Fréttablaðið - 17.07.2007, Síða 18
Mikið mæðir á undirstöðum
líkamans, ekki síst í gönguferð-
um. Jónína Hallgrímsdóttir,
fótsnyrtir og fótaaðgerðafræð-
ingur, þekkir það úr sínu starfi.
„Þetta er þörf umræða því fólk
stundar svo mikið göngur á þess-
um árstíma og þá verður að sýna
fótunum sérstaka umhyggju,“
segir Jónína þegar hún er beðin að
miðla af sínum viskubrunni. „Mik-
ilvægt er til dæmis að klippa
táneglur áður en haldið er af stað í
fjallgöngu. Annars getur myndast
þrýstingur í naglrótinni þegar
gengið er niður brattar hlíðar og
blætt inn á neglurnar. Það er sárs-
aukafullt. Gúmmíplástur ætti líka
alltaf að vera meðferðis þegar
farið er í langa göngu. Hann er
eins og aukaskinn og getur alveg
tollað á í nokkra daga. Það getur
verið gott að setja hann á álags-
punkta, til dæmis hælana og litlu
tærnar áður en lagt er af stað. Að
minnsta kosti er nauðsynlegt að
hafa hann með og ef fólk finnur
fyrir særindum er mikilvægt að
setja hann á strax. Sigg, til dæmis
á litlu tánni, getur líka orðið til
mikilla óþæginda. Yfirleitt kemur
blaðra undir því og ef hún spring-
ur veldur það bæði sýkingarhættu
og sársauka.“
Jónína rekur fótaaðgerða-nudd-
og snyrtistofuna Jónu bæði í
Tryggvagötu 28 í Reykjavík og
Hamraborg 10 í Kópavogi. Hún
segir marga koma til sín á stofu
eftir gönguferðir sem hefðu betur
komið áður. „Það er sniðugt að
fara í fótsnyrtingu svona viku
áður en lagt er í langar gönguferð-
ir,“ ráðleggur hún. Þótt freistandi
geti verið að smeygja sér úr skóm
og sokkum í miklum sumarhitum
og ganga berfættur segir Jónína
það varhugavert. „Við þurfum oft
að taka glerbrot, hár og flísar úr
fótum fólks hefur gengið berfætt.
Þar af eru glerbrotin hættuleg-
ust,“ segir hún og lýsir því að brot-
in gangi æ dýpra inn í fótinn vegna
álagsins og geti allt í einu farið að
þrýsta á taug.
Talið berst að öðrum fótmeinum
og hættunni á stoðkerfisvanda-
málum í framhaldi af þeim. Ýmis-
legt segir Jónína hægt að leiðrétta
með innleggjum. „Aðalvandamál-
ið í sambandi við fæturna er þó að
flestir skór sem fást í búðunum
eru ekki framleiddir fyrir fætur
heldur fyrir augað. Þeir eru nán-
ast allir of þröngir yfir tærnar,“
segir hún ákveðin. „Svörun líkam-
ans er að mynda harða húð milli
tánna og síðan fer þessi varnarhúð
að meiða. Mér finnst við ekki eiga
að láta bjóða okkur þetta. Við þurf-
um skó fyrir fætur.“
Skórnir ekki framleiddir
fyrir fætur heldur augað
Flestir þekkja óþægindin sem
hljótast af því að fá munn-
angur, sem er sársaukafullt
sár í munni með hvítri áferð, af
óþekktum uppruna. Hugtakið
munnangur er mjög teygjanlegt
og getur verið allt frá minni-
háttar ertingu til krabbameins
í munni.
Helstu einkenni munnangurs eru
lítil og afar viðkvæm sár sem eru
aðskilin hvert frá öðru. Ýmist
getur komið eitt stakt sár eða
mörg í þyrpingum og roði í kring.
Orsakir munnangurs geta verið
margvíslegar og eru ekki enn
þekktar með óyggjandi hætti. Þó
er talið að streita, járnskortur og
vítamínskortur geti stuðlað að
munnangri en einnig getur það
orsakast af áblæstri, síendurteknu
munnangri, sárasótt, lekanda,
þrusku eða annars og hafa flestir
þeirra sjúkdóma önnur líkamleg
einkenni. Séu ekki önnur líkamleg
einkenni til staðar er líklegast að
um áblástur eða síendurtekið
munnangur sé að ræða.
Sárin eru yfirleitt sársaukafull í
þrjá til fjóra daga en læknast jafn-
an á einni til tveimur vikum. Sárin
koma aftur og aftur, stundum um
það bil mánaðarlega eða nokkrum
sinnum á ári og geta verið allt að
tíu til fimmtán talsins í hvert sinn.
Sjúkdómurinn er algengari hjá
konum en körlum og orsök hans er
óþekkt þótt grunsemdir beinist að
eins konar staðbundnu svari
ónæmiskerfisins án þess að um sé
að ræða ofnæmi fyrir einhverju
sérstöku. Ekkert læknisráð er
þekkt sem læknar þennan sjúk-
dóm en talið er að skortur á járni,
B12-vítamíni og fólínsýru geti
gert hann verri. Góð tannhirða er
mikilvæg og auk þess að bursta
tennurnar vel er gott að nota
munnskol tvisvar á dag. Þá er
hægt að fá Bonjela-hlaup í apóteki
en það er hlaup sem er sýkladrep-
andi, bólgueyðandi og staðdeyf-
andi og er notað til staðbundinnar
notkunar í munnholi við munn-
angri, særindum frá gervitönnum
og við óþægindi vegna tanntöku.
Corsodyl er annað hlaupkennt efni
sem virkar gegn ýmsum sveppum
og er meðal annars notað gegn
munnangri og til munnhreinsunar.
Einnig má draga úr óþægindum
vegna munnangurs með ýmsum
verkjalyfjum sem fást án lyfseðils
en rétt er að ráðfæra sig við lyfja-
fræðing um val á lyfjum við munn-
angri og notkun þeirra.
- sig
Munnangur algengara hjá konum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A