Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 74
Það er alltaf gaman að sjá þegar íslenskri tísku er hrósað á alþjóðavísu.
Síðustu helgi voru á landinu bæði þau Yvan Rodic, sem er betur
þekktur sem „Facehunter“, og Lauren Bastide, blaðamaður franska
Elle, til þess eins að forvitnast um íslenska tísku á tónlistarhátiðinni
Iceland Airwaves. Rodic tók fjöldann allan af myndum af fólki úti á
götu og á tónleikum og hélt ekki vatni yfir „einstökum stíl“ Íslendinga.
Blaðakonan birti nokkur myndskeið á vefnum elle.fr þar sem hún
kannar nokkrar verslanir í miðbænum. „Paradís „vintage“-búðanna,“
segir Lauren um borgina okkar og útskýrir að meðan konur í öðrum
heimsborgum reiði sig aðallega á Zöru og H&M séu reykvískar dömur
meistarar í að blanda saman notuðum fötum til þess að skapa einstakt
útlit. KronKron var lýst sem „Colette“ Íslands og augljóst var að
blaðakonan var gersamlega ástfangin af öllu sem fyrir augu hennar
bar. Eins skemmtilegt og það er að heyra íslenskri tísku hrósað svona
óspart er ekki laust við að ég kannist ekki alveg við þessa frábæru
tískuborg Reykjavík þegar ég horfi á allt þetta litskrúðuga og fallega
fólk á bloggsíðu Rodics. Af einhverjum ástæðum finnst mér alltaf
meirihluti þeirra sem ég sé á götum borgarinnar íklæddur flíspeysum
eða þessu týpíska „hnakka“lúkki og blandast allir í einn sauðskinns-
litaðan strípugraut. En glöggt er gests augað og mér fannst dásamlegt
að skoða myndirnar af litskrúðugu fólki með einstakan stíl á síðu
Rodics. Eitt sem mér finnst þetta þó sýna er hversu sterkur miðbærinn
kemur inn sem hátískustaður. Það er ekki svo langt síðan verslanir
kepptust um að flýja Laugaveginn og færa sig í verslunarmiðstöðvar í
úthverfunum. Þær standa auðvitað fyrir sínu og ekkert að því að ná sér
í „basics“ einmitt í Zöru eða TopShop eða hvað þetta nú allt heitir. En
það sem gerðist í kjölfarið var að undanfarin ár hefur Laugavegurinn
breyst til hins betra og allskyns áhugaverðar búðir hafa fest sig í sessi
þar. Ferðamenn sem ganga upp og niður þessa undarlegu ósamstæðu
aðalgötu okkar geta sökkt sér í stórkostlegar hátískuverslanir, auk
þeirra fjölbreyttu „vintage“-búða sem auka svo sannarlega flóruna. Því
segi ég húrra fyrir Laugaveginum og þeirri sköpunargrósku sem þar
blómstrar. Þeir sem vilja svo skoða íslenska tísku í allri sinni einstöku
dýrð geta skoðað www.facehunter.org.
Tískuparadísin Reykjavík?
Víða á tískusýningunum fyrir vor- og sumartískuna
2008 mátti sjá útgáfur af smóking-jakkanum sem
hönnuðurinn Yves Saint-Laurent gerði frægan árið
1966. Buxnadragtin „Le Smoking“ var endursniðinn
fyrir konur og öðlaðist ómældar vinsældir. Margir töldu
Saint-Laurent hafa gefið konum aukin völd með því að
veita þem þann valkost að klæðast fötum sem eitt sinn
klæddu aðeins ríka og valdamikla karlmenn. Svarti
smókingjakkinn er alltaf klassískur kvöldklæðnaður fyrir
konur á öllum aldri og getur óneitanlega verið kynþokka-
fullur. Hjá Dior, Ann Demeulemeester, Lanvin,
Victor&Rolf og MiuMiu mátti sjá skemmtilegar útgáfur
af smóking og slaufum í svörtu og hvítu.