Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 30.07.2007, Blaðsíða 38
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10 THE SIMPSONS MOVIE LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10 THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10 EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 6 - 8 - 10 DIE HARD 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 MIÐASALA Á THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl.6.30 - 8.30 - 10.30 DEATH PROOF kl. 5.20 - 8 - 10.40 TAXI 4 kl. 8 - 10 DIE HARD 4.0 kl. 5.20 - 8 - 10.40 FANTASTIC FOUR 2 kl. 5.4514 16 14 14 16 16 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10 THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6 - 8 DEATH PROOF kl. 10 16 !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10 THE SIMPSONS MYNDIN ÍSL. TAL kl. 6 DEATH PROOF kl. 10.15 1408 kl. 8 SIMPSONS enskt tal kl. 4, 6, 8 og 10 L SIMPSONS íslenskt tal kl. 4 og 6 L DEATH PROOF kl. 7.30 og 10 16 1408 kl. 8 og 10 16 SHREK 3 íslenskt tal kl. 4 og 5.45 L www.laugarasbio.is - Miðasala á - bara lúxus LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR Sími: 553 2075 VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SHREK, Fíóna, Stígvélaði kötturinn og Asninn eru mætt aftur í skemmtilegasta ævintýri allra tíma ÁLFABAKKA DIGITAL KRINGLUNNI VIP KEFLAVÍK AKUREYRI www.SAMbio.is 575 8900 BLIND DATING kl. 8 10 SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 2 - 4 - 6 L SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 - 10:10 L OCEAN´S 13 kl. 10:10 7 GEORGIA RULES kl. 8 - 10:20 7 HARRY POTTER 5 kl. 6 - 9 10 SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L GEORGIA RULES kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 7 HARRY POTTER 5 kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 10 HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 10 HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 L GEORGIA RULES kl. 5:30 - 8 - 10:30 7 HARRY POTTER 5 kl. 5:20 - 8 - 10:40 10 SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 L PIRATES 3 kl .10 10 THE SIMPSONS ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10 L HARRY POTTER 5 kl. 8 10 SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L „Þetta er litrík plata og margir mismunandi hljóðheimar í gangi. Lögin eru mjög ólík, líklega af því að listamennirnir eru svo ólíkir,“ segir Óli Björn Ólafsson um nýút- komna geislaplötu sína, Steypu, sem inniheldur tónlist úr sam- nefndri heimildarmynd. Myndin fjallar um íslenska samtímamynd- list og myndlistarmenn og verður frumsýnd í haust. „Ég samdi tónlistina með það í huga að hún gæti staðið ein. Ég hef alltaf hlustað mikið á kvik- myndatónlist og er mjög hrifinn af þessu formi,“ segir Óli. Hann segir að hún sé þó öll unnin út frá myndefninu og hann hafi látið það stjórna ferðinni og því séu lögin svona ólík. „Þegar ég sá myndlist- ina fékk ég oft mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig tónlistin ætti að vera. Til dæmis kallaði gjörningur Gjörningaklúbbsins strax á kór og málverk eftir Hugin Þór Arason báðu um rafhljóð. Í sumum senunum vildi ég svo bara hart teknó.“ Óli hefur starfað með fjölmörg- um hljómsveitum og einnig samið töluvert fyrir leikhús. Þetta er fyrsta myndin sem hann semur tónlist fyrir. Hann segir það mjög ólíkt að semja fyrir leikhús og kvikmynd. Það sé eins og munur- inn á að semja við málverk eða bók. „Í leikhúsi skiptir dramatísk framvinda verksins öllu máli þegar maður semur tónlistina. Þegar ég var að vinna við þessa mynd gat ég hins vegar miklu meira leikið mér með mismunandi stemningu því allir listamennirnir hafa skapað sína ólíku heima í list- sköpun sinni sem höfðu svo áhrif á tónlistina.“ Óli Björn spilar á Innipúkanum um verslunarmannahelgina sem verður haldin á nýja tónleika- staðnum Organ í Hafnarstræti. Hann verður með fimm manna hljómsveit með sér en ætlar að sleppa kórnum í þetta skipti. Óli Björn gefur út Steypu Mike Einziger, gítarleikari rokk- sveitarinnar Incubus, er um þessar mundir að semja sinfóníu. Einziger hófst handa við verkið í mars eftir að hann þurfi að gang- ast undir aðgerð og gat ekki spilað á gítarinn sinn í nokkra mánuði. „Ég ákvað að fræðast um tónlist á nýjan leik. Eftir að ég byrjaði á sinfóníunni komst ég fljótlega að því að það var margt sem ég vissi ekki,“ sagði Einziger, sem spilaði með Incubus í Laugardalshöllinni fyrr á árinu. „Verkið verður lík- lega í þremur hlutum og alls fjöru- tíu mínútna langt. Þetta er krefj- andi verkefni en ég er mjög spenntur fyrir því.“ Incubus-sinfónía í smíðum Kvikmyndar um Simpson-fjöl- skylduna hefur verið beðið með eftirvæntingu um nokkurra ára skeið, frá því að sögusagnir fóru á kreik um að skapari samnefndra sjónvarpsþátta, Matt Groening, hygðist gera ævintýrum fjölskyld- unnar skil á hvíta tjaldinu. Biðin er nú loks á enda og það sem meira er, þá talar fjölskyldan reiprenn- andi íslensku. Hér verður ekki farið mörgum orðum um söguþráðinn sjálfan, annað en hvernig Simpson-fjöl- skyldan fær það hlutskipti að bjarga heimabænum Springfield frá tortímingu bandarískra stjórn- valda, sem vilja með því að eyða bænum kom í veg fyrir mengun- arslys. Það var fyrirfram vitað mál að þrátt fyrir langvarandi vinsældir Simpson-fjölskyldunnar, gæti orðið erfitt að sannfæra áhorfend- ur um að borga sig inn á myndina. Í fyrsta lagi byggist myndin á sjónvarpsþáttum sem hófu göngu sína árið 1989 og veltu margir fyrir sér hvort myndin hefði ein- hverju nýju við þá að bæta. Hvort útkoman yrði einfaldlega ekki sjónvarpsþáttur í lengri kantin- um. Í öðru lagi hefur teiknimynda- gerð fleygt ótrúlega fram frá því að sjónvarpsþættirnir litu dagsins ljós. Teiknimyndir í tvívídd þykja ekki standast samanburð við tölvuteiknaðar myndir eins og Toy Story, Finding Nemo og Shrek, sem eru á köflum svo raunveru- legar að það er nánast óhugnan- legt. Því voru vangaveltur uppi um hvort Groening héldi tryggð við upprunalegt útlit þáttanna, sem gæti um leið orðið hugsanlegur bana- biti myndarinnar. Eða hvort hann innleiddi nýjustu tækni svo að áhorfendum gæfist þá færi á að sjá Hómer ropa í þrívídd. Aðdáendur þáttanna fögnuðu því margir hverj- ir ákaft þegar ljóst lá fyrir að Groening hygðist halda sínu striki með því að halda sig við tví- víddina. Í því tilviki er líka alveg óhætt að segja að áhættan hafa borgað sig, þar sem myndin er vel teiknuð og tekur þáttunum að mörgu leyti fram hvað því viðvík- ur. Meiri vinna hefur verið lögð í ýmis smáatriði. Hreyfingarnar eru á köflum langt um betri en áður hefur sést og víðskotin fleiri, þannig að áhorfandinn fær á til- finningunni að heimsmyndin sé stórbrotnari. Sem eru allt saman ágætis aðferðir til að sýna að tví- víddin er langt frá því að vera úrelt, auk þess sem það hæfir yfir- færslunni frá sjónvarpi yfir á hvíta tjaldið. Síðan er það aftur spurningin hvort myndin sé einfaldlega lang- ur sjónvarpsþáttur sem hafi eitt- hvað nýtt og spennandi fram að færa. Svarið við því er já og nei. Mynd- in er í raun ekkert annað en langur sjónvarpsþáttur en að sama skapi þáttur sem er vel heppnaður og held- ur athyglinni allan tím- ann, með bröndurum á færibandi. Félagi minn sem fór með mér taldi fimmtán sekúndur á milli brandaranna, svo að engum nema annáluðum fýlupokum ætti að leiðast. Hins vegar er margt gagnrýnisvert við myndina og meðal annars sú ákvörðun höfundanna að einblína nánast algjörlega á aðalpersónurnar á kostnað aukapersóna. Það er ekki nema vegna þess litla svigrúms sem þær fá, að maður áttar sig á því hversu mikinn hlut þær eiga í skemmtanagildi þáttanna. Myndin missir um tíma flugið þegar vikið er frá lífinu í Springfield. Loks er það íslenska talsetning- in sem hefur heppnast vel í með- förum leikarana, þótt Margrét Vil- hjálmsdóttir standi upp úr sem Marge. Þýðingin er líka fín, þótt manni líði stundum eins og brand- ararnir hafi ekki skilað sér eins vel á vort ástkæra ylhýra. Á köfl- um fannst manni líka að Sverrir Stormsker hlyti að hafa komist í þýðinguna. Allavega brá mér svo- lítið við að heyra orð eins og helgi- slepjupakk hrjóta af vörum Hómers. Vel heppnaður sjónvarpsþáttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.