Fréttablaðið - 21.10.2007, Side 88

Fréttablaðið - 21.10.2007, Side 88
N ý bók eftir Gyrði Elíasson kom út í vikunni, Sandár- bókin. Í henni segir frá frá- skildum listmálara sem heldur austur í Þjórsárdal, kemur sér fyrir í hjólhýsabyggð og ætlar að mála tré. Titillinn vísar í senn til Sandárinnar, sem rennur í Þjórsár- dal, og þess sem á undan er gengið í lífi listamannsins – sandáranna. Sagan fjallar öðrum þræði um van- mátt. „Sköpun hvers listaverks er greidd dýru verði, í þeim gjaldmiðli sem er verðmætastur allra, mannlegri nánd,“ segir í bókinni. Listamaðurinn stendur frammi fyrir því að hafa kosið sér ævistarf sem hefur knúið hann í félagslega einangrun og er harla fánýtt ofan í kaupið. Á kápu bókarinnar segir að kannski hafi Gyrðir „aldrei skrifað jafn sterka og áleitna sögu, sem jafn- fram er um margt aðgengilegri en fyrri verk hans“. Að lestri loknum læðist til- finning óneitanlega líka að manni að ef til vill hafi hann aldrei skrifað persónu- legri sögu. „Kannski er hún það að vissu leyti,“ segir Gyrðir. „Maður finnur þetta á eigin skinni eftir því sem árin líða, það er alveg rétt. En ég hef líka verið að velta fyrir mér almennu hlutverki lista í dag og útfæri það í þessari persónu; hvernig þrengt er að listum og þær á vissan hátt einangraðar frá þeim áhrifa- mætti sem þær höfðu í samfélaginu áður.“ En sagan gerist á ákveðnum stað, aust- ur í Þjórsárdal. Þar er þetta skóglendi og hjólhýsabyggð sem ég styðst að mestu leyti við. Ég kom á þennan stað fyrst fyrir nokkrum árum og heillaðist af honum. Síðan hef ég farið þangað oft og þetta mótaðist smátt og smátt. Fyrst sá ég þetta sem óskilgreint sögusvið, síðan kom það hægt og hægt hvers konar saga myndi fara þarna fram, en mestan part var það óljóst þangað til ég byrjaði að skrifa hana. Að því leyti er þessi bók ekkert sérstaklega ólíkt unnin og aðrar bækur mínar. Ég get aldrei sest niður og sagt að nú ætli ég að skrifa um hitt eða þetta. Hver lína leggst niður en svo sér maður heildarsvipinn eftir á. Bækurnar eru aldrei fyrirfram mótað- ar, það er eitthvað sem á ekki við mig. Ég veit að aðrir vinna þannig og það er gott og gilt fyrir þá en ég hneigist meira til að skrifa eins og ég sé nánast að lesa bókina. Ég veit sjaldnast alveg hvað kemur næst.“ Gyrðir hóf rithöfundarferil sinni sem ljóðskáld og skáldsögur hans bera þess skýr merki. „Ég hef oft sagt að mín aðferð við að skrifa laust mál sé það nálægt ljóðinu að það séu ekki afger- andi skil á milli. En það getur alveg tekið sinn tíma að skrifa stuttar bækur rétt eins og langar bækur. Öll vinnan sem felst í að fara í svona texta eftir á liggur í því að halda honum lifandi, passa sig á að drepa hann ekki með ofvinnslu heldur einmitt að halda lífinu í honum. Þetta er annað vinnuferli og ég held að höfundar sem skrifa bækur af þessu tagi séu bara annars konar per- sónuleikar, þetta er annar „skóli“. Það er mér ekkert kappsmál að þetta séu kallaðar skáldsögur, ef mönnum finnst of mikið í það lagt. Þetta liggur kannski þarna á milli langrar smásögu – nóvellu – og skáldsögu.“ Annað höfundareinkenni Gyrðis er að hlutirnir eru sjaldnast sagðir berum orðum. „Mér hefur verið legið á hálsi fyrir að vera of dulur,“ segir hann og kímir, „að ég vilji láta lesa ofan í ein- hverja dýpri merkingu. Ég er ekkert svo meðvitaður um það, ég skrifa bara eins og mér segir hugur um að ég eigi að gera um það sem leitar á mig. Ég verð einfaldlega að skrifa eins og ég er og það verður að hafa það þó að það henti ekki öllum.“ Gyrði hugnast ekki að vera talinn – stimplaður öllu heldur – stílisti fyrst og fremst, sem stundum hefur verið gert. „Já, ég er svolítið mótfallinn því vegna þess að orðið stílisti hefur verið misnot- að. Margir nota það, finnst mér, til að staldra við á yfirborðinu hjá höfundi og fara ekki dýpra. Að sumu leyti er það orðið notað sem smækkunarending á höfundi. Fyrir mér er stíll ekkert annað en það sem kemur mönnum nær hinu raunverulega innihaldi þess sem verið er að segja. Jú, hver höfundur hefur sína orðnotkun og sína nálgun. En eins og frægur maður sagði snýst stíll ein- göngu um að setja rétt orð á réttan stað.“ Gyrðir lærði að lesa fjögurra ára og tók frá upphafi ástfóstri við allt lesmál. Bækur sem honum líkar verður hann að eiga. „Ég mynda þannig samband við þær. Sumir vilja meina að þetta sé spurning um að vera háður bókum, það má vera. Það er eins og ýmislegt annað – maður lætur það yfir sig ganga. Þetta er ekki verri fíkn en hvað annað að minnsta kosti.“ Hann á aftur á móti í öðru sambandi við eigin bækur, sem hann kveðst ávallt vera ósáttur við. „Og það verður bara verra með árunum. Eftir því sem bók- unum fjölgar því ósáttari verð ég. Ég les þær ekki aftur og má varla sjá þær.“ Hann liggur á textanum eins lengi og hann getur áður en hann skilar honum til útgefanda. „Það getur verið erfitt að skera úr um hvenær verki er lokið en maður finnur samt oftast hvenær það er kominn tími til að láta það af hendi. Það er alltaf þessi hætta á að ofvinna, fara of langt. Bók er hvort sem er aldrei full- gerð ef út í það er farið. Það er engin bók fullkomin, og verður aldrei. Það væri held ég hræðilegt ef út kæmi full- komin bók.“ Náttúran skipar iðulega stóran sess í verkum Gyrðis. Á því er Sandárbókin engin undantekning og kallast um margt á við síðustu skáldsögu hans, Hótelsum- ar, frá 2003. Þar var sögusviðið æsku- stöðvar skáldsins á Sauðárkróki, sem hann segir að hafi ávallt málað verk hans sterkum litum. „Ég held að það fari ekkert hjá því að allt umhverfi sem höfundur elst upp í móti hann á hvern hátt sem er, hvort sem það er gott eða slæmt.“ Á Sauðárkróki var mikið skáld, Geir- laugur Magnússon, sem hafði töluverð áhrif á Gyrði – bein og óbein. „Hann kom með mikið bókasafn á Krókinn sem hann leyfði mér að ganga í að vild. Svo auðvitað hafði hans skáldskapur áhrif á mig og hans viðhorf til ljóðlistar og skáldskapar, það kveikti í mér og hvatti og hafði vissulega áhrif. En aðaláhrifa- valdur minn hefur líklega verið faðir minn.“ Það var upp úr tvítugu sem Gyrðir tók þá ákvörðun að leggja fyrir sig rit- störf, þótt ýmislegt annað hafi einnig komið til greina. „Ég fór í Kennarahá- skólann og fáeinar vikur í bókmennta- fræði. Ég var ekkert endilega þá að spá í rithöfundarstarfið sjálft heldur eitt- hvað tengt bókmenntum. Myndlistin var einn möguleiki, ég hafði á tímabili hug á því. Ég fann bara að ég hafði ekki hæfileika í það þannig að ég hvarf frá því. Bróðir minn er málari og mér fannst líka nóg að hafa tvo myndlistarmenn í fjölskyldunni. En það var sem sagt ýmislegt sem kom til greina.“ Gyrðir flutti til Reykjavíkur, sem reynd- ist honum að eigin sögn erfitt. „Og finnst reyndar enn erfitt að samsama mig þessu samfélagi. Ég held mig vanti meiri náttúrutengingu. Ég hef alltaf haft sterka þörf fyrir sambýli við landið og þessi togstreita er alltaf hluti af því sem ég skrifa.“ Sögumanni Sandárbókarinnar líður ekki vel í mannfjölda og það liggur bein- ast við að rekja þann eiginleika beint til höfundarins. „Já, mögulega. Ég vil til dæmis frekar hlusta á tónlist heima hjá mér heldur en fara á tónleika. Ég er ekkert mjög menningarlega sinnaður í borgaralegum skilningi. Það fer heldur ekkert hjá því að mér finnst ég ekki eiga heima í því samfélagi þar sem þeir hlut- ir eru efst á baugi sem nú eru, neyslu- hyggja og auðmannadýrkun. Það leitar vissulega á hugann hvaða afstöðu sam- félagið hefur til þeirrar listar sem mér finnst einhvers verð. Þá á ég ekki við sjálfan mig heldur aðra listamenn sem ég tel að eigi það nafn skilið.“ Það hefur þó aldrei hvarflað að honum að yfirgefa landið. „Nei, ég hef engan áhuga á því. Ætti ég að yfirgefa Reykja- vík færi ég bara út á land. Ég þrífst mjög vel í menningarleysi – svokölluðu. Mér finnst það talsvert heiðarlegra en „menningarsamfélag“ sem bítur í skott- ið á sér og tekur sjálft sig mjög hátíð- lega. Á sumrin nota ég tækifærið og ferðast um landið og sæki mér þann inn- blástur sem ég þarf.“ Undirtónninn í verkum Gyrðis er jafn- an þungur, jafnvel nístandi, auk þess sem oft má greina samfélagslegan brodd. Hann fer aftur á móti aldrei alla leið upp í ræðustól og predikar um böl og meinsemdir samfélagsins. „Það þýðir ekki að ég hafi ekki skoðanir á þessum hlutum, þær koma fram undir niðri, en mér finnst skáldskapur og samfélags- leg predikun ekki endilega eiga sam- leið. Það er svo margt annað í lífinu og veruleikanum en ástand heimsins í pól- itískum skilningi sem mótar líf okkar og hefur áhrif á tilveruna. Mér finnst að einhverjir verði líka að beina sjónum að því. Að sumu leyti eru blaðamenn, félagsfræðingar, og stjórnmálafræðing- ar betur til þess fallnir að bölsótast yfir gangi veraldarinnar. En það þýðir ekki að höfundur sé skoðanalaus. Skoðanir hans koma bara ekki fram eftir lögmál- um blaðamennsku.“ Gyrðir hefur ávallt verið höfundur fárra og finnst ekki mikilvægt að tróna á toppi metsölulista. Hann játar þó að þessu fylgja ókostir. „Nei, það er í sjálfu sér ekkert atriði. En ég þykist samt greina að minn lesendahópur hafi dreg- ist nokkuð mikið saman undanfarin, prósabækurnar séu komnar alveg niður í tvö til þrjú hundruð eintök, sem er eins og sala á ljóðabók.“ Hann neitar því ekki að þetta hafi áhrif á hann. „Það hlýtur að gera það. Jafnvel þótt maður viti að maður skrifi bækur sem höfða ekkert endilega til margra, þá getur það reynst höfundi erfitt að vita að lesendur eru mjög fáir. En ég held mínu striki. Þetta skýrist kannski meðal annars af því að það eru allt aðrir hlutir upp á borðinu í dag en þeir sem ég er að gera. Hið hráa raunsæi er fyrirferðarmikið og nýtur mikillar virðingar. En raunsæi í skáldskap er aðeins ein aðferð til að takast á við veruleikann og ekkert endi- lega sú besta. Ég held það hafi verið Wallace Stevens sem sagði að raunsæi í skáldskap væri hnignun veruleikans.“ Gyrðir segir að þetta sé ein af ástæð- unum fyrir því að hann sagði skilið við Eddu útgáfu og sneri sér til Kristjáns Kristjánssonar og forlags hans Upp- heima. „Mér finnst metsöluslagsíðan orðin ansi sterk hjá stóru forlögunum. Mér fannst gott að sjá þarna mann uppi á Skaga sem hugsaði um annað en sölu- tölur og vildi gefa út bækur sem hann hafði áhuga á framar öllu.“ Gyrðir vinnur jöfnum höndum með ljóð, prósa og þýðingar. „Sá ryþmi er ágætur – að fara úr sjálfum sér og í verk ann- arra. Það er líka lærdómsríkt að kynn- ast verkum annarra, að fara nánast ofan í hvert einasta saumspor, auk þess sem þetta er alltaf góð þjálfun í sínu eigin tungumáli.“ Á milli verka þarf hann alltaf að láta vissan tíma líða, „láta renna í,“ eins og hann kallar það, sérstaklega í seinni tíð. „Ekki það að mér liggi minna á hjarta – þvert á móti. Hins vegar breytist aðferð- in og tjáningin; hugsanlega gerir maður öðruvísi kröfur um framsetningu gagn- vart sjálfum sér. Það er heldur ekki nóg að skrifa látlaust. Ég held að hver höf- undur þurfi líka að gefa sér tíma til að staldra við og athuga hvar hann er staddur. Það er líka hluti af þessu. Að hugsa.“ Er ekkert mjög Gyrðir Elíasson rithöfundur „Það fer heldur ekkert hjá því að mér finnst ég ekki eiga heima í því samfélagi þar sem þeir hlutir eru efst á baugi sem nú eru.“ Nýtt skáld- verk eftir Gyrði El- íasson leit dagsins ljós í vikunni. Í samtali við Menn- ingarblað Frétta- blaðsins ræðir Gyrðir Sandána, sandárin, samband hans við bækur og hvers vegna hann kann best við sig í menn- ingarleysi svokölluðu. BÓKMENNTIR BERGSTEINN SIGURÐSSON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.