Fréttablaðið - 30.07.2007, Qupperneq 30
TILKYNNINGAR
Blikahólar 4
111 Reykjavík
4ra herb.- útsýni - bílskúr
Stærð: 104 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 1974
Brunabótamat: 16.720.000
Bílskúr: Já
Verð: 23.900.000
Verulega góð og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 5.hæð í lyftublokk með stórkostlegu útsýni yfir Reykjavík.
Forstofa með flísum á gólfi. Eldhús var allt tekið í gegn árið 2006 og er með ljósri innréttingu frá HTH, keramik
eldavél frá AEG, háfi yfir eldavél og flísum á milli skápa og flísum á gólfi. Baðherbergi var allt endurnýjað árið
2006 og er með ljósri innréttingu, baðkari, tengi f. þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi. Stofa / borðstofa með
nýlegu eikarparketi á gólfi og útgengi út á svalir með útsýni yfir Reykjavík. Innihurðir og hurðarkarmar eru nýlegir
og eru úr eik. Geymsla er í sameign. Bílskúr með heitu/köldu vatni og rafmagni.
Búi
Þórður Grétarsson
Lögg. fasteignasali
Lóa Sveinsdóttir
Sölufulltrúi
thordur@remax.is
loa@remax.is
Opið
Hús
Opið hús í dag frá kl. 18:00 - 19:00
RE/MAX Búi - Stórhöfða 17 - 110 Reykjavík - Sími: 5209400 - www.remax.is
520 9400
698 87 33
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
Gunnar
Sölufulltrúi
899 0800
Stefán Páll
Löggiltur
fasteignasali
Stórglæsileg 165 fm2 íbúð í tvíbýlishúsi
Allar RE/MAX fasteignasölur eru sjálfstætt reknar og í einkaeign
BÓAS 699 6165 & GUNNAR 899 0800 SÝNA EIGNINA
• Fimm herbergja, stórar svalir yfir bílskúr
• Var nýlega sýnd í þættinum Innlit / Útlit
• Verð: 43.900.000
Krókavað 15, 110 Árbær - 5 herb.
Fasteignir
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í
Reykjavík.
Keilugrandi 1
Tillaga að breytingu á núgildandi deiliskipulagi fyrir
svæði við Eiðsgranda, Boðagranda, Fjörugranda,
Keilugranda vegna lóðarinnar að Keilugranda 1.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að á lóðinni að
Keilugranda 1, sem afmarkast af Eiðsgranda,
Fjörugranda og aðliggjandi húsum við Boðagranda,
megi fjarlægja núverandi byggingar (skemmu) og
byggja íbúðarhús. Byggingin verður fjórar hæðir að
Keilugranda, Fjörugranda og Boðagranda og allt að
níu hæðum við Eiðsgranda. Bílakjallari verður undir
húsinu, á tveimur hæðum, og er gert ráð fyrir að öll
bílastæði og gestabílastæði verði neðanjarðar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Samhljóða auglýsing birtist þann 13. júlí sl. fyrir
mistök og er því tillagan nú auglýst að nýju með
nýjum athugasemdarfresti.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 30 júlí
2007 til og með 10. september 2007. Einnig má
sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.
is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum við tillöguna skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 10.
september 2007.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir inn-
sendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 30. júlí 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið