Fréttablaðið - 06.10.2007, Page 89
Evrópukeppni félagsliða
N1-deild karla í handbolta
N1-deild kvenna í handbolta
HK gerði jafntefli við
Pallamano Conversano í gær-
kvöld, 31-31, í Evrópukeppni
félagsliða í handbolta.
HK byrjaði leikinn ágætlega
en um miðjan fyrri hálfleik átti
liðið slæman kafla og Ítalirnir
skoruðu þrjú mörk í röð og kom-
ust í 8-11. HK hrökk svo aftur í
gang undir lokin og leiddi í hálf-
leik 15-14.
Í síðari hálfleik virkaði HK
sterkari aðilinn en náði ekki að
hrista Conversano af sér og jafn-
tefli 31-31 var niðurstaðan. Segja
má að sóknarleikurinn hafi verið
í fyrirrúmi hjá liðunum í kvöld,
en þau spila seinni leik sinn á
morgun í Digranesi.
„Við vorum allt of stressaðir og
sennilega yfirspenntir yfir því að
vera að spila okkar fyrsta Evr-
ópuleik. Vörnin var léleg og mark-
varslan að sama skapi slöpp,“
sagði Gunnar Magnússon aðstoðar-
þjálfari HK, en kvaðst þó vera
bjartsýnn á framhaldið. „Sóknar-
leikurinn var fínn hjá okkur en
við þurfum samt að stjórna leikn-
um betur. Við þurfum bara að
byggja á þessum sóknarleik og fá
vörnina í lag og þá kemur
markvarslan. Ég hef enga trú á
því að markvörður okkar, Pet-
kevicius, spili tvo slappa leiki í
röð,“ sagði Gunnar og hvatti fólk
til að fjölmenna í Digranesið og
hvetja HK-liðið til sigurs.
Slæmur varnarleikur varð HK að falli
Afturelding og ÍBV
mættust að Varmá í gærkvöld í
slag nýliðanna í N1-deildinni í
handbolta. Þrátt fyrir jafnam leik
í byrjun voru það heimamenn
sem stungu af snemma leiks og
sigruðu að lokum 42-29.
Bjarki Sigurðsson, þjálfari
Aftureldingar, furðaði sig á
leikstíl ÍBV. ,,Ég spyr bara hvar
þessum mönnum var kennt að
spila handbolta.“
Gintaras, þjálfari ÍBV, var
ósáttur við dómgæsluna ,,Oft var
Afturelding að brjóta á okkur
eins og við á þeim en samt fengu
þeir aldrei brottvísanir.“ -
Afturelding
rúllaði yfir ÍBV
Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókháls 5 – Sími 517 8050
Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is
Munið vinsælu
gjafabréfin okkar
Öll kasthjól – 40% afsláttur
Kaststangir 20-50% afsláttur
Fluguhjól 15-50% afsláttur
Flugustangir 15-50% afsláttur
Öndunarvöðlur frá 9.995
Veiðivesti frá 1.995
10 stk. spúnar aðeins 1.990
Lítið notaðar leiguvöðlur aðeins 5.000
Sjókayakar 15-30% afsláttur
Þurrbúningar og vesti 15-50% afsláttur
Valdar haglabyssur 20-30% afsláttur
Felufatnaður 15-50% afsláttur
Útsalan hefst í dag og lýkur 7. október
Vinsælustu vörurnar seljast alltaf upp fyrst
Sjókayakar, fatnaður og búnaður aðeins í Sportbúðinni Krókhálsi 5. Skotvopn og felugallar aðeins í
Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5. Leiguvöðlur aðeins í Veiðihorninu Síðumúla)
ÚTSALAN ER BYRJUÐ
BARA Í FÁEINA DAGA