Fréttablaðið - 21.10.2007, Qupperneq 110
Útvarpshlustendum gæti brugðið
við næstu dagana, því á öldum
ljósvakans heyrist Sigurður Þ.
Ragnarsson, betur þekktur sem
Siggi stormur, spá fyrir um afar
harðan og kuldalegan vetur.
Landsmenn geta þó látið dúnúlp-
urnar eiga sig enn um stund, því
þar er á
ferðinni
auglýsing
fyrir Toy-
ota.
„Það hefur oft verið leitað til
mín fyrir auglýsingar, en það
hefur alltaf verið mjög skýr
stefna hjá mér að ég les ekki inn
á auglýsingar ef ég þarf að nefna
nöfn einhverrar vöru,“ útskýrði
Siggi. „Það er Egill Ólafsson sem
les hina raunverulegu auglýs-
ingu, en ég les hins vegar veður-
spána í byrjun,“ bætti hann við.
Veðurspána segir hann þó vera
„tómt kjaftæði. Hún snýst um
það að það verði frost og snjór
næstu mánuði og þeir sem séu
ekki á almennilegum bílum ættu
því að halda sig innandyra,“ sagði
Siggi og hló við.
Hann segir það þó tvíbent að
taka þátt í gerð auglýsingar.
„Mér fannst það út af fyrir sig
jákvætt að leitað væri til veður-
stofu Stöðvar 2. Á hinn bóginn
má vel vera að þetta hafi verið
röng ákvörðun og fólki bregði
aðeins í brún,“ sagði hann. „Ég
velti þessu vel fyrir mér og lagði
þetta undir dóm fjögurra kollega
minna sem ég treysti vel, og
ákvað að láta slag standa,“ sagði
Siggi.
Hann segist hafa haft gaman af
gerð auglýsingarinnar, en kveðst
ekki ætla að skipta um starfs-
vettvang. „Ég er líka mikill Land
Rover-maður sjálfur, svo ég hef
engra hagsmuna að gæta í þessu
máli, og mun alls ekki opna veð-
urfréttir á því að spyrja hvort
fólk sé komið á Toyotu,“ sagði
Siggi og hló.
Siggi stormur spáir hörðum vetri
Ívar Helgason þeytist á milli
Íslands og Sviss þessa dagana.
Hér á landi leikur hann nornina í
uppsetningu Þjóðleikhússins á
Skilaboðaskjóðunni, en í Sviss fer
hann með hlutverk Enjolras í Ves-
alingunum.
Ívar lærði klassískan söng í
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
síðar í Söngskóla Reykjavíkur.
Þegar hann hafði lokið 8. stigi
héldu hann og kona hans í nám
við Tónlistarháskóla Austurríkis í
Vín. Áður en Ívar lauk náminu
var hann kominn með stöðu dans-
ara í Raimund Theater í borginni.
„Það var heimsfrumsýning á
söngleiknum Barbarella, eftir
samnefndri kvikmynd. Við sýnd-
um sex sinnum í viku í eitt ár,“
sagði Ívar og viðurkenndi að það
væri dálítið stíft. „Þetta er svolít-
ið öðruvísi en fólk á að venjast
hér,“ sagði hann.
Þegar Ívar sagði skilið við Bar-
barellu tók hann við hlutverki
austurríska keisarans í söngleikn-
um Elísabet í Stuttgart. Á þessu
ári hefur hann hins vegar haft
annan fótinn heima við og hinn í
Sviss, þar sem hann fer með hlut-
verk uppreisnarleiðtogans Enjol-
ras í Vesalingunum. Hann lék
reyndar sama hlutverk í Bad-
Hersfeld í Þýskalandi í sumar.
„Þar kom það upp á að aðalleikar-
inn, sem leikur Jean Valjean, fékk
eitthvað í augun og tónlistarstjór-
inn bað mig um að kynna mér hlut-
verkið. Það leit út fyrir að ég
myndi taka yfir hans hlutverk, en
svo fengu þeir annan í það,“ sagði
Ívar.
Sú uppákoma varð honum held-
ur betur til happs síðastliðinn
sunnudag, þegar aðalleikarinn í
uppsetningunni í Sviss leit eitt-
hvað vitlaust á klukkuna. „Sýning-
in byrjar klukkan fimm, en hann
mætti í hús klukkan sex, alveg
pollrólegur. Þá var ég búinn að
leika einn fjórða af hlutverkinu,
og í rauninni stærstu umskiptin á
karakternum. Hann er alltaf á
sviðinu,“ sagði Ívar og lætur ekki
mikið yfir því afreki. „Ég reyndi
að halda ró minni, en eiginlega
aðallega að halda fólkinu í kring-
um mig rólegu. Sýningarstjórinn
var skjálfandi á beinunum við
hliðina á mér að reyna að setja
mig inn í smáatriðin,“ sagði Ívar,
sem sagði veikindi leikarans í
Þýskalandi hafa verið lán í óláni.
„Það kom sér þokkalega vel,“
sagði hann og hló við.
Ívar á eftir fjórar ferðir til Sviss
fram að áramótum, en þá mun
hann einbeita sér að þátttöku í
söngleiknum Ástin er diskó - lífið
er pönk eftir Hallgrím Helgason.
„Það getur samt vel verið að ég
haldi áfram að hafa annan fótinn
úti, og sérstaklega á sumrin. Það
væri ágætt að geta haldið við þeim
ferli sem maður er búinn að
byggja upp úti,“ sagði Ívar.
Brotthvarf blás ópals mestu vonbrigðin
Brynja Dögg Gunnarsdóttir selur
óvenjulegar lopapeysur sínar í
gegnum netsamfélögin Etsy og
hið splunkunýja Talentdatabase.
„Ég hef verið að prjóna í langan
tíma. Áður var ég mikið í húfum
og að gera armbönd og annað, en
það er svona ár síðan að ég fór að
gera þessar lopapeysur,“ sagði
Brynja.
Hún varð meðlimur í vefsamfé-
laginu Etsy síðla sumars, og hefur
fengið mikil og jákvæð viðbrögð
við hönnun sinni þar. „Ég finn að
fólk er mjög hrifið af íslensku ull-
inni, sérstaklega í Bandaríkjun-
um. Íslendingar eru líka mjög
opnir fyrir öðruvísi lopapeysum,
og lopakjólunum líka,“ sagði
Brynja. Brynja segir að best sé að
lýsa Etsy sem risastórum, alþjóð-
legum handverksmarkaði. „Skil-
yrðin eru þau að maður selji sína
eigin hönnun, og að maður vinni
hana sjálfa. Það má ekki selja
fjöldaframleidda vöru þarna inni,“
útskýrði hún. „Þetta er fyrir alls
konar listamenn, sama hvort þeir
eru að prjóna, gera skartgripi,
mála eða taka ljósmyndir,“ sagði
Brynja.
Hún hefur einnig nýtt sér
splunkunýja síðu undir nafninu
Talentdatabase, til að sýna hönnun
sína. „Það er í rauninni eins og
gallerí og hæfileikagagnagrunnur,
eins og nafnið segir til um,“ sagði
Brynja.
Enn sem komið er hefur Brynja
ekki selt vörur sínar í verslunum
hér á landi. „Ég hef fengið mjög
góð viðbrögð á netinu og er ánægð
með það. Ég væri líka alveg til í að
prófa að selja þetta í verslunum,
en það kemur bara í ljós,“ sagði
hún.
Selur óvenjulegar
lopapeysur á netinu