Fréttablaðið - 17.07.2007, Page 33
[Hlutabréf]
Einkaneysla virðist hafa aukist á
vormánuðum þessa árs eftir stöðn-
un á fyrsta ársfjórðungi. Nýjar
tölur um veltu debet- og kredit-
korta í júní, sem Seðlabankinn
birti nýverið, gefa vísbendingu
um þetta.
Heildarkreditkortavelta lands-
manna, leiðrétt fyrir breytingum í
verðlagi og gengi, jókst um ríflega
sjö prósent að meðaltali á öðrum
ársfjórðungi samanborið við sama
ársfjórðung í fyrra. Innlend kred-
itkortavelta jókst um 5,2 prósent á
fjórðungnum og debetkortavelta í
innlendum verslunum jókst um
0,9 prósent en hafði dregist saman
um 5,6 prósent á fyrsta ársfjórð-
ungi.
Í Morgunkorni Glitnis segir að
kreditkortavelta, ásamt debet-
kortaveltu í innlendum verslun-
um, sé allgóður mælikvarði á
þróun einkaneyslu hérlendis. Þá
séu einnig aðrar vísbendingar um
að einkaneysla hafi aukist. Svo
sem hraðar launahækkanir að
undanförnu, lítið atvinnuleysi,
mikil dagvöruvelta, nýskráningar
bifreiða og innflutningur á
almennum neysluvörum.
Vísbendingar um
aukna einkaneyslu
Reynsla af stjórnun og eignarhald skipta
meira máli en menntun þegar kemur að vali
í stjórnir fyrirtækja. Þetta sýnir ný saman-
tekt Samtaka atvinnulífsins á upplýsingum
um bakgrunn stjórnarmanna í fimmtán
stórum fyrirtækjum á íslenska hlutabréfa-
markaðnum.
Samantektin sýnir að yfir 95 prósent
stjórnarmanna þeirra fyrirtækja sem skoð-
uð voru hafa reynslu af stjórnarsetu. Þeir
hafa því setið í stjórn annarra fyrirtækja
áður eða búa yfir reynslu af rekstri fyrir-
tækja. Rúmlega tveir þriðju hlutar stjórn-
armanna sitja jafnframt í stjórn fleiri en
eins fyrirtækis. 65 prósent stjórnarmanna
eru sjálfir hluthafar í fyrirtækjunum eða
sitja í stjórn fyrir hönd ákveðinna eigenda.
Formleg menntun virðist ekki ráða eins
miklu þegar kemur að vali í stjórnir. Tæp-
lega þriðjungur stjórnarmannanna hefur
ekki menntun sem tengist starfsemi fyrir-
tækjanna. Af 85 stjórnarmönnum hafa 28
lokið þriggja ára háskólanámi eða sambæri-
legri menntun en 32 hafa lokið framhalds-
námi á háskólastigi.
Reynslan er aðalatriðið
Novator, fjárfestingarfélag Björ-
gólfs Thors Björgólfssonar, hefur
tryggt sér vilyrði fyrir yfir 90 pró-
sentum hlutafjár í Actavis, að teknu
tilliti til eigin hluta og hluta í eigu
Novators, að því er fram kemur í
tilkynningu félagsins. Með þessu
lýkur yfirtökuferli Novators þar
sem við 90 prósenta markið verður
til söluskylda hjá eftirstandandi
hluthöfum. Yfirtökutilboð Actavis
hljóðaði upp á 1,075 evrur á hlut.
„Samkvæmt yfirtökutilboði
Novator rennur tilboðsfrestur út
miðvikudaginn 18. júlí næstkom-
andi. Þeir hluthafar sem hafa ekki
samþykkt tilboðið hafa frest fram
til þess tíma til að ganga frá sam-
þykki á grundvelli tilboðsins, að
öðrum kosti öðlast þeir ekki rétt til
viðbótargreiðslu ef Novator selur
hlut sinn innan 12 mánaða,“ segir í
tilkynningu félagsins.
Björgólfur Thor Björgólfsson er
að vonum feginn að nú sjái fyrir
endann á yfirtökuferlinu á Actavis.
„Gott er að vera búinn með þetta til
að geta einbeitt sér að sókninni,“
segir hann og bætir við að hjá Act-
avis taki nú við keyrsla á þeirri við-
skiptaáætlun sem byggð hafi verið
upp undanfarin ár. „Ég vil hins
vegar nota tækifærið og þakka
hluthöfum sem staðið hafa með
okkur í þessari fjárfestingu,“ segir
Björgólfur og bendir á að verðmæti
Actavis hafi 28-faldast fá árinu
1999. „Þúsundir Íslendinga hafa
mokgrætt á þessu. Þeim þakka ég
fyrir samferðina, enda hefur verið
gaman að taka þátt í þessu.“
Yfirtöku á Actavis að ljúka
Novator hefur náð 90 prósenta markinu þannig að söluskylda myndast hjá rest.