Fréttablaðið - 19.09.2007, Blaðsíða 32
4,2% 1 83,7%B A N K A H Ó L F I Ð
Létt var yfir kynningu Lands-
bankans á efnahagshorfum
næstu ára á Nordica hóteli í gær-
morgun. Sigurjón Þ. Árnason
bankastjóri lét vandræðagang
með hljóðkerfið ekki trufla sig
þegar hann átti að flytja opn-
unarerindi. Skipt var á áhengd-
um hljóðnema og honum fenginn
einn gamaldags sem haldið er á.
Örlítið bar þó á hnökrum þegar
næstu fyrirlesarar hófu sitt mál.
Björn Rúnar Guðmundsson, for-
stöðumaður greiningardeild-
ar bankans, gerði að þessu
grín og sagði: „Mér líður eins
og í gamalli íslenskri bíómynd,
hljóðið aldrei í lagi!“ Yfirleitt
var hljóðið þó í fínu lagi, ólíkt
því sem fólk þekkir úr sumum
íslenskum kvikmyndum.
Hljóð eins og í
íslenskri mynd
Enn af Landsbankanum.
Reglulega berast af því fregnir
hversu vel bankanum gengur
að safna fé á Bretlandsmarkaði
í gegnum Icesave-innlánsreikn-
inginn. Landsbankinn hefur
unnið ötullega að þessu og aug-
lýst á hinum ýmsu stöðum.
Tímaritið Horse & Hound er þar
á meðal. Allar ástríkar konur –
og mun fleiri karlar en myndu
vilja viðurkenna – þekkja þann
titil vel. Frá því tímariti þótt-
ist William Thacker (leikinn af
Hugh Grant) einmitt vera þegar
hann laumaði sér inn á blaða-
mannafund leikkonunnar Önnu
Scott (leikin af Juliu Roberts) í
hinni ódauðlegu ástar- og gaman-
mynd Notting Hill. Flestir hefðu
að öllum líkindum talið þann
titil uppspuna einn. Því fer þó
fjarri því tímaritið hefur skip-
að mikilvægan sess á meðal
breskra hestaunnenda allt frá
árinu 1884.
Horse & Hound
Undanfarna daga hafa myndast
langar raðir úti fyrir útibúum
breska bankans Northern Rock.
Hugsjúkir viðskiptavinir hafa
hraðað sér á svæðið í tilraun
til að bjarga sparifé sínu í kjöl-
far fregna af lausafjárkreppu
bankans. Breska dagblaðið The
Daily Telegraph fór á stúfana
og ræddi við þessa áhyggjufullu
viðskiptavini bankans. Einn
þeirra, herra Duncan, hafði talið
sparifé sitt tryggt í bankanum
frá því hann var tveggja ára. Nú
sá hann sér þann kost vænstan
að taka það út sem fyrst og koma
í öruggt skjól. „Ætli ég leggi
ekki peningana inn á reikning
hjá Landsbanka Íslands,“ sagði
Duncan gamli. „Þar eru hag-
stæðir vextir í boði.“
Spariféð í
Landsbankann
Það skiptir máli að spara á réttum stað
Bahamas eða Viðey?
Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun allra
peningamarkaðssjóða á Íslandi síðustu 12 mánuði eða 15,4%*
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
*Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. ágúst 2007, skv. sjodir.is. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.
Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is.
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
-
9
0
7
1
0
9
6