Fréttablaðið - 09.10.2007, Blaðsíða 25
[Hlutabréf]
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opið virka daga: 10-18 og laugardaga: 11-15
„Það er útilokað að ganga í mynt-
bandalag [Evrópusambandsins] án
þess að vera aðili að Evrópusamband-
inu,“ sagði Jean-Claude Trichet,
bankastjóri Evrópska seðlabankans, í
gær.
Hann var þar að svara fyrirspurn
frá íslenskum embættismanni sem
staddur var í Brussel og hafði spurt
hvort Íslendingar gætu tekið upp
evruna.
Trichet benti á að besta ráðið sem
hann gæti gefið Íslendingum væri að
ganga í Evrópusambandið, að sögn
fréttastofunnar Associated Press.
Amelía Torres, talsmaður ESB,
svaraði í sömu mynt í gær en hún
segir lönd utan Evrópusambandsins
ekki eiga að innleiða evruna án
inngöngu í sambandið og síðan
myntbandalag þess. „Forsendur fyrir
innleiðingu evrunnar eru afar skýrar,“
sagði Torres.
Þrettán lönd eru aðilar að mynt-
bandalagi Evrópusambandsins og hafa
þau innleitt evruna. Hún hefur hins
vegar verið innleidd í tveimur löndum
utan sambandsins, í Svartfjallalandi og
í Kosovo auk nokkurra nýlendueyja
Frakka.
Evran útilokuð án aðildar að ESB
Gengi hlutabréfa í bandaríska
netleitarrisanum Google fór í
rúma 601,45 Bandaríkjadali á hlut
í gær, sem er hæsta verð fyrir-
tækisins frá upphafi. Gengið
dalaði lítillega eftir því sem leið á
daginn og fór undir 600 dala á
markaði undir lokin.
Miðað við hæsta gengi Google í
gær nam markaðsvirði þess um
25 milljörðum Bandaríkjadala,
jafnvirði 1.525 milljarða íslenskra
króna.
Google var skráð á Nasdaq-
hlutabréfamarkaðinn vestanhafs í
ágúst fyrir þremur árum en gengi
bréfa í fyrirtækinu fór á 85 dali á
hlut í frumútboði. Þetta jafngildir
því að þeir fjárfestar sem keyptu
hluti í hlutabréfaútboði netleitar-
fyrirtækisins hafa ávaxtað pund
sitt vel því gengi bréfanna hefur
sjöfaldast á tímabilinu.
Gengi Google í
hæstu hæðum
Um næstu áramót stefnir
Kauphöllin á að taka upp nýja
aðferðafræði við útreikning og
val á fyrirtækjum í OMXI15
vísitöluna, en hún er einnig nefnd
Úrvalsvísitalan. Um leið verður
valið á ný í vísitöluna.
Áhersla í val á félögum í
vísitöluna verður fyrst og fremst á
veltu og miðað við heildarveltu
síðustu sex mánuði, í stað 12 áður.
Þá verða félögin að vera meðal
þeirra 15 veltumestu í Kauphöll-
inni.
Markmiðið er meðal annars sagt
vera að laga útreikning vísitölunn-
ar betur að því sem almennt
tíðkast innan OMX Nordic
Exchange. „Þar að auki er það mat
Kauphallarinnar að markaðurinn
hafi þroskast talsvert á síðustu
árum og því ekki jafn mikil þörf á
ströngum reglum er varða t.d.
birtingu fréttatilkynninga á ensku
og tilvist kaup- og sölutilboða
innan viðskiptakerfisins,“ segir í
tilkynningu, en þeir sem hags-
muna eiga að gæta eru hvattir til
að koma að athugasemdum fyrir
næsta mánudag.
Úrvalsvísitalan
með nýju lagi