í nóvember
síðastliðnum.
„Þeir ættu að skilja það vel í
London að þessum ögrandi aðgerð-
um, sem runnar eru undan rifjum
breskra ráðamanna, verður ekki
látið ósvarað og þær munu óhjá-
kvæmilega hafa í för með sér háal-
varlegar afleiðingar fyrir sam-
skipti Rússa og Breta,“ sagði
Mikhaíl Kaminín, talsmaður rúss-
neska utanríkisráðuneytisins, í
gær.
Hann bætti því við að Sergei
Lavrov utanríkisráðherra hafi
fært David Miliband, utanríkis-
ráðherra Breta, sömu skilaboð í
símtali fáeinum klukkustundum
fyrr.
Kaminín sagði þessa ákvörðun
Breta vera „vel skipulagðar
aðgerðir til þess að nýta Litvin-
enko-málið í pólitískum tilgangi.“
Kaminín sagði þó ekkert um það
hver viðbrögð Rússa yrðu.
Rússar bregðast hart við