Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 8
Rússneskur fjölda- morðingi var á miðvikudag sak- felldur fyrir morð á 48 manns í Moskvu. Hann var einnig sak- felldur fyrir þrjár morðtilraunir. Alexander Pichushkin, sem er 33 ára gamall, merkti fórnarlömb sín inn á reiti skákborðs og stefndi að því að fylla alla 64 reit- ina. Hann gortaði af því að hafa myrt 63 og að hann vantaði aðeins eitt fórnarlamb til að fullkomna ætlunarverkið. Saksóknarar fundu aðeins næg sönnunargögn til að sakfella hann fyrir 48 morð. Saksóknarar sögðu Pichushkin hafa lokkað fórnarlömb sín, sem voru oft heimilisleysingjar, í almenningsgarð með því að lofa þeim vodka gegn því að þeir syrgðu með honum dauða hunds síns. Eftir að hafa fyllt fórnar- lömbin myrti hann þau flest með því að hrinda þeim niður í skolp- ræsi. Sum kyrkti hann eða barði af alefli í höfuðið. Pichushkin framdi fyrsta morðið 2001 en árið 2005 hóf hann að beita „sérlegri grimmd“ þegar hann barði fórnarlömb sín ítrek- að í höfuðið með hamri og tróð síðan vodkaflösku inn í hauskúpu þeirra. Pichushkin náðist eftir að hann myrti konu sem hafði skilið eftir miða um að hún væri á leið í göngutúr með honum. Fjórir starfsmenn héldu aðalstöðvum Vinnumálastofnunar gangandi í gær og fyrradag meðan um hundrað manna hópur starfsmanna og maka þeirra var í fræðslu- og skemmtiferð í Póllandi. Fjórmenn- ingarnir sinntu afgreiðslu og tóku skilaboð til samstarfsmanna. Unnur Sverrisdóttir lögfræðingur segir að hópurinn hafi heimsótt systurstofnun sína í Kraká, verið á námskeiði og skipst á upplýsing- um við kollega sína um aðstæður í þessum löndum. „Hópurinn gerir sér glaðan dag í dag, fer í skoðunarferðir og í kvöld er árshátíð,“ segir hún og bendir á að lunginn af starfsmönnum vítt og breitt um landið hafi skellt sér með. „Þetta var alveg brjáðsnjallt því að við erum í svo miklum samskiptum við Pólland.“ Unnur segir að starfsmenn hafi kosið um það hvort þeir hafi viljað halda árshátíðina erlendis og menn hafi ráðið hvort þeir færu með eða ekki. Ferðin hafi ekki verið kostuð af stofnun- inni nema árshátíðin. Ferðin hafi kostað sextíu þúsund á mann og flestir sæki styrk til stéttarfélaga. Margrét Gunnarsdóttir, starfsmaður Vinnumálastofnunar, segir að starfsemin hafi gengið „ótrúlega vel“ þó að margir væru fjarverandi. „Viðskiptavinir fá kannski hægari afgreiðslu en ekkert brennur inni þessa tvo daga.“ Skákborðsmorðinginn sakfelldur Hversu marga fundi hefur borgarráð haldið frá því það var sett á fót árið 1932? Hvaða tímamótum fagnar Handknattleikssamband Ís- lands um þessar mundir? Hvaða síðu á hinn 24 ára gamli tölvunarfræðingur Allan Ellis sem handtekinn var í vikunni fyrir að reka vefræn- ingjasíðu? Frumniðurstöður úr rannsóknum Hafrannsókna- stofnunar á fæðuvistfræði hvala benda til að þeir éti mun meira af þorski og ýsu en talið hefur verið. Rannsóknir á hrefnu benda til að át hennar á þorski sé að minnsta kosti helmingi meira en áætlað hefur verið. Talið var að hrefnan ein æti um 60 þúsund tonn af þorski en niðurstöðurnar benda til að hvala- tegundin éti að minnsta kosti 140 þúsund tonn, sem er tíu þúsund tonnum meira en útgefið aflamark í þorski fyrir fiskveiðiárið 2008. Gísli A. Víkingsson, hvalasér- fræðingur Hafrannsóknastofnunar, kynnti frumniðurstöður verkefnis- ins á 68. aðalfundi LÍÚ á fimmtu- dag. Hann vék að því að samkvæmt líkani, sem gert var árið 1997, gerðu forsendur ráð fyrir að þrjú prósent af þeim tveimur milljón- um tonna sem hrefnan étur árlega væru þorskur. Frumniðurstöður á magainnihaldi hrefnu, sem fallið hefur til í vísindaveiðum frá 2003, sýna hins vegar að sjö prósent af æti hrefnu er þorskur og fimm pró- sent ýsa. Þá á eftir að taka tillit til að eftir er að greina sextán prósent af æti hrefnunnar, sem eru ýmsir beinfiskar. „Hlutfall þorsks og ýsu á því eflaust eftir að hækka eftir að við vinnum úr sýnunum,“ sagði Gísli í kynningu sinni. Miðað við hvalatalningu árið 2001 voru 44 þúsund hrefnur við Ísland en í sumar fór fram ein viðamesta hvalatalning sem gerð hefur verið og var hún hluti af fjöl- þjóðlegu verkefni. Gísli segir að allt bendi til að töluvert minna sé af hrefnu við landið nú en verið hefur. „Það kemur til minnkunar í öllum vangaveltum um át hrefn- unnar hér við land. Það er engin tala komin ennþá en á svæðum sem mjög mikið af hrefnu var á áður var þéttleikinn mun minni nú. Ég geri því fastlega ráð fyrir að stofnmatið á landgrunninu verði mun minna en það var.“ Spurður um hugsanlegar ástæður þess að minna sæist af hrefnu núna en í fyrri mælingum sagðist Gísli tengja það við sandsílisbrestinn sem hefði valdið ætisskorti sjó- fugla við Ísland og víðar. Sílis- skortur gæti einnig verið ástæða þess að meira mældist af þorski og ýsu í æti hrefnunnar. Það vekur athygli að frumniður- stöður rannsóknarinnar sýna að hrefnan éti ekki eingöngu smáan þorsk og ýsu, sem hefði verið eðli- leg ályktun þar sem um skíðishval er að ræða. Þvert á móti étur hrefnan mikið af fiski sem er fjög- ur til fimm kíló að þyngd. Hrefnur taldar éta 140.000 þorsktonn Frumniðurstöður úr rannsóknum á fæðuvistfræði hvala benda til að afrán í þorski og ýsu sé meira en áætlað var. Hrefnan ein étur 240 þúsund tonn hið minnsta. Nýjustu talningar benda þó til fækkunar hrefnu við Íslandstrendur. FL Group hf. (hér eftir „tilboðsgjafi”) er eigandi að samtals 97,92% hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni hf. (hér eftir „TM”). Tilboðsgjafi hefur tekið ákvörðun um að gera hluthöfum í TM tilboð um að selja hluti sína í félaginu til tilboðsgjafa. Um er að ræða valfrjálst yfirtökutilboð, á grundvelli ákvæða laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003. Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari skilmála sem fram koma í tilboðsyfirliti, dags. 29. október 2007, sem hluthafar eru hvattir til þess að kynna sér. Tilboðsyfirlitið er aðgengilegt á heimasíðu FL Group hf., www.flgroup.is, og fæst jafnframt afhent hjá umsjónar- aðila yfirtökutilboðsins, Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis banka hf., Kirkjusandi 2, 105 Reykjavík. Tilboðsyfirlitið hefur að geyma samþykkiseyðublað, sem hluthafar skulu ganga frá og senda með þeim hætti sem þar greinir, ákveði þeir að taka tilboðinu. Tilboðsyfirlitið er jafnframt sent í pósti til nafnskráðra hluthafa í Tryggingamiðstöðinni hf. Tilboðið tekur gildi 31. október 2007 og gildir í fjórar vikur. Reykjavík, 27. október 2007 Yfirtökutilboð til hluthafa Tryggingamiðstöðvarinnar hf. FL GROUP Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri leggur til að skipaður verði starfshópur til að gera starfs- og siðareglur fyrir borgarstjórn Reykjavíkur í samræmi við samþykkt borgar- stjórnar frá í júní. Gert er ráð fyrir að allir flokkar í borgarstjórn tilnefni fulltrúa í starfshópinn og að Guðmundur Steingrímsson, aðstoðarmaður borgarstjórans, verði formaður hópsins, sem muni geta fengið aðstoð embættis- manna og sérfræðinga borgarinn- ar. Borgarráð frestaði afgreiðslu tillögu borgarstjórans á fundi sínum á fimmtudag. Vill siðareglur borgarfulltrúa Eftir nokkurra daga alþjóðleg átök um útgáfu- réttinn á endurminningum Tonys Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hreppti útgáfurisinn Random House hnossið. „Þetta var eitt líflegasta og kappfyllsta ferli sem ég hef tekið þátt í þau tuttugu ár sem ég hef verið fulltrúi höfunda,“ sagði Robert Barnett, bókafulltrúi Blair, sem einnig var fulltrúi Bill Clinton, fyrrver- andi forseta Bandaríkjanna. Blair mun skrifa bókina sjálfur og eru að sögn Barnetts að minnsta kosti tvö ár enn í að hún komi út. Barátta um bók Tonys Blair
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.