Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 40
„Mér er mál“ gæti þessi
standlampi allt eins kallast,
en raunverulegt heiti hans
er Meon.
Hönnunar- og fram-
leiðslufyrirtækið
enPieza! var stofnað
af ungum og fram-
sæknum hönnuðum
á Spáni árið 1995 með
það að markmiði að
skapa hluti sem ekki
lúta almennum mark-
aðslögmálum.
Sama ár og fyrir-
tækið var stofnað hlaut
það verðlaun á Alþjóð-
legu sýningunni í Genf,
Inventions and New
Techniques, fyrir svo-
kallaðan Duosys-hjóla-
stól.
Verðlaunaveitingin
markaði ákveðin þátta-
skil í sögu fyrirtækisins.
Hún sannfærði aðstand-
endur þess að þeir væru
á réttri braut, enda
hafa þeir síðan einblínt á
sköpun fallegra og nota-
drjúgra hluta, oft gerða
úr gömlum hlutum sem
fengið hafa algjöra yf-
irhalningu og öðlast við
það allt annað notagildi.
Hjólabretti eru þannig
nýtt sem fínustu fatahengi,
hundruð penna mynda
saman lampaskerm
og borðspil breytast
í stólbak og sessu
eins og hendi væri
veifað eftir að hönn-
uðir enPieza! hafa lokið
sér af.
Starfsmenn fyrir-
tækisins hafa einn-
ig látið til sín taka á
öðrum sviðum hönn-
unar, svo sem í graf-
ískri hönnun, skart-
gripagerð og hönnun og
framleiðslu sólgleraugna
svo dæmi séu nefnd.
Hér verður þó látið
nægja að sýna nokkra inn-
stokksmuni frá enPieza!
sem eru ágætur vitnisburð-
ur um þá sköpunargleði sem
hönnuðirnir búa yfir.
Nánar á www.enpieza.
com.
Úr hjólabretti í fatahengi
Colgao
kallast
þessi
borðlampi.
Ekki beint
upplífgandi en
athyglisverður
engu síður.
Ljósakróna þessi kallast 895 Rome og er
skermurinn gerður úr fjölda penna.
Sillan 43 er heiti þessa stóls sem
meðal annars er búinn til úr borð-
spili.
Fyrirtækið enPieza! er þekkt fyrir að
varpa óvæntu ljósi á hversdagslega hluti
með því að finna þeim nýtt hlutverk.
Hjólabretti
eru greini-
lega handhæg fatahengi,
þar sem hjólin eru fínir
snagar undir regnhlífar og
yfirhafnir.
27. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR4