Fréttablaðið - 19.09.2007, Síða 14

Fréttablaðið - 19.09.2007, Síða 14
 19. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR6 fréttablaðið vinnuvélar Allt vegakerfið er skráð í tölvu og þar er kerfi sem segir til um hvernig á að merkja götur, hvar eigi að vera brotnar línur og hvar heilar. Haukur Jónsson er deildarstjóri vinnuflokka hjá Vegagerðinni og hefur í sinni umsjá Volvo-bifreið sem sér um yfirborðsmerkingar á vegum landsins. „Við köllum það sprautuplast sem við notum í vegamerking- arnar en það er plastefni sem er blandað með steinefni og litlum glerperlum til að mynda endur- kast í línunum og meiri birtu,“ segir Haukur og bætir því við að þegar efninu sé sprautað á göt- urnar sé það 180-200 gráðu heitt. „Þetta þornar á mjög skömmum tíma eftir að það kemur niður á veginn og tekur í mesta lagi mín- útu. Þegar við erum að sprauta keyrir annar bíll á eftir til að fylgjast með því að þetta sé í lagi og gera mælingar á þykkt og endurkasti en línurnar eru 10-12 sentimetrar að breidd og 1-2 millimetrar að þykkt,“ segir Haukur. Spurður eftir hverju sé farið þegar vegirnir eru merktir segir Haukur: „Allt vegakerfið er skráð í tölvu og þar er kerfi sem segir til um hvernig á að merkja, hvar eigi að vera brotnar línur og hvar heilar. Þetta er sett út eftir GPS-punktum.“ Haukur bætir því við að fyrir fram sé búið að úða á veginn og merkja hvernig línur eigi að vera á hverjum stað. Haukur segir bílinn eingöngu vera í notkun yfir sumartímann, frá maí og fram í septemberlok eða byrjun október. „Það þarf að vera þurrt þegar verið er að sprauta plastinu á en það er hægt að fara niður í frostmark ef það er alveg þurrt. Við notum plastið á umferðarmestu vegina, til dæmis á allan hringveginn og fjölfarna vegi út frá honum. Svo endist þetta mestallan veturinn og sums staðar fram á næsta sumar en þar sem mesta umferðin er og mik- ill snjómokstur endast merking- arnar ekki alltaf veturinn,“ segir Haukur. sigridurh@frettabladid.is Sprautuplast notað í línurnar Vegir landsins eru merktir á hverju ári með svoköll- uðu sprautuplasti sem er sprautað á vegina um 200 gráðu heitu. VINNUVÉLAR BANNAÐAR Á NÓTTUNNI Vinnuvélar eru bannaðar á götum og bílastæðum á höfuðborgar- svæðinu frá klukkan tíu á kvöldin til sex á morgnana. Gatnamálastjóri veitir tímabundna undanþágu frá þessum reglum vegna verk- legra framkvæmda. Þeir staðir eru sér- staklega merktir fyrir vinnuvélar. Nánari upp- lýsingar er að finna á: www.reykjavik.is. ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Demants ... ... kjarnaborar: 42 - 400 mm ... slípibollar: 125 og 180 mm ... sagarblöð: 125 - 800 mm Gæði og gott verð. Gæði á góðu verði Daewoo lyftararDoosan - Daewoo lyftarar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.