Fréttablaðið - 17.07.2007, Side 38
Fegurðardrottningin Unnur
Birna Vilhjálmsdóttir hefur
tekið að sér að vera nokkurs
konar andlit Icelandic
Glacial, íslenska vatnsins
sem Jón Ólafsson og fleiri
athafnamenn standa á bak
við.
Unnur hefur gert samning við fyr-
irtækið til nokkurs tíma en í
honum felast bæði myndatökur og
ýmis ferðalög. Í síðustu viku fór
Unnur Birna út á land ásamt fríðu
föruneyti í þeim tilgangi að taka
myndir í kynningarefni fyrir vatn-
ið. „Við fórum fyrst að Brúarár-
fossi og eyddum þar heilum degi,“
segir Unnur. „Svo keyrðum við í
átt að Kirkjubæjarklaustri, gist-
um þar í eina nótt og eyddum
næsta degi við tökur hjá Jökulsár-
lóni.“
Ef fall reynist vera fararheill á
Unnur góða tíma í vændum því
eftir tökur við Sólheimajökul
mátti litlu muna að hún félli í
ískalda jökulá. „Það er ekki hægt
að komast á fallegasta staðinn
nema vaða ána upp í mitti. Þrír
vaskir menn voru klæddir upp í
vöðlur og fengnir til þess að bera
fólkið yfir. Ég reið á vaðið og fór
fyrst en það vildi ekki betur til en
svo að hann datt með mig þegar
það var ekki nema eitt skref eftir í
land,“ segir Unnur og hlær. „Hann
var með mig á hestbaki og datt
aftur fyrir sig. Sem betur fer náði
hann að sleppa fótunum á mér
þannig að ég blotnaði bara rétt
upp að hnjám. Við erum búin að
hlæja mikið að þessu.“
Unnur segir að samstarfið við
Icelandic Glacial hafi verið lengi í
burðarliðnum. „Það er rúmt ár
síðan þeir höfðu samband við mig
en svo tafðist þetta eins og geng-
ur. Þeim hefur gengið vel að selja
vatnið bæði í Bandaríkjunum og
Bretlandi og nú vilja þeir fá mig
með sér út á ýmsar uppákomur til
þess að kynna vöruna.“ Icelandic
Glacial er nú selt víða í Evrópu,
Kanada og Bandaríkjunum.
„Ímynd Íslands er mikið notuð til
kynningar á vatninu enda er alls
ekki sjálfsagt að geta drukkið úr
ám og lækjum hvar sem maður
kemur,“ segir Unnur. Hún fékk
sjálf senda marga kassa af vatn-
inu. „Maður er búinn að ganga um
með flösku sér í hönd síðastliðna
mánuði. Þetta er virkilega gott
vatn, bara eins og beint úr dýr-
mætri náttúru okkar Íslendinga.“
Auk þess að sinna fyrirsætu-
störfum hefur Unnur kennt dans í
tengslum við Dansskóla Birnu
Björnsdóttur í sumar og verið
leiðsögumaður hjá Íshestum. Hún
segist vera nýkomin í sumarfrí.
„Annars hef ég verið mikið fyrir
austan fjall þar sem föðurfjöl-
skyldan á jörð rétt hjá Hvolsvelli.
Mér finnst alveg jafngott að vera
þar og keyra í bæinn ef ég þarf að
vinna. Um daginn fór ég svo á
Hróarskeldu. Það var vissulega
blautt en ekkert sem aftraði okkur
frá því að skemmta okkur vel.“
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum á Unnur Birna von á syst-
kini í lok október þar sem móðir
hennar, Unnur Steinsson, er barns-
hafandi. „Mér líst virkilega vel á
það,“ segir Unnur og tilhlökkunin
leynir sér ekki. „Þetta er orðin
stór fjölskylda enda eiga mamma
og Ásgeir sjö börn í allt þegar fjöl-
skyldumeðlimurinn væntanlegi er
meðtalinn. Þetta verður rosalega
spennandi.“
Breska leikkonan Sienna Miller
hefur sagt skilið við kærasta sinn,
söngvarann James Burke. Að
sögn náins vinar Burkes var það
fjarlægðin á milli þeirra sem
hafði
úrslitaáhrif á
þessa
ákvörðunar-
töku. „Hún er
í London og
hann í New
York og það
getur oft
verið erfitt að
tala bara
saman í
gegnum
síma,“ sagði
vinurinn.
Að öllum
líkindum
hefur meint
daður Siennu
og rapparans
P. Diddy
einnig haft
eitthvað með
málið að gera
en nýlega sagði
eiginkona
Diddy skilið
við rapparann og bar fyrir sig
óásættanlegan ágreining. Fyrir
nokkru birtust myndir af þeim í
heldur nánum samræðum og fóru
fljótlega á kreik þær sögusagnir
um að þau væru að stinga saman
nefjum.
Sienna laus
og liðug
Bandaríska ungstirnið Lindsay
Lohan hefur lokið við sex vikna
meðferð hjá meðferðarheimilinu
Promises. Lindsay gekk út á
föstudaginn og hyggst taka líf sitt
föstum tökum ef marka má
yfirlýsingu úr hennar herbúðum.
„Hún verður að
fylgja eftir mjög
stífri dagskrá sem
felst meðal annars
í sér AA-fundi og
strangt eftirlit,“
segir í yfirlýsingu
frá talsmanni
leikkonunnar.
Lohan mun
jafnframt bera
ökklaband sem
mælir áfengi í
líkama hennar en
leikkonan bauðst til þess sjálfvilj-
ug. „Hún vill ekki að fjölmiðlar
fari að kokka upp einhverjar
fréttir ef hún sést á skemmtistað,
bar eða öðrum stöðum þar sem
borið er fram áfengi.“
Lindsay laus
Miðasala á tónleika Kim Larsen
og hljómsveitarinnar Kjukken í
Vodafonehöllinni 24. nóvember
hefst í dag klukkan 10. Kim
Larsen og félagar hafa verið á
tónleikaferð um Danmörku að
undanförnu sem verður fram
haldið um Norðurlöndin í haust.
Verða lokatónleikarnir í ferðinni á
Íslandi. Nýjasta plata Larsens og
Kjukken, Gammel hankat, kom út
fyrir síðustu jól og fékk hún mjög
góða dóma hjá gagnrýnendum.
Miðaverð á tónleikana hér á
landi er 5.900 í sæti og 4.900 í
stæði og fer miðasala m.a. fram á
midi.is. Larsen hélt þrenna
tónleika hérlendis fyrir tveimur
árum sem vöktu mikla lukku og
því verður væntanlega hart barist
um miðana í þetta sinn.
Hart barist
um Larsen
Vertu með frá byrjun
Við leitum að kraftmiklu og hressu fólki
sem vill takast á við áskorun í starfi.
Starfið felur í sér að veita viðskiptavinum
NOVA ráðgjöf í tengslum við hina nýju
3G þjónustu fyrirtækisins.
Við leggjum áherslu á gott og
skemmtilegt starfsumhverfi hjá nýju
og spennandi fyrirtæki.
NOVA er nýtt 3G félag sem mun bjóða
nýja tegund farsíma- og netþjónustu
síðar á þessu ári. 3G mun breyta með
hvaða hætti fólk á í samskiptum, miðlar
upplýsingum og afþreyingu.
Vilt þú takast á við nýja og skemmtilega
hluti að loknu sumarfríi og ganga til liðs
við NOVA?
NOVA · Sætúni 8 · 105 Reykjavík · Sími 517 6660 · nova.is
Verslanir
NOVA leitar að öflugum sölu-
og þjónusturáðgjöfum í verslanir.
Hæfniskröfur
Lífsgleði og jákvætt viðhorf.
Góð tölvukunnátta.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
Nánari upplýsingar á nova.is
Sölu- og þjónustuver
NOVA leitar að öflugum sölu- og
þjónusturáðgjöfum í sölu- og þjónustuver.
Vinnutími
Unnið er á vöktum.
Í boði er fullt starf og hlutastarf.
Nýir starfsmenn munu fá yfirgripsmikla þjálfun
áður en þeir hefja störf.
Áhugasamir sendi inn ferilskrá með upplýsingum
um menntun og fyrri störf á netfangið
nova@nova.is fyrir 1. ágúst nk. Gætt verður
fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir.