Fréttablaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 17
Margir muna eflaust eftir morgunleikfiminni á
Rás 1 með Valdimar Örnólfssyni en um þessar
mundir eru fimmtíu ár síðan útsendingar hófust
á leikfiminni.
„Ég var með þetta í 25 ár, frá 1957-1982, ásamt Magn-
úsi Péturssyni,“ segir Valdimar og brosir að minning-
unni. „Tvisvar á dag sagði ég: „Komið þið blessuð og
sæl,“ og svo framvegis,“ bætir hann við hlæjandi.
„Þegar við hættum árið 1982 tók Jónína
Benediktsdóttir við og eflaust muna margir eftir
henni í þáttunum,“ segir Valdimar, sem veltir því
fyrir sér að gefa út geisladisk með morgunleikfimi í
tilefni afmælis morgunleikfiminnar. „Ég þarf líklega
að fara að drífa í því,“ bætir hann við en Valdimar
hleypur enn á hverjum morgni og gerir Mullers-
æfingar á eftir þótt hann sé kominn vel á áttræðis-
aldurinn.
Valdimar var íþróttastjóri Háskóla Íslands og hætti
þar 72 ára gamall en er enn í dag með tvo hópa í leik-
fimi. „Þetta eru tveir góðir kunningjahópar, nokkurs
konar „old boys“,“ segir hann en tvisvar í viku hittast
þeir og gera saman æfingar í tvo tíma í senn þannig
að Valdimar á nóg eftir í leikfiminni enn í dag.
Hleypur og gerir Mull-
ers-æfingar alla morgna