Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 90

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 90
E kki er lát á daglegum hryll- ingi í Írak; ofbeldi, órétt- læti, blóðsúthellingum og óskaplegu mannfalli. Borg- arar sundraðs samfélags leita allra leiða til að hafa í sig og á. Forngriparán og sala eru þó ekki eina áhyggjuefni sérfræðinga í sögu manns og menningar. Umsvif nútíma hersveita á þungavígvélum á viðkvæmum fornleifasvæðum eins og Babýlon, Niniveh, Samarra og Úr mylja söguna undir sandinum mélinu smærra. Á langri leið hefur mannkyni skilist að menningarvöggur þess eru margar, jafnt á sviði handverks sem hugmynda. Ein þeirra liggur á sléttunni milli fljót- anna Efrat og Tígris í núverandi Írak. Grikkir kölluðu landsvæðið Mesópót- amíu eða Millifljótaland en heimamenn nefna það Al Jazirah, Skagann eða Eylandið. Frjór framburður fljótanna jók landgæði þar svo mjög að fyrir um 12.000 árum þótti flakkandi forfeðrum okkar rétt að staldra við, sá fyrir hinu og þessu og hefja með því akuryrkju á jörðinni. Með tímanum lærðist þeim að hemja flóðin í fljótunum og byggja áveitur. Á sléttunni var gnægð veiðidýra, svo sem geitur, sauðfé, svín og naugripir. Ekki leið á löngu þar til kyrrsetumönn- unum á sléttunni tókst að laða þessi dýr til fylgilags og húsdýrahald hófst. Gripirnir og afurðir þeirra voru ekki bara aukinn matarforði ættarinnar heldur mikilvægur gjaldmiðill og nú gátu menn lagt loðskinnum sínum og borið spunnin klæði og ofin. Sérhæfing fylgdi í kjölfarið, myndun þorpa og borga og stéttaskipting. Og þá var hægt að deila um lönd og árfarvegi og í fram- haldi af því herja á nærliggjandi byggð- ir með skipulögðum hætti. Viðskipti jukust; íbúar sléttunnar seldu fjallabú- um leirker og korn fyrir trjávöru, málma og skinn. Gósenland þetta freistaði auðvitað margra og hver þjóðin af annarri sett- ist þar að til að deila og drottna. Súm- erar vildu halda skikk á stjórn sinni og viðskiptum og fundu því upp fleyg- rúnir til að skrá allt hjá sér. Þeim þótti augljóst að sólarhringurinn skiptist í 60 mínútna klukkustundir, tólf mánuð- ir væru í einu ári og 360 gráður í hring um leið og þeir suðu saman tin og kopar og bjuggu til brons. Aðrir ortu sálma og ljóð á leirtöflur sínar. Konungi Babýlóníumanna þótti rétt að skrá fleira en viðskiptasamninga og stjórnskipanir; hann bætti við laga- setningum og dómum svo tryggja mætti „réttlæti í landinu, að brjóta ill- viljuð niðurrifsöfl á bak aftur og sjá til þess að þeir voldugu sætu ekki yfir hlut þeirra sen minna mættu sín“. Hammúrabí lét fleyga þetta á opinber- ar leirtöflur fyrir um 3.700 árum, nokkru eftir að Abraham lagði af stað frá Úr í Kaldeu að leita fyrirheitna landsins. Sargon konungur Assýríumanna úr norðri færði út landsvæði ríkisins og sá ekkert athugavert við fjölmenningar- ríki. Afkomendur hans glutruðu völdun- um til Babýlóníumanna eftir tæpar tvær aldir og Nebúkadnessar II náði að mölva Jerúsalem og teyma íbúa hennar og nærsveita í útlegð í Babýlon. Kýros mikli Persakonungur hleypti fólkinu aftur heim með gamla testamentið í far- teskinu. Sjálfur var hann sennilega hall- ur undir Zaraþústrasið; taldi manninn hafa frjálsan vilja og val milli góðs og ills. Þessu næst bar að Alexander mikla frá Makedóníu að leggja undir sig heim- inn og sá fyrir hellenismanum í leiðinni. Persar fengu enn að reyna sig við stjórn- völinn um hríð eða þangað til fólk innan af Arabíuskaga æddi yfir með boðskap Múhameðs spámanns. Taka þá við inn- ansveitarátök í heimi múslima í um þús- und ár. Og ekki einu sinni komið að olíu- auðnum. En söguna alla má finna í írakskri jörð. Grafar- og fornleifarán eru ekki nýlunda meðal mannkyns. Þar sem mest ber á fortíðinni hefur sérþekk- ing á þessu sviði jafnvel varðveist í ættum í ótal kynslóðir. Fornleifafræð- ingar fullyrða þó að í Írak hafi orðið nokkur breyting á verklagi og vinnu- hraða. Auðugir landeigendur eða kaupsýslumenn kaupa upp stór sands- væði og senda þangað fagmannasveit- ir sínar. Ræningjahópar eru misstórir með stórvirkar vinnuvélar eða skóflur en eira engu. Enda til mikils að vinna; meðalárslaun í Írak samsvara nú um 60.000 ísl. kr. en fyrir vænan kassa af fornminjum má fá rúma íslenska milljón. Þeir færustu ná 2-3 kössum á viku. Á tímum Saddams lá dauðarefs- ing við fornminjaránum, nú er talið að um 15.000 munir finnist á degi hverj- um og flestir þeirra eru fluttir úr landi. Í Írak eru um 10.000 fornminja- svæði þekkt og skráð, í Nassariyah einni og nágrenni eru leifar um 840 byggða frá tímum Súmera. Ræningja- hóparnir hafa tæmt þær allar enda hamla fjárskortur og ófremdarástand í landinu öllu eftirliti. Samkvæmt Haag-sáttmálanum frá 1954 er herjum heims óheimilt með öllu að reisa herstöðvar á þjóðar- eða heimsminjum. Bandaríkjamenn sam- þykktu ekki þennan sáttmála og her- stöðvar þeirra og búðir eru m.a. við hinar fornu borgir Babýlon, Samarra, Úr og Niniveh svo nokkrar séu nefnd- ar. Umsvif hersveita og ekki síst þungra vígvéla mylja fornleifarnar undir sandinum ekki síður en þær sem upp úr honum standa. Stjórnvöld í BNA hafa ekki tjáð sig um ástandið í fornleifamálum Íraks síðan í apríl árið 2003 en þá sagði þáverandi varnar- málaráðherra, Donald Rumsfeld, í við- tali við CNN: „Hlutir fara í rugl. Frelsi er sóðalegt og frjálst fólk gerir mis- tök, fremur glæpi og gerir slæma hluti.“ Menn standa ráðþrota frammi fyrir menningarhamförunum í Írak og velta fyrir sér hvað valdi, hverjir græði. Grunur sumra beinist að fjölmörgum baráttusveitum og öfgahópum í land- inu og aðferðum þeirra við að fjár- magna baráttuna, aðrir telja auðmenn og ættarhöfðingja maka krókinn, þar heima og í útlöndum. Hitt er víst að eftirspurnin eykst – auðjöfrar í Evr- ópu, BNA, Japan og Sameinuðu Arab- ísku furstadæmunum þreytast ekki á að panta sér muni úr menningar- vöggunni, stóra og smáa. Fulltrúar UNESCO, Interpol og fleiri alþjóð- legra stofnana vinna þrotlaust með safna-, sagn- og fornleifafræðingum við að leita muni uppi, m.a. á netsíðum sínum, en válistar þeirra lengjast jafnt og þétt. Mannkynssaga skoðar manninn, þróun hans og samfélaganna sem hann hefur smíðað, aðferðirnar sem hann hefur notað til að komast af. Tómstundir hans, hugmyndir um guði, menn og heim, sýn hans á sjálfan sig og umhverfið. Smíðar hans, störf og list, verkfæri, skáldskap og skynjun. Dag- legt líf og tyllidaga, orrustur, harðindi og ofgnótt. Frá ýmsum hliðum og sjaldnast einróma. Vitneskjuna hafa menn ekki síður notað til að skyggnast um í samtíma sínum, skilja hann og barning manna við að lifa af og aðlag- ast hörðum heimi. Sérfræðingar í mannkyni og sögu þess reyna hvað þeir geta til að vekja athygli á þeim fjársjóðum heimilda sem nú tínast inn á einkasöfn auðugra um allan heim eða fjúka burt molnað- ar undan herjum og vígvélum með sandinum. Þeir segja forna sögu Íraks í bráðri útrýmingarhættu og þar með sögu einnar af vöggum siðmenningar- innar. Bandarískur hermaður gengur hjá veggmynd í Þjóðminjasafni Írak. Þúsundir fornminja hafa horfið frá Írak á þeim tíma sem hernám Bandaríkjanna og stuðningsþjóða þeirra hefur staðið AFP/KARIM SAHIB Á síðustu fjórum árum hefur forn atvinnugrein, safna- og fornleifarán, þróast með slíkum ágætum austur í Mesópótamíu, að sumir eru jafnvel stoltir af. Fagmenn tæma söfn og þefa uppi ævafornar rústir í söndum landsins til að selja með leynd auðugum söfnurum í Evrópu, Bandaríkjunum, Asíu og öðrum Mið- Austurlöndum. FORNLEIFAR RAGNHEIÐUR GYÐA JÓNSDÓTTIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.