Fréttablaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 48
Sældarlíf í framandi löndum getur reynt á taugar einfaldra
sála. Ég hef ánægju af því að dreypa
á góðum vínum en á erfitt með að
taka þátt í stásslegum umræðum
um blæbrigði þeirra. Það sem vín-
gæðingar segja keim af sólberja-
laufum þykir mér kattahlandsfnyk-
ur, það sem fínna fólk segir angan
af leðri minnir mig á lyktina sem
tók á móti mér í útihúsunum þegar
ég gaf skepnunum sem barn. Ég er
allt of einföld sál að njóta þess að
aka um grænar flatir til þess eins
að koma hvítri kúlu ofan í holur. Og
snekkjuferðir mínar hafa hingað til
endað með því að ég ligg út yfir
borðstokkinn spúandi.
vil ég taka fram að ég er ekki
gefin fyrir meinlætalíf, ó nei, ég
sætti mig ekki við að vera ýtt út í
horn og tek mér Hallgerði
Höskuldsdóttur til fyrirmyndar.
kvenhetja Íslend-
ingasagnanna sætti sig ekki við að
góða osta vantaði í bú hennar held-
ur lét útvega þá með óhefðbundn-
um leiðum. Hún tók ekki undir
örvæntingafulla bón eiginmanns-
ins um að skerða hár sitt fyrir
ónothæfan bogastreng. Hallgerður
hefði ekki heldur ekki látið narra
sig út í fáfengilega samkvæmis-
leiki eins og „Hvaða keim finnur
þú af gamla rauðvíninu?“ Hún var
stolt búkona sem lét fínheit og vin-
sældir eiginmannsins ekki hafa
áhrif á sig.
þessarar mögn-
uðu hetju Íslendingasagnanna, þykir
mér ekki minnst með nægilega
afgerandi hætti í íslenskum sam-
tíma. Til að heiðra minningu hennar
hlóðum við vinkonurnar vörðu í
Laugarnesi fyrir nokkrum árum.
er dásamlegt land, í nátt-
úrunni er enn sál. Blásnar hæðir,
dulmagn hverfandi jöklanna, kyrrð
öræfanna og fínleiki flórunnar eru
fylla mig slíkri andakt að ég kæri
mig kollótta um hvort líf taki við á
eftir þessu eður ei. Þessi miklu
auðæfi sem við eigum verða þó enn
verðmætar ef maður þekkir sög-
una sem lifir í henni.
er fegurri vegna
sagna Njálu. Drangey hrikalegri
vegna Grettlu, Geirþjófsfjörður
magnaður vegna Gíslasögu, Breið-
dalur stórkostlegri vegna Hrafn-
kötlu. Helgafell helgara vegna
Eyrbyggju, (reyndar er Hvanna-
dalshnúkur lægri úfaf sögum Hall-
dórs Ásgrímssonar af nokkrum
sentímetrum.)
til vill eiga afkomendur mínir
eftir að ganga upp Hlíðarfjall, í
hljóðri andtakt, í leit að slóðum
hins merka villihunds Lúkasar.
Hundsins sem sýndi okkur að
sagnahefð Íslendinga og illmælgi
Lyga-Marðar er ekki dauð.
sem var hundeltur
vegna grunsemda um að hann ætti
þátt í meintum dauða Lúkasar á
margt sameiginlegt með örlögum
Gísla Súrssonar. Gísli komst ekki
lifandi niður af fjallinu undan óvild-
armönnum sínum eftir að hafa verið
saklaus í felum. Vonandi spinna
örlaganornirnar piltinum og Lúkasi
fínlegri þræði en þá sem Gísli
hlaut.
Lúkas og sagna-
hefðin lifa enn
Verðið á Volkswagen Golf hefur aldrei verið hagstæðara. Taktu gæðin
og glæsileikann með í reikninginn og þú sérð að þetta er tækifæri sem
borgar sig að grípa. Komdu, reynsluaktu og tryggðu þér Golf.
Gerðu bílinn enn glæsilegri með sportpakka að verðmæti 280.000 kr.
• 16" álfelgur • sóllúga • leðurstýri • þokuljós
• armpúði milli framsæta • samlitur
Golf Trendline kostar aðeins 25.490 kr. á mánuði.*
1.9
9
8
.0
0
0
kr.
*M
.v
. 1
0%
ú
tb
o
rg
u
n
o
g
b
íl
as
am
n
in
g
SP
t
il
8
4
m
án
að
a.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
8
4
4
Volkswagen Golf er grænn bíll
HEKLA greiðir fyrir kolefnisjöfnun allra nýrra Volkswagen-bíla í eitt ár. Kolefnisjöfnun
felst í því að binda samsvarandi magn gróðurhúsalofttegunda og bíllinn gefur frá sér.
Þetta gerum við með skógrækt og landgræðslu.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is