Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 8
„Við vissum alltaf að drengurinn hafði
ekki gert þetta,“ segir Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir,
móðir Helga Rafns sem sakaður var um að hafa drep-
ið hundinn með hrottalegum hætti í maí á Akureyri.
Drápið vakti mikla athygli og varð Helgi og fjöl-
skylda hans fyrir fjölda hótanna vegna málsins.
Hundurinn er nú fundinn, sprelllifandi, í Hlíðar-
fjalli.
„Það er ógeðsleg tilfinning að verða fyrir svona
hótunum. Ég get heldur ekki ímyndað mér hvers
konar skepna það væri sem gæti farið svona með dýr
eins og var lýst,“ segir Helgi. Hann segir tímann frá
því málið kom upp hafa verið afar erfiðan. Hann hafi
lítið komist út úr húsi vegna áreitis og meðal annars
varð hann að láta af störfum.
Helgi segir fjölskylduna ætla að leita réttar síns í
þessu máli, hann hefur sjálfur fengið fjölda morðhót-
ana auk þess sem móðir hans varð einnig fyrir hótun-
um. Móðir hans segir son sinn hafa verið svo langt
niðri í sumar vegna ásakananna að hún hafi fengið
sálfræðing til að færa honum fréttirnar í gær.
Meðal þeirra sem höfðu samband við Helga vegna
drápsins, sem aldrei átti sér stað, var eigandi hunds-
ins. Helgi segir hana hafa heimtað að hann segði
henni hvar hræið væri að finna. Það gat hann skiljan-
lega ekki gert. Hann segist vonast eftir afsökunar-
beiðni frá henni sem og öðrum vegna þessa en segist
á vissan hátt skilja reiði hennar vegna þeirra öflugu
kjaftasagna sem fóru í gang.
„Það er kominn vendipunktur í þessu máli. Það
hefur verið með ólíkindum. Við höfum í samráði við
lögfræðing ákveðið að þetta mál verði unnið faglega.
Við óskum eftir því að þetta fari í lögreglurannsókn
og förum fram á skaðabætur vegna þessa,“ segir
Brynjar Eymundsson, faðir Helga. „Við trúðum því
aldrei að hann ætti svona til,“ segir Brynjar.
Ekki hafði tekist að koma höndum yfir Lúkas í gær.
Að sögn er hann illa til reika og afar styggur. Eigandi
hans ákvað því í gær að dvelja um nóttina í fjallinu
með lóðatíkur til að reyna að laða hann að.
Helgi segist hafa ákveðna menn grunaða um að
hafa komið sögunum á kreik en vill ekki tjá sig nánar
um það. Rannsókn geti leitt í ljós hver var að verki í
þessu illvirki sem lygarnar voru. „Það er samt gott að
hundurinn er á lífi,“ segir Helgi.
Áætlað er að þegar
fyrsti áfangi nýs háskólasjúkra-
húss verður tekinn í notkun þá
verði starfsemi Landspítalans í
Fossvogi hætt. Ekki hefur verið
ákveðið hvað gert verður við hús-
næðið sem er rúmlega 30 þúsund
fermetrar að stærð. Nefnt hefur
verið að nýta húsnæðið fyrir öldr-
unarþjónustu, enda var mikill hluti
þess byggður til þeirra nota. Fjár-
mögnun nýs háskólasjúkrahúss
gerir einnig ráð fyrir sölu eigna og
því kemur til greina að selja húsið
og nota fjármagnið til uppbygging-
ar við Hringbraut.
Jóhannes Gunnarsson, starfandi
forstjóri Landspítalans, segir
ótímabært að ræða hvað gert verð-
ur við húsin í Fossvogi. „Það má þó
minna á að B-álman í Fossvogi var
byggð í þágu aldraðra, þó áherslur
hafi breyst þegar Landakoti var
breytt í öldrunarspítala.“ Jóhannes
segir að húsin í Fossvogi verði vart
nýtt til annars en sjúkrahúsrekstr-
ar án töluverðra breytinga, enda
séu slík hús sérhæfð. „Þó má segja
að sjúkrahúsið hentar ekki einu
sinni lengur sem nútíma sjúkra-
hús. Þarfirnar á sjúkrahúsum hafa
breyst svo gríðarlega mikið frá því
að þetta hús var hannað um 1950,“
segir Jóhannes.
Töluverður sparnaður í rekstri
næst með því að sameina starfsemi
Landspítalans við Hringbraut.
Gera áætlanir ráð fyrir allt að tíu
prósenta sparnaði en rekstrar-
kostnaður er nú tæpir 30 milljarð-
ar á ári.
Hver er forseti Ísraels?
Hverju var Lewis Gordon
Pugh að vekja athygli á með
því að synda einn kílómetra í
sjónum á norðurpólnum?
Hvaða kaupmaður seldi
nýverið verslun sína í Banka-
stræti?
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Þetta er vél sem hefur
algera sérstöðu.
Fjórtán blettakerfi fyrir
ólíka bletti, t.d. vínbletti,
blóðbletti og grasgrænku.
Tromlan er óvenjustór,
tekur 65 l og hægt er að
þvo í henni allt að 8 kg.
Innra byrði tromlunnar er
með droplaga mynstri
sem fer sérlega vel með
þvottinn. Vélin er mjög
snör í snúningum: 15
mín. hraðkerfi og 60
mín. kraftþvottakerfi
fyrir meðalóhreinan þvott.
Snertihnappar. Stór og
öflugur skjár. Vélin hefur
mjög góða hljóðeinangrun
og er í orkuflokki A+.
Tæplega 300 Banda-
ríkjamenn, Norðmenn, Lettar og
Danir koma til landsins í ágúst
til að æfa flutning liðsafla til
landsins á hættutímum.
Í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir að slíkar
æfingar verði hér eftir reglu-
bundinn hluti af varnarviðbúnaði
landsins.
Æfingin skiptist í tvennt. Ann-
ars vegar verður 240 manna loft-
varnaræfing með tíu til þrettán
flugvélum, dönsku varðskipi og
þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Stjórnstöð íslenska loftvarnar-
kerfisins verður yfirstjórnstöð
æfingarinnar.
Hins vegar verður æfing gegn
hryðjuverkum. Í henni taka 42
erlendir sérsveitarmenn þátt.
Tuttugu þeirra koma frá Noregi,
sextán frá Lettlandi og sex frá
Danmörku. Fulltrúi ríkislög-
reglustjóra verður „samræming-
araðili“ æfingarinnar og leggur
til fimmtán menn.
Þetta er fyrsta varnaræfingin
sem gerð er eftir samkomulagi
íslenskra og bandarískra stjórn-
valda, sem undirritað var í
október síðastliðnum.
Ekki náðist í Arnór Sigurjóns-
son í gær, en hann er fram-
kvæmdastjóri æfingarinnar.
Heræfing hér á landi um miðjan ágúst
Slökkviliðsmennirnir níu
sem hugðust hjóla þvert yfir
landið ljúka ferðinni í dag
klukkan tvö við Reykjanestá.
Hópurinn hjólar til styrktar
Sjúkra- og líknarsjóði starfs-
mannafélags slökkviliðsmanna
höfuðborgarsvæðisins.
Slökkviliðsmennirnir lögðu af
stað laugardaginn 6. júlí frá Fonti
á Langanesi sem er norðaustasti
tangi landsins. Þaðan hjóluðu þeir
þvert yfir landið.
Í dag klukkan ellefu munu
mennirnir hjóla síðasta spottann,
frá Festi í Grindavík, í samneyti
við vini, vinnufélaga og ættingja.
Öllum er velkomið að slást í
hópinn.
Hjólreiðaferð
lýkur í dag
Pólski presturinn
Tadeusz Rydzyk, sem stýrir
rammkaþólsku og þjóðernis-
íhaldssinnuðu fjölmiðlaveldi í
kring um útvarpsstöðina Radio
Maryja og dagblaðið Nasz
Dziennik, varðist í síðustu viku
ásökunum um gyðingahatur
eftir að upp á yfirborðið komu
hljóðupptökur þar sem hann
lætur andgyðingleg ummæli
falla og kallar eiginkonu
Póllandsforseta „norn“.
Ummælin voru birt í vikublað-
inu Wprost, en þau eru úr
upptöku af fyrirlestri sem
Rydzyk hélt yfir nemendum í
blaðamannaskóla sem hann
stofnaði sjálfur í borginni
Torun.
Ásakanir um
gyðingahatur
Fjölskyldan ætlar
að leita réttar síns
Sögur af hrottalegu drápi hundsins Lúkasar voru uppspuni. Fjölskylda Helga
Rafns Brynjarssonar, sem sakaður var um ódæðið, hefur rætt við lögfræðing og
ætlar að krefjast skaðabóta. Sést hefur til Lúkasar en hann hefur ekki náðst.