Fréttablaðið - 19.09.2007, Side 16

Fréttablaðið - 19.09.2007, Side 16
 19. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR8 fréttablaðið vinnuvélar Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan fyrsti traktorinn var fluttur til landsins árið 1918. Gríðarlegar framfarir hafa orðið í þróun vinnuvéla líkt og ann- arra tækja og tóla. Fyrstu vinnu- vélarnar skiluðu sér seint og illa hingað til lands í fyrstu en eftir að fyrsti bíllinn var fluttur til landsins árið 1904 byrjuðu fljót- lega að berast hingað stórvirk- ari vinnuvélar. Nokkru síðar hófu fyrstu vörubílarnir að keyra um frumstæða vegi og götur lands- ins. Tækninýjungar áttu sér hins vegar stað fyrst og fremst í sveit- unum enda var þar mesta þörfin. Fyrsti traktorinn barst hingað til lands árið 1918, svokallaður Akranestraktor, en hann var af gerðinni Avery. Lítið gerðist á kreppuárun- um í kringum 1930 en með seinni heimsstyrjöldinni komst skriður á hlutina. Í gegnum tíðina hafa þó nokkrar myndir verið teknar af ýmsum vinnuvélum. Litið var í gegnum nokkrar þeirra á Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem voru teknar fyrir DV og Vísi á sínum tíma og var þar margt skemmtilegt að sjá sem minnti á gamla tíma. Vinnuvélar í tíma og rúmi Dráttarvél mokar heyi á heyvagn á Nautaflötum í Ölfusi í Árnessýslu 28. júlí 1961. Vinnuvélar hafa ávallt skipað stóran sess í vegaframkvæmdum. Hér er stór krani með skóflu notaður við vegagerð á Vesturlandsvegi 15. ágúst 1972. Sjá má Lágafellskirkju í Mosfellsbæ í baksýn. Hópur manna fylgist með þegar stærsti krani sem fluttur hafði verið til landsins er hífður í land í Sundahöfn 25. maí 1983. Kraninn var 110 tonn. Hér standa þrjár stoltar Caterpillar-jarðýtur í Örfirisey í júní 1967. Faxaverksmiðan og skip við bryggju eru í baksýn. Þessi Caterpillar-jarðýta var sú stærsta sem komið hafði til landsins í mars 1974. Helstu framfarirnar hafa líklega orðið í landbúnaði. Hér er maður við heyskap á gamalli dráttarvél 20. júlí 1984, en verið er að raka heyinu í garða.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.