Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 94

Fréttablaðið - 21.10.2007, Page 94
Í þessari fallegu ljóðabók eru þrjú meginþemu sem fléttast þar saman í margþátta rímu, og áskor- un bókarinnar felst í því hversu stórt er spurt – þemun eru: (1) sköpunarverkið = náttúra = móðir = maður = guð = sköpunarverkið (2) uppruni = fæðing = sköpun = feigð/örlög /mörk lífs og dauða = hringrás (3) orð = ljóð = sköpun- arverk. Skáldið leitar sjálfu sér skjóls í þessu skáldlega ríki, leitar sátta við föður andans og móður nátt- úru, rýnir í sígildar ódáðarúnir fjalls og manns (8), veit og skil- ur þótt fjarskinn sé djúpur (28), vinsar kjarnann úr heilögu riti (59) og stendur vörð um lifandi nátt- úru (35), spyr hvort hún sé feig. Göfugt markmið, gjöfull kveðskapur. Eru þá ónefnd ýmis önnur djásn þar sem rödd skáldsins er bundn- ari brag og bókviti og veikari fyrir vikið; haglega kveðin söguljóð, dýr sléttubönd, beittar rímþrautir, rómantísk danskvæði og nokkur meinhæðin óaldarljóð með hefð- bundnum siðvöndun- artóni; „við ofgnóttir alls við öreigar nútím- ans heitum“ (45). En beinum sjónum að fyrsta þemanu og fylgjum því eftir gegnum örfá kvæði: „Ég veit, ég rata“, ég miða líf mitt við náttúrumörk (5) segir skáldið í upphafs- kvæði bókarinnar og rammar það inn í brag sem rímar vel við jarðbundna nátt- úruna ... sem síðan lifnar óðar við í næsta kvæði er „villiskáld úr heiðnum sið deyr í fjallið“ (8) og gæðir nátt- úruna mannlegu eðli sem um leið er guðleg vera sköpuð í mannsins mynd og móður, því að „þitt er ríkið, faðir vor“ (72-73) og jörðin helg þótt móðurættin (moldin) eigi sér heiðna rót. En þótt vafi leiki á hvor skóp hvorn, guð eða maður- inn, og hvor sé skár ortur (20) er uppruna mannsins að leita í fljót- andi móðurskauti náttúrunnar (23) þaðan sem hann kemur og fer og (skynvilltur 23-24) fellur á kné og lofsyngur mátt hennar (25). Skáldið holdgerir hana síðan á ný með „formóður vorri Lucy“ (34) sem raunar er holdlaus og tákn forgengileikans (mannsins/efnis- ins) gegn eilífum draumi lifandi jarðar. Og skáldið óttast um móður jörð, teikn á lofti „hvítnaði andlit jarðar“ (26-29) og maðurinn feig- ur sömuleiðis og tími lífsins ámóta óviss og dauðans. Því maðurinn hefur villst af leið „gleymd er samleið úr suðri“ (33) og „vestræn gildi“ (kristin siðfræði) orðin tóm ef þeim fylgir ekki breytni að eft- irdæmi Krists „sem vér eigum sitthvað ólært af“ (39). Skáldið varar við hræsni, hnefaréttinum, valdboði frekjunnar, blindri efnis- hyggju, ofbeldi gagnvart helgri jörð, afhelgun andans og undan- haldi frá boðorði vors Föður: „Sonur þinn er...einsog sammæðra vitund vorri“ (73). En maðurinn ber sjálfur alla ábyrgð, verður að treysta sjálfum sér til að finna almættið í eigin blóði og náttúru. „Frjósemisást“ er „fullkomleikinn sjálfur, vor sigur á dauða“ (73) því atgangur mannsins lifir „út yfir dys og dauða“ (58) þótt holdið sé mold; upprisan er á eigin ábyrgð og bundin veikri von því í jarðvist- inni er „sálin föl“ (45) og syndin lævís. „Helgi“ er sömuleiðis ver- und (sprottin af vitund) og villandi orð ef ekki fylgir gjörð – það er glæpur gagnvart sköpunarverk- inu að snúast gegn því; „undarleg sýki að sækja í það að sigra fólk hér á jörðu“ (61). Hámarki nær þessi samhelgun móður, náttúru, manns og guðs í „Fæðingarhátíð á heiði“ (66-69) þar sem skáldið yrkir sögu Sonar- ins upp á íslenskri heiði og býður fylgd „hinni fegurstu mey og móður“, og í „Sálmi efasemdar- manns“ (72-73) þar sem Faðirvor- ið og bókin enda í spámannlegri spurn. Gullfalleg bók, ort af mikilli íþrótt, víðskyggn kveðskapur og mikið undir en sums staðar um of. Sigurður Hróarsson Fallega smíðar drottinn Valgarður Egilsson rithöfundur. Á MÖRKUM Valgarður Egilsson JPV Örlög drengjanna á Breiðavík eru flestum kunn enda tíðrædd í fjöl- miðlum í byrjun árs. Heimildar- myndin Syndir feðranna er saga þessara manna og samfélagsins sem brást. Aðdraganda myndarinnar má rekja til ársins 2001 þegar Berg- steinn Björgúlfsson kvikmynda- gerðarmaður hóf rannsókn á mál- inu. Hann mætti hvarvetna luktum dyrum, bæði hjá yfirvöldum og fyrrum starfsmönnum. Þó bar fyrrum vistmönnum öllum saman um hrikalega atburði sem áttu sér stað á Breiðavík á árunum 1953- 1973, þar sem 128 drengir voru vistaðir á heimilinu, flestir á aldr- inum 9-14 ára. Sá yngsti aðeins 6 ára. Þegar málið komst í fjölmiðla í ársbyrjun tók myndin á sig nýtt form og Bergsteinn fékk til liðs við sig Ara Alexander Ergis Magn- ússon leikstjóra og Hrönn Krist- insdóttur framleiðanda. Sagan er rakin í gegnum frá- sögn fimm manna sem voru vist- aðir þar á mismunandi tímabilum. Hún hefst á umfjöllun Kastljóss- ins um málið og býður síðan upp á ferðalag sem spannar frá upphafs- árunum til nútímans. Þar kemur fram að vistin hafi átt að gera unga ógæfudrengi hæfa til að þrífast í þjóðfélagi siðaðra manna. Raunin var hins vegar allt önnur og í staðinn máttu drengirnir þola gríðarlegt ofbeldi, andlegt, líkam- legt og kynferðislegt. Syndir feðranna dregur engan á tálar með tilfinningalegu klámi eða ofsafengnu fári fjölmiðlanna. Okkur er boðið að Breiðavík frá lofti þar sem myndir ofsafenginn- ar náttúru gefa til kynna einangr- unina. Og þyrluhljóð í aðflugi vekja hugmyndir um óhug á borð við stríð. Atburðarásin fetar beina leið og segir söguna fumlaust með notkun gamalla mynda og viðtala. Áróðursmynd um ágæti Breiða- víkur, gerð til fjáröflunar á árun- um 1950-60, rennur kaldhæðin samhliða frásögn um margorðað morð á sálum saklausra barna. Leikstjórarnir segja þó sjálfir að markmiðið sé ekki að hengja einhvern sökudólg. Leiðarljósið hafi frekar verið kærleikur, mann- gæska og nærgætni við viðmæl- endur. Svo þeir gætu sagt sögu sína á eigin forsendum í tilraun sinni til að öðlast mannlega reisn. Eins konar ferðalag til helvítis og mögulega aftur heim. Eins og góðri heimildarmynd sæmir spyr hún spurninga. Var þetta mann- vonska eða bara tíðarandinn? Hver er samfélagsleg ábyrgð okkar allra og samfélagsleg með- virkni? Ásamt aðalspurningunni: Hvernig er hægt að vera vondur við börn? Og minnir okkur í leið- inni á að spyrja hvernig hafa börn- in sem minna mega sín, í dag? Syndir feðranna er vel unnin heimildarmynd, sem nýtur þess tíma sem hún fékk til að þroskast. Hún skartar dásamlegum mynd- um Bergsteins Björgúlfssonar sem hefur að þrautseigju og næmi fundið leið til að segja þessa erf- iðu sögu, ásamt einstakri sagnalist Ara Alexanders Ergis Magnússon- ar. Hún er kröftug og átakanleg samfélagsádeila sem leikstjórar á borð við hinn sænska Stefan Jarl, Nick Broomfield og jafnvel Michael Moore reyna einnig að túlka. Syndir feðranna gerir nákvæmlega það sem hún á að gera, hún vekur af værum svefni og heimtar svar. Rut Hermannsdóttir SYNDIR FEÐRANNA Leikstjórn: Bergsteinn Björgúlfsson & Ari Alexander Ergis Magnússon Framleiðendur: Hrönn Kristinsdóttir & Bergsteinn Björgúlfsson Meðframleiðandi: Sigurður Gísli Pálmason, Þorvarður Björgúlfsson og Ari Alexander Ergis Magnússon Handrit: Ari Alexander Ergis Magnússon, Kristján Loðmfjörð Hljóðvinnsla: Ingvar Lundberg Tónlist: Þór Eldon Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson Klipping: Kristján Loðmfjörð Ráðgjafi: Jón Proppé Syndir feðranna er vel unnin heimildarmynd, sem nýtur þess tíma sem hún fékk til að þroskast. ... Hún er kröft- ug og átakanleg samfélagsádeila sem leikstjórar á borð við hinn sænska Stefan Jarl, Nick Broomfield og jafnvel Michael Moore reyna einnig að túlka.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.