Fréttablaðið - 17.07.2007, Side 11

Fréttablaðið - 17.07.2007, Side 11
Þúsundir afkomenda gyðinga, sem lifðu af dvöl í útrýmingarbúðum nasista á tímum seinni heimsstyrjaldarinn- ar, ætla í dag að hefja mál gegn Þýskalandi, sem háð verður fyrir dómstólum í Ísrael. Þeir krefjast skaðabóta fyrir að hafa alist upp í ótta og þunglyndi og vilja að þýsk stjórnvöld borgi fyrir meðferð þeirra hjá geðlæknum. Málshefjendur eru samtals um fjögur þúsund, allt saman börn fórnarlamba helfararinnar. Þjáningar foreldranna hafa komið niður á börnunum, sem eiga erfitt með að lifa daglegu lífi vegna sálartjóns og geta mörg hver ekki stundað reglulega vinnu. Krefjast bóta frá Þýskalandi Sala á bókinni Tinni í Kongó hefur aukist um 3.800 prósent undanfarna daga og bókin er komin í áttunda sæti yfir söluhæstu bækurnar á Amazon. co.uk. Tinni í Kongó komst nýlega í umræðuna vegna kynþáttafor- dóma. Gagnrýnendur segja óviðunandi að „„þeir innfæddu“ í bókinni líti út eins og apar og tali eins og vitleysingar“. Bókin hefur verið fjarlægð úr barnabókadeildum í bókabúðum og bókasöfnum í Englandi og í deild bóka fyrir fullorðna. Tinni í Kongó selst í bíl- förmum Meira en sautján hundruð föngum var sleppt úr breskum fangelsum í fyrstu viku neyðaráætlunar um að létta álag á yfirfullum fangelsum landsins. Þetta eru fyrstu tölur sem birtast um áætlunina sem hófst 29. júní. Samkvæmt henni verða allt að 25.000 pláss losuð árlega í fangelsum. Tæplega 350 dæmdir ofbeldisglæpamenn voru meðal þeirra sem sleppt var allt að átján dögum fyrr. Stjórnarandstædingar gagn- rýndu stjórnvöld fyrir þessar aðgerðir sem þeir sögðu ógna öryggi almennings. Bretar létta á fangelsunum Veiðiþjófnaður í laxveiðiám er orðinn mikið vandamál og ný tilfelli koma reglulega upp. Þrír grunsamlegir menn sáust að veiðum í Ásgarði í Sogi fyrir stuttu. Þegar þeir urðu varir mannaferða hlupu þeir í burtu og komust undan. Ljóst þótti á veiðiaðferðunum að þarna væru ekki byrjendur á ferð því að vaðið var út á réttum stöðum og veitt á líklegum tökustöðum þegar veiðileyfahafa bar að garði. Annað atvik sem gerðist fyrir skömmu var þegar veiðimaður sem staddur var við Alviðru í Ölfusi tók eftir því að bíll stoppaði við Þrast- arlund. Menn fóru þar út og hófu veiðar þrátt fyrir mótmæli veiði- mannsins sem var með löglegt veiðileyfi. Veiðimaðurinn hringdi á lögreglu sem sá sér ekki fært að koma. Forsvarsmenn Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur ræddu við lög- reglu á Selfossi í kjölfar þessa máls. Veiðimenn sem verða varir við veiðiþjófa eru nú hvattir til þess að kalla til lögreglu sem tekur skýrslu af málinu, enda sé um skýrt lögbrot að ræða. „Það eru eingöngu útlendingar sem hafa lent í þessu,“ segir Har- aldur Eiríksson hjá Stangaveiðifé- lagi Reykjavíkur. „Stundum veit fólk ekki betur en oftar er um ein- beittan brotavilja að ræða. Menn hlaupa í burtu og fela veiðistangir þegar þeir sjá til mannaferða.“ Mikið um veiðiþjófnaði í laxveiðiám Velkomin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Umfangsmiklar breytingar hafa staðið yfir á Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðustu misserin. Verslunar- og þjónusturýmið hefur ríflega tvöfaldast og fjölmargir nýir rekstraraðilar bæst í hópinn. Veitingastöðum fjölgar jafnt og þétt og úrval verslana og vöruframboð hefur aldrei verið glæsilegra. Aukið rými og bætt þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Við hvetjum alla farþega til þess að mæta tímanlega og njóta alls þess sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur upp á að bjóða. Hægt er að nálgast upplýsingar um þjónustu flugstöðvarinnar á airport.is. Munið! Innritun hefst 2 tímum fyrir brottför! Fáðu meira – mættu fyrr! Fáðu meira fyrir ferðina ÍS L E N S K A S IA .I S F L E 3 77 03 0 6/ 07

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.