Fréttablaðið - 06.10.2007, Side 48
hús&heimili
Valgerður Ólafsdóttir og Jóhanna Ríkey
Sigurðardóttir hafa búið í gömlu húsi við
Grettisgötu í áratug. Á þeim tíma hafa þær
tekið húsið algjörlega í gegn og gert það
að sínu en eldri hluti hússins er frá 1904 en
nýrri hlutinn var byggður 1947. Þær hafa
unnið mikið af endurbótunum sjálfar en Jó-
hanna er húsgagnasmiður og Vala vinn-
ur á lögfræðistofu og syngur auk þess í
Mótettukór Hallgrímskirkju og víðar. Þær
eru báðar mikil uppspretta sniðugra hug-
mynda en Jóhanna er þó einna helst í hand-
verkinu og hefur smíðað mikið af húsgögn-
um á heimilinu og gert upp. Heimili þeirra
er afar persónulegt og hlýlegt og ber þess
merki að mikil alúð er þar lögð í alla hluti
og virðing borin fyrir fortíðinni. Húsið er
uppfullt af skemmtilegum hlutum með sögu
sem hlotið hafa endurnýjun lífdaga í með-
förum þeirra Völu og Jóhönnu.
hrefna@frettabladid.is
Á Grettisgötunni búa tvær konur
og tveir kettir í yndislegu gömlu húsi
sem nostrað hefur verið við í gegnum
tíðina. Í hverju horni má finna áhuga-
verða hluti með skemmtilega sögu
sem hæfa anda hússins.
Handlögnu
húsfreyjurnar, Val-
gerður Ólafsdóttir
og Jóhanna Ríkey
Sigurðardóttir.
Fjalagólfið er
upprunalegt og hér
má sjá hinn fræga
Wassily-stól Marcel
Breuer sem er
frábær nútíma-
hönnun frá árunum
1925-26. Annar
stólanna fékkst hjá
Kristjáni Siggeirs-
syni en hinn fékkst
í húsgagnaverslun
í Ármúlanum.
Leðursófinn fékkst
í Línunni og hilluna
smíðaði Jóhanna
í stíl við skáp sem
keyptur var í Tekk-
Company. Sófa-
borðið er gamalt
borð frá Hrafnistu
sem átti að henda
en Jóhanna gerði
það upp og setti
glerplötu ofan á.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hlýlegt heimili með sál
Skipt var um alla glugga
í húsinu og eru þeir
sérstaklega fallegir.
Í eldhúsinu hafa þær
stöllur kosið að leyfa
útsýninu að njóta sín
og hafa engar gardínur
heldur hengja þær upp
óróa sem þær hafa fund-
ið á ferðum sínum og
ýmsa smáhluti eins og til
dæmis gömul hnífapör.
Vegglampana fann Jóhanna í
Gámastöðinni og gerði þá upp
og skipti um perur. Sérstaklega
stílhreinir og fallegir og sóma sér
vel í stofunni.
Þessa forláta klukku átti langafi
Völu, Gunnar Ólafsson alþingis-
maður, en hann og kona hans,
Jóhanna Eyþórsdóttir, fengu
hana að gjöf frá Mýrdæling-
um árið 1909. Hilluna smíðaði
Jóhanna.
Hér er húsbóndinn á heimilinu,
gæðakisinn Pjakkur. Stiginn er
nýr og leiðir upp í ris þar sem
útbúið hefur verið notalegt
sjónvarpsrými og tómstunda-
herbergi. Þar má einnig finna
gestaherbergi.
Saumavélina átti amma
Jóhönnu, Ríkey Örnólfsdóttir,
en hún var skraddari og vann
mikið á þessu saumavélaborði.
Litla prentarahillan var keypt í
Austurríki.
6. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR6