Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 48
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is Þótt Reykjavík sé að mörgu leyti ágæt skortir hér töluvert upp á boðlega aðstöðu fyrir millj- arðamæringa. Til dæmis vantar almennilegar hallir. Eina höllin sem stendur undir nafni er Sund- höllin og hún er notuð handa skítugum almenningi að baða sig. Við endann á Aðalstræti er reynd- ar lægsti skýjakljúfur heims sem hlaut nafnið Morgunblaðshöllin. Það var vegna þess að þegar hún var reist höfðu Íslendingar aldrei séð hallir og vissu ekki hvernig slíkar byggingar litu út. milljarðamæring í hús- næðishraki er fátt um fína drætti í Reykjavík. Til marks um það má nefna að einn slíkur ætlar að gera sér það að góðu að kúldrast í gamla Bæjarbókasafninu við Grundarstíg sem er innan við fimmhundruð fermetrar á stærð. hefði verið fyrir milljarðamæring sem lang- aði til að búa í gömlu almennings- bókasafni að kaupa Þjóðarbók- hlöðuna og innrétta hana upp á nýtt. Þar eru nóg bílastæði, aðstaða fyrir kastalasíki með vindubrú og pláss fyrir þyrlupall og stutt niður á flugvöll í einka- þotuna. er kominn tími til að hætta sífelldu sífri um að eitthvað þurfi að gera fyrir gamalmenni, öryrkja og alls konar lúsera sem kallast einu nafni „jaðarfólk“. Það eru manneskjur sem ekkert mark er takandi á en hafa samt atkvæðis- rétt. Vissulega þarf að leysa hin örsmáu vandamál fátæklinga en meira aðkallandi er þó að snúa sér að hinum stóru vandamálum ríka fólksins. hin nýja stétt milljarða- mæringa sé minnihlutahópur enn sem komið er ber að taka tillit til þeirra sérþarfa sem auðnum fylgja. Við eigum ekki að spyrja hvað milljarðamæringarnir geti gert fyrir okkur heldur hvað við getum fleira gert fyrir milljarða- mæringana. Hér þarf að einka- væða þær fáu stórbyggingar sem þjóðin státar af og væru boðleg húsakynni fyrir þetta fólk. Ekki mundi heldur kosta mikið að fletta malbikinu af helstu götum borg- arinnar svo að raunveruleg þörf verði fyrir alla Porsche- og Hummer-jeppana og torfærutröll- in sem hin nýja stétt hefur fjár- fest í. Jafnrétti er ekki bara rétt- lætiskrafa fátæklinga heldur líka hinna nýríku. Milljarðamæringar allra landa sameinist! Milljarðamær- ingaávarpið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.