Fréttablaðið - 19.09.2007, Blaðsíða 2
MARKAÐURINN 19. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá áramótum
Atorka 2,2% 46,2%
Bakkavör -4,9% -1,6%
Exista -9,7% 28,0%
FL Group -3,0% -5,0%
Glitnir -3,0% 15,9%
Eimskipafélagið -1,5% 21,2%
Icelandair -3,4% -8,0%
Kaupþing -5,1% 23,7%
Landsbankinn -2,3% 46,8%
Straumur -5,4% 5,7%
Teymi -1,0% 10,9%
Össur -3,4% -11,9%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Aðstæður á fjármálamörkuðum
eru jafnvel enn erfiðari og flókn-
ari en fólk gerir sér almennt
grein fyrir, að því er fram kom í
opnunarávarpi Sigurjóns Þ. Árna-
sonar, bankastjóra Landsbank-
ans, þegar hagspá bankans fyrir
árin 2008 til 2010 var kynnt. Yfir-
skrift hagspárinnar er „Í skugga
lausafjárkreppu“.
Sigurjón vísar meðal annars
til vandræða Northern Rock-
bankans í Bretlandi þar sem fólk
tekur í hrönnum út peningana
sína þó að breska ríkisstjórn-
in hafi ábyrgst innlán bankans.
Hann segir erfiða umræðu sem
íslensku bankarnir lentu í í fyrra
vera lán í óláni, allir hafi þeir
undirbúið sig mjög vel. „Og eru
mun betur staddir til að stand-
ast þær aðstæður sem eru í
dag en ella hefði verið.“ Núna
er munurinn hins vegar sá, að
sögn Sigurjóns, að í fyrra hafi
íslensku bankarnir einir fundið
fyrir þrengingum á lánamörk-
uðum, en núna séu allir bankar á
sama báti í þeim efnum. Þannig
hefur skuldatryggingarálag allra
banka hækkað í haust, ekki bara
íslensku bankanna. - óká
Flókin staða á fjármálamörkuðum heimsins
Þ R Ó U N S K U L D A T R Y G G I N G A R Á L A G S B A N K A N N A
Dagsetning Landsbanki Glitnir Kaupþing
2.1.2006 42,00 32,00 45,00
1.6.2006 61,92 49,13 66,74
2.1.2007 40,50 37,00 50,50
1.6.2007 19,30 24,00 27,00
2.7.2007 24,50 30,20 32,70
1.8.2007 39,80 55,80 52,00
3.9.2007 63,30 82,30 104,20
17.9.2007 91,00 117,50 150,00
„Á næsta ári eru veislulok,“ segir
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir,
sérfræðingur greiningardeilda
Landsbankans, um fasteigna-
markaðinn. Greiningardeildin
kynnti í gærmorgun hagspá bank-
ans fyrir árin 2008 og 2010.
Greiningardeildin gerir ráð
fyrir að aukið framboð nýrra
fasteigna og skert kaupgeta fast-
eignakaupenda valdi viðsnúningi
í verðþróun fasteigna um mitt
næsta ár. Gert er ráð fyrir að
hækkun þessa árs gangi til baka.
Kristrún segir að árin 2010 og
2011 megi svo búast við hægri
verðhækkun fasteigna á ný í takt
við almennar verðlagshækkan-
ir og því ætti húsnæðisverð að
ná núverandi styrk á ný á fáein-
um árum.
Greiningardeildin segir fast-
eignamarkaðinn á krossgötum,
mikið framboð sé af eignum
og vextir teknir að bíta. Krist-
rún segir vísbendingar um að
verð sé orðið töluvert hærra en
svo að nýir kaupendur ráði við.
„Sem leiðir hugann að því hvern-
ig staðan er hjá yngstu kynslóð-
inni,“ segir hún og bendir á að
á fimm árum hafi verð tveggja
herbergja íbúðar farið úr níu
í 17 milljónir króna. Núna séu
vextir hærri og 100 prósenta lán
alla jafna ekki í boði. Enn sé þó
svigrúm til hækkana fram á mitt
næsta ár. „En við erum ekki að
tala um alvarlegt hrun heldur lít-
illega leiðréttingu,“ segir Krist-
rún Tinna.
Veislulok á fasteignamarkaði
Jón Skaftason
skrifar
„Við teljum að í félaginu felist ákveðin tækifæri
sem menn hafa kannski ekki alveg kveikt á,“ segir
Hannes Smárason, forstjóri FL Group, en félagið
ræður nú tæplega 84 prósentum hlutafjár í Trygg-
ingamiðstöðinni og hyggst gera yfirtökutilboð í þá
hluti sem eftir standa.
Hannes segir tækifæri Tryggingamiðstöðvar-
innar einkum felast í ytri vexti og segist horfa til
Norðurlandanna og Bretlands í því samhengi. Ætl-
unin sé að láta fyrirtækið vaxa í höndum FL Group,
og til þess séu takmörkuð tækifæri hér á landi.
„Við höfum séð nokkur félög sem við teljum að geti
fallið mjög vel að rekstri TM. Þessi mál eru á byrj-
unarstigi, en við höfum séð ákveðin tækifæri sem
við teljum okkur geta nýtt“, segir Hannes.
Um nokkur fyrirtæki er að ræða að sögn Hannesar;
bæði rótgróin og önnur smærri. „Hversu mörg
félögin á endanum verða kemur í ljós síðar. Við
horfum svolítið á þetta eins og þegar við keyptum
hollenska drykkjarframleiðandann Refresco. Við
höfum náð að að tvöfalda það félag á tæpum tólf
mánuðum og hver veit nema við getum gert ein-
hverja svipaða hluti gegnum TM.“
Tryggingamiðstöðin keypti í fyrra norska trygg-
ingafélagið REMI forsikring. Hannes segir Trygg-
ingamiðstöðina hafa náð góðum árangri í Noregi.
Hann bendir á að Glitnir sé þar sterkur fyrir sem
skapi augljós tækifæri fyrir samvinnu milli félag-
anna tveggja.
Með kaupunum eykst enn vægi fjármálafyrir-
tækja hjá FL Group enn frekar. Hannes bendir á að
nú sé í fyrsta skipti hreint rekstrarfélag undir hatti
FL Group, síðan félagið seldi hlut sinn í Icelandair.
„Þarna er komið fyrirtæki með fjárstreymi sem við
teljum okkur geta nýtt.“
Jafnframt verður áhersla á að styrkja stöðu
Tryggingamiðstöðvarinnar enn frekar á þeim mörk-
uðum sem félagið hefur starfað á. Hannes segist
vonast til að hægt verði að auka arðsemi í trygg-
ingarekstri enn frekar, en hagnaður félagsins af
tryggingastarfsemi nam 337 milljónum fyrir skatta
á fyrstu sex mánuðum árs. Heildarhagnaður var
rúmir 2,4 milljarðar króna.
Mikils óróa hefur gætt á hlutabréfamörkuð-
um undanfarnar vikur og hefur FL Group ekki
farið varhluta af þeim hræringum. Gengi félags-
ins stendur nú í rúmum 24 krónum á hlut og hefur
lækkað um tæplega tuttugu og eitt prósent frá 19.
júlí á þessu ári. Hannes segist lítið geta tjáð sig
um hvort verðlagning félagsins sé sanngjörn, en
segir þó mögulegt að draga ákveðnar ályktanir.
„Ég keypti í FL Group fyrir sex milljarða á mánu-
daginn. Ég hefði nú varla gert það ef ég teldi félag-
ið of dýrt.“
Horfa til ytri vaxtar
Hannes Smárason segir tækifæri Tryggingamiðstöðvarinnar
felast í ytri vexti. Forsvarsmenn TM hafa nú þegar nokkur
félög á Bretlandi og Norðurlöndum í sigtinu.
Frank O. Reite, stjórnarformaður
Glitnir Property Holding og
fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Glitnis í Lúxemborg,
hefur ákveðið að gerast virkur
fjárfestir í Glitni Property Hold-
ing. Hann mun því víkja úr
framkvæmdastjórn Glitnis í lok
september.
Fram kemur í tilkynningu til
Kauphallarinnar að Reite muni
halda áfram nánu sambandi við
Glitni, sérstaklega hvað varðar
áframhaldandi vöxt Glitnis Prop-
erty Holding og sem ráðgjafi við
stefnumótun bankans.
Reite eignast um sex prósent
hlutafjár í Glitni Property Hold-
ing og heldur áfram sem stjórnar-
formaður. Glitnir á nú tæplega
sextíu prósent í Glitni Property
Holding. - jsk
Reite úr framkvæmda-
stjórn Glitnis
„Ég keypti í FL Group fyrir sex milljarða á mánudaginn. Ég hefði nú varla gert
það ef ég teldi félagið of dýrt,“ segir Hannes.
EINA VIÐSKIPTABLAÐIÐ SEM ÞÚ ÞARFT
Með Fréttablaðinu alla miðvikudaga Í hádeginu kl 12:12 á Stöð 2 Markaðurinn á Vísi alla daga
VIÐSKIPTAFRÉTTIR
ALLA DAGA VIKUNNAR