Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 31
Að fara með Þrúðmari Kára Ragnarssyni véla-
manni á rúntinn á Chevrolet Corvette C6 er eins
og að svífa á dúnmjúku skýi.
„Þetta er búinn að vera óskabíllinn síðan ég man eftir
mér. Corvetta er eitthvað sem alla sem eru með bíla-
dellu dreymir um,“ segir Þrúðmar Kári hlæjandi.
Skyldi hann hafa átt mörg tryllitæki gegnum tíðina?
„Nei, þetta er minn fyrsti sportbíll. Það má segja að
ég hafi beðið með að kaupa hann þar til ég hafði aldur
og þroska til. Þetta er bara toppurinn.“
„Corvettan hefur verið framleidd alveg frá 1953
og var fyrsta ameríska sportbifreiðin,“ segir Þrúð-
mar Kári og er nú yfirheyrður um tæknileg atriði.
„Þessi er af árgerð 2005, með 6 lítra V8-vél og 400
hestöfl. Hún er 4,2 sekúndur upp í hundraðið og
hámarkshraði er gefinn upp 186 mílur sem er um
það bil 300 kílómetrar á klukkustund.“
Hefurðu eitthvað við þann hraða að gera? getur
blaðamaður ekki stillt sig um að spyrja. „Nei, en samt
er gott að vita af honum,“ svarar Þrúðmar Kári léttur
í bragði. „Þetta er rosalega góður keyrslubíll þótt
hann sé lágur. Ég verð að læðast yfir hraðahindranir
því ekki vil ég reka hann niður. En það kom mér á
óvart að á langkeyrslu eyðir hann ekki nema átta til
níu lítrum á hundraðið. Galdurinn við þennan bíl er
að hann er léttur enda gerður úr plastefni.“
Kári kveðst hafa keypt bílinn síðsumars af félaga
sínum sem var nýbúinn að flytja hann inn. Verðið
var nokkrar millur en Þrúðmar Kári kveðst hafa
fengið það sem hann borgaði fyrir. „Ég er sáttur,“
segir hann. „Það verður að gefa eitthvað fyrir
gæðin.“
Óskabíllinn alla tíð
Auglýsingasími
– Mest lesið