Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 10
WWW.N1.IS
Komdu með bílinn fyrir 20. október og þú
bæði sparar og losnar við alla bið.
Hjólbarðaþjónusta N1 er búin fyrsta flokks tækja-
kosti og hefur á að skipa reynslumiklu starfsfólki.
N1 BÍLAÞJÓNUSTA
EKKI BÍÐA
EFTIR FYRSTA
SNJÓNUM...
Vetrarpakki fylgir dekkja-
umgangi til 20. október
Þeir sem kaupa umgang af dekkjum fyrir
20. október fá sérstakan kaupauka; bílabón,
bílasápu, svamp, tjöruhreinsi og sköfu.
Mættu tímanlega og vertu klár í veturinn.
15% afsláttur til
20. október
Afsláttur af umfelgun, vetrardekkjum og þjón-
ustu. 10% afsláttur fyrir Viðskiptakortshafa auk
5% í formi punkta fyrir Safnkortshafa – samtals
15%. Þú getur sótt um kort á staðnum og nýtur
þá afsláttarins.
-15%
Dekkjahótel
Notaðu bílskúrinn í eitthvað skemmtilegt og
láttu okkur geyma fyrir þig sumardekkin.
Tekið er við dekkjum á öllum afgreiðslustöðum
hjólbarðaþjónustu N1. Í vor mætirðu einfaldlega
á sama verkstæði og sumardekkin bíða tilbúin.
Réttarhálsi 2, Reykjavík 587 5588
Fellsmúla 24, Reykjavík 530 5700
Ægisíðu 102, Reykjavík 552 3470
Langatanga 1a, Mosfellsbæ 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði 555 1538
Dalbraut 14, Akranesi 431 1777
Grunur leikur á að
fölsuðum pappírum hafi verið skil-
að til Vinnumálastofnunar þegar
Arnarfell gekk í ábyrgð fyrir GT
verktaka í byrjun september.
Vinnumálastofnun hefur skilað
kæru til lögreglu. Yfirheyrslur
eiga sér nú stað hjá lögreglu.
Þrettán Lettar og Litháar leit-
uðu til Afls starfsgreinafélags um
miðja vikuna þegar átti að senda
þá úr landi án þess að þeir hefðu
fengið laun samkvæmt
samningum. Mennirnir höfðu
fengið 135 þúsund krónur á mán-
uði. Þeir unnu 72 stunda vinnu-
viku og hefðu átt að fá 300-400
þúsund, að mati Afls. Þessir menn
eru í skjóli Afls meðan rannsókn
fer fram.
Sverrir Albertsson, fram-
kvæmdastjóri Afls, kveðst hafa
upplýsingar um að GT verktakar
hafi greitt mönnunum í reiðufé og
þvingað þá til að skrifa undir papp-
íra sem sýndu hærri upphæð en
þeir hafi fengið. Hann telur að þetta
gildi um mun stærri hóp eða alla þá
tæplega fjörutíu sem starfa hjá GT
verktökum við byggingu Hrauna-
veitu Kárahnjúkavirkjunar.
Marteinn Másson, lögmaður GT
verktaka, segir að mennirnir séu
starfsmenn starfsmannaleigunnar
SIA Nordic Construction Line,
NCL, og þeir hafi notið kjara sam-
kvæmt samningum. Óskað hafi
verið eftir afriti af kæru Vinnu-
málastofnunar þannig að það skýr-
ist hvert kæruefnið sé því illt sé
fyrir umbjóðendur sína að sitja
undir ásökunum.
Nordic Construction Line hefur
38 starfsmenn skráða hjá Vinnu-
málastofnun. Fulltrúi hennar á
Íslandi er Gísli Sveinbjörnsson,
einn eigenda GT verktaka. Af
skammstöfuninni „SIA“ má sjá að
Nordic Construction Line er einka-
hlutafélag.
Gísli segist ekki vita almenni-
lega hver eða hverjir eigi starfs-
mannaleiguna. Jafnvel þó að
Íslendingar séu hluthafar þá skipti
það ekki sköpum því um annað
fyrirtæki sé að ræða. Hringt hafi
verið í GT verktaka og þeir ein-
faldlega þegið boð um starfsmenn
tímabundið í tvo mánuði. Einhver
hafi þurft að vera fulltrúi fyrir-
tækisins hér á landi og hann hafi
tekið það að sér.
GT verktakar
rannsakaðir
Lögregla kannar nú lögmæti launaseðla og samn-
inga sem GT verktakar skiluðu til Vinnumálastofn-
unar fyrir mánuði. Þrettán menn eru í skjóli Afls.
Flutningaflug-
vél hrapaði í íbúðarhverfi
í Kinshasa, höfuðborg
Lýðveldisins Kongó, rétt
eftir flugtak á fimmtudag.
Minnst 50 manns fórust.
Samgönguráðherrann var
rekinn í gær.
Þrjú hús í Kingasani-
hverfi í Kinshasa eyði-
lögðust í eldi sem kviknaði
við hrapið, að sögn
fréttaritara AP á vett-
vangi. Slökkviliðsmönnum
tókst loks að ráða niður-
lögum eldsins snemma í gærmorgun. 28 lík höfðu fundist í rústunum
og 22 í flugvélarflakinu. Alphonse Ilunga, yfirmaður flugmálastjórnar,
sagði sextán manns hafa verið skráða um borð í vélina, sem var
rússnesk af gerðinni Antonov 26, en þeim fjölgaði fyrir flugtak.