Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 14

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 14
Hafið þið hist áður – hver er ykkar fyrsta minning um hvort annað? Veist þú hver Reynir Pétur er, Unnur Birna, sem og Stiklur? Og veist þú hvað bíómyndin sem Unnur Birna hefur nýlokið að leika í heitir? Ómar: Við höfum ekki hist áður. Unnur Birna: En fyrsta minning. Ja, sko. Ég man eftir Ómari í sjónvarpinu þegar ég var frekar ung og ég man eftir þættinum, Stiklum. Ég var ein- mitt að ræða þetta við mömmu áðan og hún talaði um hvað þetta hefði verið frábær þáttur og eins góður þáttur í þessum dúr hefði ekki komið fram á sjónarsviðið síðan. Og já, ég veit hver Reynir Pétur er. Ómar: Ég mun einmitt setja þáttinn með Reyni Pétri á DVD-disk á næsta ári. Núna er ég með þætti af Vestur- og Norðurlandi. Unnur Birna: Já, gaman að því. Ómar: En ég er eins og Unnur – ég man eftir henni úr sjónvarpinu. En nú er illt í efni, með bíómyndina hennar Unnar. Ég verð því að svara því með vinsælu svari þessa dagana: Ég minn- ist þess ekki að hafa áttað mig á því í hvaða bíómynd hún var að leika í. Unnur Birna: Já, enda er ekki byrjað að sýna hana – hún verður frumsýnd í byrjun næsta árs. En það er næsta íslenska mynd, held ég, á markaðinn. Að því sem allra hæst ber í fréttum. Nýr borgarstjóri er tekinn við völdum. Ef þið fengjuð að vera hann á morgun – hvaða verki mynduð þið fyrst reyna að hrinda í framkvæmd? Og fengjuð þið það verkefni að koma einhverju skemmtitæki eða afþreyingarmögu- leika fyrir í Hljómskálagarðinum – hvað mynduð þið velja? Unnur Birna: Þar sem ég ræði nú helst ekki stjórnmál í fjölmiðlum ætla ég ekki að fara djúpt í borgarmálin en ég veit þó að ég myndi halda áfram þessu góða starfi sem byrjað er að vinna fyrir eldri borgara. Ætli þessi mál séu mér ekki hugleikin af því ég er gömul sál og hef verið mjög náin ömmum mínum og öfum í gegnum tíð- ina. Ómar: Ég tek nú alveg undir þetta en af því að Vilhjálmur var byrjaður á þessu og Dagur er kominn í umönnun- arstörfin þá myndi ég fara í kennara- stéttina. Það er ekki spurning hvort heldur hvenær kennararnir springa. Svo væri ég til í að sjá Víkingahöfn, helst sem næst Kvosinni, í tengslum við opinn læk. Og á hverju ári yrði haldin þar hátíð eins og á Stiklastað í Noregi og líkt eftir því þegar Ingólfur Arnarson setti súlurnar fyrir borð. Unnur Birna: Það væri magnað. Ef ég ætti að koma einhverju fyrir í Hljóm- skálagarðinum væri það Parísarhjól. Það væri rómantískt og skemmtilegt. Ómar: Ég hef að vísu ekki skoðað Hljómskálagarðinn nýlega en þar sem ég bý á Háaleitisbraut er það einfald- asta vinsælast hjá barnabörnunum: Rennibraut, sandkassi og rólur. Ef þú hefur ekki slíkt í slíkum garði, deyr hann. Landsleikur Íslands við Liechtenstein þótti ná nýjum botni í knattspyrnu- sögu Íslendinga. Hvaða tilfinningar bærast með ykkur við uppákomur sem þessar? Af hvaða íslenska íþrótta- manni eruð þið stoltust? Unnur Birna: Ég var fyrir norðan þegar leikurinn var en annars hefði ég nú horft á hann. Ég reyni að fylgj- ast með boltanum. Ómar: Þú ert heppin að hafa ekki horft á hann. Unnur Birna: Ég heyri það. Ómar: Við bíðum öll ósigur á lífsleið- inni og ég hef mikla samúð með þeim sem þurfa á einhvern hátt að snúa þessu við. Markatala Íslands í síðustu leikjum er farin að nálgast 14:2 með samlagningu marka. Unnur Birna: Ég segi það sama, maður hefur samúð með öllum aðilum. Þeir eru undir mikilli pressu. Ómar: Ég veit ekki hvort sama töfra- lausn gildi hér og 1970 eða 71. Þá var hér um bil skipt um landsliðið komp- lett og í kjölfarið unnum við Dani 15- 10. Menn komu þá inn í liðið sem urðu burðarás landsliðsins í rúm 10 ár á eftir. En ég held að þetta sé orðið mun erfiðara núna í framkvæmd. Unnur Birna: Eins og þetta horfir við mér þá eru allir þessir strákar að spila erlendis í sitt hvoru lagi og að sjálfsögðu er boltinn og áherslurnar mismunandi eftir því í hvaða landi þeir spila. Þar af leiðandi hugsa ég að þeir æfi ekki nógu mikið saman til þess að þetta gangi allt upp. Ómar: Já, það er sko langt frá því að þeir æfi nógu mikið saman. Og þannig verður það meðan að aðstaða lands- liðsins er eins og hún er. Unnur Birna: En af þeim íþróttamönn- um sem ég er stoltust af myndi ég fyrstan velja Magga Scheving. Mér finnst hann hafa unnið vel úr ferli sínum sem hófst á sviði íþrótta og nýtt krafta sína í að koma góðum hug- myndum á fót og láta gott af sér leiða. Ómar: Það er einn íþróttamaður sem hefur gert svipaða hluti og Maggi en það er Vilhjálmur Einarsson heitinn. Hann nýtti sér sinn frækilega feril til þess að smita ungdóminn og fylgja því eftir sem kennari. Ég hrífst alltaf af íþróttamönnum sem ryðja brautina og því myndi ég nefna Hauk Gunnars- son. Hann er því miður alveg gleymd- ur en þetta var fyrsti íþróttamaðurinn sem sló í gegn á ólympíuleikum fatl- aðra. Og ég get vel ímyndað mér hvað það þýðir fyrir fatlaðan íþróttamann að þurfa að fara að keppa og þjóð hans verður að sætta sig við fötlun hans eins og hann sjálfur er búinn að gera, og vinna sig út úr fötlun hans. Ég met svona fólk mjög mikils, sem ryður nýjar brautir. Iceland Airwaves er á lokaspretti. Fengjuð þið það hlutverk að mynda hljómsveit saman – á hvaða hljóðfæri mynduð þið setja hvort annað og hvaða tvo aðra þjóðþekkta einstakl- inga mynduð þið fá með ykkur? Hvað ætti hljómsveitin að heita? Ómar: Ef við eigum að stofna hljóm- sveit við Unnur Birna held ég að hún tæki sig mjög vel út með flautu. Unnur Birna: Ég ætla að setja Ómar á trommur. Ég sé hann einhvern veginn strax fyrir mér þar. Til viðbótar vil ég svo fá Geir Ólafs í hljómsveitina. Ómar: Á hvað eigum við að láta hann spila? Unnur Birna: Já, það er góð spurning, líklega best að setja hann á míkrafón- inn. Held að þannig mundi hann færa hópnum mikla spilagleði. Ómar: Hann gæti tekið hliðarhopp fyrir okkur! Alltaf þegar ég og undir- leikarinn minn, Haukur Heiðar Ing- ólfsson, hittum Geir biðjum við hann eins og litlu börnin: Viltu taka hliðar- hoppið. Og þá stekkur hann upp og slær saman fótunum. En ég hefði gaman af því að kippa Birgi Ísleifi Gunnarssyni, fyrrum seðlabanka- stjóra, inn í bandið og láta hann spila á píanó. Svo er ég strax kominn með nafnið á bandið, bara upphafið á nöfn- unum okkar: ÓMUNN – þó ekki segul- ómun! Unnur Birna: Ég samþykki það. Værir þú fegurðardrottning í einn dag Ómar – hvaða matvöru myndir þú Skyr er hollt Ef Unnur Birna Vilhjálmsdóttir ætti að stofna hljóm- sveit myndi hún biðja Geir Ólafsson að vera með sér í bandinu. Ómar Ragnarsson segist alltaf biðja Geir að taka hliðarhopp fyrir sig þegar hann rekst á hann. Júlía Margrét Alexandersdóttir fór í gegnum landsleiki, jóla- gjafir og Hljómskálagarðinn með rökstólapari vikunn- ar. Þetta er auðvitað allt of dýr gjöf, Unn- ur! Ég sem ætlaði að fara í bóka- búð og velja einhverja af jólabókun- um. Ef þú gefur mér bíl verð ég að gefa þér hest. velja að kynna fyrir útlendingum? Og fengir þú það verkefni að friða afmarkað landsvæði á Íslandi – hvaða staður yrði fyrst fyrir valinu, Unnur Birna? Ómar: Skyr. Á tímum þegar offita er orðin einn erfiðasti sjúkdómurinn á Vesturlöndum þarf maður ekki annað en að líta á þessar matvörur til að sjá hvaða hollustuyfirburði þær hafa. Unnur Birna: Ég hef alltaf verið mjög hrifin af skyri og skyrdrykkj- um. En landsvæði til að friða er STÓR spurning því ég myndi auðvit- að vilja friða sem mest. Yrði ég að velja einn stað yrði það Fljótshlíðin. Jólin koma senn. Ef þið mynduð skiptast á jólagjöfum – hvað mynduð þið gefa hvort öðru? Unnur Birna: Ég myndi gefa Ómari nýjan bíl. Þar sem hans fór á bólakaf fyrir austan eins og alþjóð veit. Ómar: Þetta er auðvitað allt of dýr gjöf, Unnur! Ég sem ætlaði að fara í bókabúð og velja einhverja af jóla- bókunum. Ef þú gefur mér bíl þá verð ég að gefa þér hest. Mig minnti einhvern veginn að þú hafir verið í hestum, er það nokkuð? Unnur Birna: Jú! Ég á 25 hesta. Ég myndi þiggja hest. Ómar: Áttu engan leirljósan? Unnur Birna: Nei, engan leirljósan. Ómar: Þarna sérðu. Mér datt það fyrst í hug nefnilega! Að lokum. Nú eigið þið allavega eitt sameiginlegt út á við. Og það er það að Bubbi Morthens er og hefur verið samstarfsaðili ykkar beggja. Hafið þið beðið hann um óskalag? Hvert er uppáhalds Bubba-lagið ykkar? Hvað hefði Bubbi átt að leggja fyrir sig hefði hann ekki endað í tónlistinni? Ómar: Bubbi söng fyrir mig Maður og hvalur. Og ég bað hann ekki um það að ástæðulausu, því ég vissi að hann myndi syngja það lag betur en nokkur annar. Hver söngvari á sín lög og þeir syngja mismunandi lög mismunandi vel. En hvað Bubba-lag varðar þá höfðar lagið „Það er gott að elska“ mjög mikið til mín. Unnur Birna: Ég hef ekki enn beðið Bubba um óskalag en það eru tvö lög sem hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig. Það eru lögin Rómeó og Júlía og Vonin blíð. Ómar: Bubbi hefði orðið afbragðs íþróttamaður. Lyftingar, glímur og auðvitað pottþéttur hnefaleikagarp- ur. Hann hafði allt sem þurfti. En reyndar er hann líka frábær biss- nessmaður og að láta Bubba sjá um eitthvað – biðja hann um að koma einhverju í framkvæmd – er gull- tryggt. Unnur Birna: Ég er auðvitað nýbyrj- uð að kynnast Bubba en ég hef samt ferðast talsvert með honum undan- farið og mér finnst ég hafa lært alveg ofboðslega mikið af honum á þessum stutta tíma. Hann er uppfull- ur af lífsspeki og ofsalega flottum pælingum og hugsjónum um lífið og tilveruna. Ómar: Bubbi er sá maður sem hefur komið mér hvað mest á óvart í við- kynningu. Það er engin tilviljun hvað hann er kominn langt og engin tilvilj- un hvað hann hefur afrekað.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.