Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 37
Ræsir hf. er með sniðuga tölvu
á sínum snærum en með henni
er hægt að greina ýmsar bil-
anir í bílum á mun styttri tíma
en áður.
Tölvan er þráðlaus bilanagreinir
og prófari sem kemur frá Bosch
fyrirtækinu.
„Tölvan er mjög þægileg þar
sem hún getur átt þráðlaus sam-
skipti við bílinn. Inni í tölvunni eru
rafmagnsteikningar yfir bíla,
varahlutanúmer yfir íhluti ásamt
bilanakóðalesara og nánari bilana-
greiningum,“ útskýrir Guðjón
Magnússon, bifvélavirki hjá Ræsi.
Tölvan er notuð til að leita eftir
bilunum sem koma fram í marg-
víslegum og flóknum kerfum í
bílum.
„Nú eru ýmis tölvustýrð kerfi í
bílum eins og ABS, spólvörn, ETS,
og vélatölvur og geta kerfin verið
mjög flókin. Það eru kannski þrjá-
tíu til fjörutíu litlar stjórntölvur
sem stýra þessum kerfum. Í fínum
bílum getur því verið mjög flók-
inn búnaður og þetta er svona
græja sem leysir og styttir bilana-
ferli og bilanaleit,“ segir Guðjón
og lýsir fyrir okkur hvernig tölv-
an vinnur.
„Þegar bíll bilar er fyrst farið í
upplýsingabankann þar sem valið
er um gerðir bíla og réttur bíll
fundinn. Þá komumst við í sam-
band og tölvan leitar eftir öllum
villum sem eru til staðar og skil-
greinir hvort villurnar séu fyrir
hendi eða hvort þær séu geymdar.
Við einblínum fyrst og fremst á
þær villur sem eru til staðar.“
Guðjón segir að þessi tölva frá
Bosch sé sem stendur sú full-
komnasta sinnar tegundar.
„Þú tengir bara þráðlaust net í
bílinn og þá geturðu notað tölvuna
hvar sem er. Það er mjög þægilegt
og léttir okkur vinnuna til muna.
Þetta styttir tímann fyrir okkur og
viðskiptavininn líka,“ segir Guð-
jón ánægður.
Ræsir hf. er með þrjár tölvur af
þessu tagi á verkstæði sínu en
nokkur önnur fyrirtæki eru líka
komin með þessa tækni. Þar má til
dæmis nefna Bifreiðastillingu í
Kópavogi, Nýsprautun í Innri-
Njarðvík og Borgarholtsskóli er
búinn að fá tvær tölvur fyrir sína
nemendur. Þessi tækni virðist því
virka vel og vera komin til að vera.
Tölva styttir biðtíma
15% afsláttur til 20. október
Barðinn ehf | Skútuvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 568 3080 | www.bardinn.is
Nýbarði | Lyngási 8 | 201 Garðabæ| Sími 565 8600
Sólning | Smiðjuvegi 68-70 | Kópavogi | sími 544 5000 | www.solning.is
Með Hankook dekk undir bílnum ertu öruggari í vetur.
Hankook vetrardekk tryggja gott grip allan veturinn við
síbreytilegar íslenskar aðstæður.
Þú færð Hankook dekk í Barðanum á sérstöku
hausttilboðsverði.
Hankook
- öryggi og gæði
15%
afsláttu
r
Sölustaðir:
Auglýsingasími
– Mest lesið