Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 70
Klassík í náttfötum Sinfóníuhljómsveit Norður- lands og Kirkju- og menning- armiðstöðin í Fjarðabyggð standa saman að tónleikum í Glerárkirkju á Akureyri á morgun kl. 16. Tónleikarnir verða endurteknir í Eski- fjarðarkirkju laugardaginn 3. nóvember kl. 17. Þetta er í þriðja skipti sem Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands og Austfirðingar sameinast um tón- leikahald, en haustið 2005 var undirrituð viljayfirlýsing til fimm ára milli hljómsveitarinnar og Kirkju- og menningarmið- stöðvarinnar þess efnis að vinna að einu stóru samstarfsverkefni á ári. Magna Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands, segir sam- starf tónlistarmanna af Norður- og Austurlandi ganga afar vel. „Okkur þótti það gráupplagt að reyna að fá tónlistarmenn frá þessum ólíku landshlutum til þess að vinna saman. Við göntumst stundum með það að Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands sé í raun og veru Sinfóníuhljómsveit lands- byggðarinnar, enda eru hljóð- færaleikararnir okkar ekki bara Norðlendingar. Við erum dreifð um landið sem gerir það að verk- um að æfingaferli okkar er frá- brugðið því sem gengur og gerist; fólk æfir sig eitt í sínum heima- bæ og svo hittumst við öll örfáum dögum fyrir frumflutning og æfum okkur saman.“ Á efnisskrá tónleikanna á morgun eru Pavane fyrir strengi og hörpu eftir Maurice Ravel og konsert fyrir óbó og strengi eftir Tomaso Albinoni. Tónleikunum lýkur á flutningi hinnar mögnuðu Sálumessu op. 48 eftir Gabriel Fauré. Verkin á efnisskránni og útsetningar þeirra helgast að þessu sinni af stærð hljóm- sveitarinnar. „Við erum með fremur litla hljómsveit og mæðir því mest á strengjahljóðfærun- um í verkunum sem við leikum. Útsetning sálumessunnar er til að mynda frá árinu 1984 og er lík- lega ekki sú þekktasta. En það vill svo skemmtilega til að hún kemst sennilega nokkuð nálægt því að vera lík upprunalegu útsetningunni þar sem Fauré samdi verkið aðallega með dýpri strengjahljóðfærin í huga. Messan var svo síðar útsett fyrir stóra sinfóníusveit og er mest leikin í þeirri útgáfu,“ segir Magna. Kórarnir sem taka þátt í flutningi messunnar eru kór Glerárkirkju og kór af Austur- landi sem er samsettur úr kór Egilsstaðakirkju, kór Fjarða- byggðar og söngfólki á Fljóts- dalshéraði og Seyðisfirði. Tónlistaráhugafólk á Norður- og Austurlandi getur hugsað sér gott til glóðarinnar því hér er á ferð sannkölluð tónlistarveisla. kl. 16 Rúna Þorkelsdóttir opnar sýningu á innsetningunni Póstkort til Akureyrar í Gallerí+, Brekkugötu 35, Akureyri í dag kl. 16. Innsetningin saman- stendur af þrykktum blóma- myndum sem Rúna hefur unnið með síðustu tíu árin. Sýningin stendur yfir til 11. nóvember. Grikklandsvinafélagið Hellas heldur annan fræðslufund sinn á starfsárinu í Kornhlöðunni við Bankastræti á morgun kl. 16. Til- efni fundarins að þessu sinni er tvíþætt. Í dag, 26. október, er hálf öld liðin síðan krítverski rithöf- undurinn Níkos Kazantzakís lést, og verður fyrri hluti dagskrár fundarins honum helgaður. Sigurður A. Magnússon rithöfund- ur flytur erindi og segir frá ævi hans og verkum, en síðar kynnir Vilborg Dagbjartsdóttir skáld endurútgefna og endurskoðaða þýðingu Þorgeirs Þorgeirsonar á skáldsögunni Alexis Sorbas og les upp kafla úr henni. Á síðari hluta fundarins verður minnst hins svonefnda „NEI-dags“ sem Grikkir halda hátíðlegan 28. október ár hvert, en þann dag árið 1940 setti einræðisherra Ítalíu, Benito Mussolini, Grikkjum afar- kosti, ef þeir ekki vildu hleypa ítölsku herliði inn á grískt land- svæði. Þáverandi forsætisráð- herra Grikklands, Jóannís Metaxas hershöfðingi, gerði sér hins vegar lítið fyrir og sagði blátt nei við þeirri málaleitan og dró sú einarða afstaða og baráttuhugur Grikkja talsverðan dilk á eftir sér. Þessir atburðir, aðdragandi þeirra og afleiðingar, verða rifjaðir upp og ræddir á fundinum þar sem Guðmundur Jón Guðmundsson sagnfræðingur verður máls- hefjandi. Kristján Árnason, for- maður félagsins, stýrir fundinum sem er öllum opinn. Vinir Grikklands hittast Sýning á verkum listakonunnar Sari Maarit Cedergren opnar í dag í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41, kl. 15. Sari hefur undanfarin ár verið að vinna verk sem endurspegla mismunandi hliðar á íslensku veðri með gifsi og steypu. Merkilegt er að svo hörð efni geti tjáð hið síkvika íslenska verður, en verkin ganga út frá rými sem og samspili ljóss og skugga og Sari nýtir einnig orku veðursins til að knýja áfram hreyf- ingu í verkum sínum. Listunnendum býðst því ein- stakt tækifæri á þessari sýningu til að upplifa íslenska samtíma- myndlist þar sem viðfangsefnið er hið hversdagslega umræðuefni veðurfar, sett upp sem lágmyndir sem mara á mörkum tví- og þrí- víddar. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18 og henni lýkur 18. nóvember. Aðgangur að safninu er ókeypis. Sari verður með listamanna- spjall á morgun kl. 15 og býðst sýningargestum þá spennandi tækifæri til að heyra listakonuna segja frá verkum sínum og hugsuninni á bak við þau. Steypa og gifs tjá veður Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.