Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 6
R V 62 37 Rekstrarvörur 1982–200725ára Bjarni Ómar Ragnarsson - verslunarstjóri hjá RV Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur – fyrir sumarbústaðinn og veiðihúsið Talsvert fleiri fóru í liðþófanám og gallblöðrunám miðað við höfðatölu á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum árið 2004. Þetta kemur fram í sam- antekt Landlæknis á skurðaðgerð- um á Íslandi árin 2000 til 2005. Liðþófaaðgerðir eru sex sinnum algengari á Íslandi en í Svíþjóð, svo dæmi sé tekið. „Árangurinn til langs tíma er oft sá sami hvort sem beitt er skurðaðgerð eða íhaldssamari stefnu,“ segir Matthías. „Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er mjög gott á Íslandi, allir komast að til sérfræðinga og í rannsókn- ir,“ segir Matthías. „Svo er tiltölu- lega gott aðgengi á spítalana líka og enginn biðlisti eftir svona aðgerð til dæmis.“ Aðgengi að sérfræðingum, sjúkrahúsum og rannsóknum skiptir miklu máli hvað varðar fjölda aðgerða, að sögn Matthías- ar. „Hér á Íslandi erum við með dýra heilbrigðisþjónustu sem er mjög aðgengileg, þó það séu bið- listar á ákveðnum sviðum.“ Meira af aðgerðum á liðþófa Tvær ungar konur réðust á 27 ára konu í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt. Þær rifu í hár hennar, skelltu henni í götuna og drógu hana á hárinu. Önnur þeirra beit síðan í eyra konunnar. Vitni sagðist hafa séð bút bitinn út eyranu. Ekkert segir um það í lögregluskýrslu. Svo virðist sem árásarkonurnar hafi ætlað að ryðjast fram fyrir hina í röðinni, hún hafi gert athugasemd við það og þær hafi þá ráðist á hana. Vitni sáu konurnar hlaupa af vettvangi. Skýrslur hafa verið teknar af þeim og rætt verður við konurnar þegar til þeirra næst. Konan leitaði sér aðhlynningar á slysadeild. Rifu í hár og bitu í eyra konu „Finnst ekki öllum bjór góður?“ segir Björgvin Rúnars- son, framkvæmdastjóri 2B Comp- any, sem áformar að reisa bjór- verksmiðju í Vestmannaeyjum. Verið er að kanna hvort hag- kvæmt sé að reisa verksmiðjuna, sem tappar á fyrstu flöskurn- ar næsta sumar ef allt gengur eftir. „Við erum mjög spenntir fyrir þessari hugmynd, ásamt öllum sem eru með okkur í þessu,“ segir Björgvin. Hann vill þó ekki strax gefa upp hverjir standa að baki verkefninu fjár- hagslega. „Þegar allt er komið á hreint til- kynnum við ákvörðunina form- lega ásamt nafninu á bjórnum, sem tengist Vestmannaeyjum. Hann heitir samt ekki Lundi eða eitthvað þannig.“ 2B Company er staðsett á Sel- fossi og hefur mestmegnis séð um viðburði og útgáfumál. Fyrirtækið hélt meðal annars sýninguna Árborg 2007 í sumar og tónleika með hljómsveitinni TOTO fyrr í þessum mánuði. „Við erum bæði fjárfestingarfé- lag og útgefandi, og höfum mikinn áhuga á þessu verkefni. Vest- mannaeyjar völdum við vegna þess að fjölskyldur okkur eru ætt- aðar þaðan, og við viljum efla atvinnulífið í Eyjum,“ segir Björg- vin að lokum, spurður af hverju Vestmannaeyjar urðu fyrir valinu með staðsetningu. Flokkur Shinzo Abe, for- sætisráðherra Japans, Frjálslynda demókrataflokksins, beið afhroð í kosningum til efri deildar þings- ins sem fram fóru á sunnudag. Vegna þessa spáðu sumir því að Abe kæmi til með að segja af sér, en svo virðist sem ekki verði af því. Þegar Abe tók við stöðu forsæt- isráðherra Japans í september í fyrra, sagðist hann meðal annars ætla að vinna í því að byggja upp fagurt land. Hann náði síðan almennri hylli þegar honum tókst að bæta stjórnmálasamband Jap- ans við Kína og Suður-Kóreu. Ánægjan með Abe og flokk hans varði þó stutt. Í kjölfars ýmissa hneykslismála hefur pólítísk staða forsætisráð- herrans verið ótrygg um nokkurt skeið. Tveir af ráðherrum Abe hafa til að mynda sagt af sér vegna ásakana um misnotkun á almanna- fé. Í maí síðastliðnum framdi síðan Toshikatsu Matsuoka heilbrigðis- ráðherra sjálfsmorð þegar til stóð að yfirheyra hann vegna gruns um að hafi þegið fé frá verktökum, sem höfðu unnið talsvert fyrir ríkisfyrirtæki. Þá gagnrýndi bæði stjórnarand- stæðan og almenningur það harð- lega þegar gögn fimmtíu milljóna ellilífeyrisþega gufuðu upp eins og dögg fyrir sólu. Abe lét þessar gagnrýnisraddir sér eins og vind um eyru þjóta, en virðist nú hafa sopið seyðið af eigin oflátungs- hætti. Flokknum hafði því lengi verið spáð löku gengi en menn áttu ekki von á útkoman yrði Abe og flokkn- um jafn óhagstæð. Er hún sú versta í sögu flokksins, sem hefur setið í stjórn samfellt allt frá árinu 1955. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem flokkurinn bíður hnekki í kosningum. Árið 1998 sagði þáver- andi forsætisráðherra Ryutaro Hashimoto af sér þegar flokkur- inn 44 af 121 sæti. Níu árum áður missti Sousuke Uno stöðu sína sem forsætisráðherra eftir að hafa náð aðeins 36 sætum. Sjálfur sagði Abe upp sem aðalritari flokksins árið 2004, þegar flokkur hans ætlaði sér 51 sæti en náði eingöngu 49. Margir biðu því spenntir eftir því hvort Abe kæmi til með að segja starfi sínu lausu, eftir að úrslitin voru kunngjörð og jap- anski lýðræðisflokkurinn hafði náð flestum þingsætum í efri deildinni. Þegar til kastanna kom reyndist forsætisráðherrann ekki á þeim buxunum að segja af sér, þrátt fyrir að taka fulla ábyrgð á ósigrinum. Tilkynnti Abe, heldur þungbú- inn á svip, að hann kæmi áfram til með að vinna að umbótamálum og uppfylla skyldur sínar sem for- sætisráðherra Japans. Ætlar ekki að segja af sér Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, og flokkur hans biðu afhroð í kosningum til efri deildar þingsins sem fram fóru í gær. Pólitísk staða forsætisráðherrans hefur verið ótrygg um nokkuð skeið vegna hneyksla. Ertu hlynnt(ur) því að NATO hafi eftirlit með íslenskri loft- helgi? Telurðu að reykingabannið á skemmtistöðum hafi gefist vel? Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, flaug í gær til Bandaríkjanna til að funda með George Bush forseta. Áður en Brown flaug af stað reyndi hann að slá á sögur um kólnandi samskipti þjóðanna. Þetta var fyrsta ferð Brown til Bandaríkjanna eftir að hann tók við embætti forsætisráðherra af Tony Blair. Á fundi sínum í gær ætluðu leiðtogarnir tveir meðal annars að ræða Íraksstríðið þar sem Brown er talinn vilja fækka breskum hermönnum þar. Enn öflug samvinna

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.