Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 79
Rússneska mafían og aðrar
glæpaklíkur tengdar Sovétríkjun-
um sálugu hafa vaxið og dafnað á
þeim sextán árum sem liðin eru
síðan stórveldið féll. Rússarnir,
líkt og aðrir glæpaflokkar, eru
bæði miskunnarlausir og vell-
auðugir og stunda bæði eitur-
lyfjaviðskipti og vopnasölu þótt
stærsta „útflutningsvaran“ sé
barnungar stúlkur frá heima-
landinu sem neyddar eru í vændi
með skelfilegum afleiðingum.
Mansal er einmitt hreyfiafl
sögu Eastern Promises, sem snýst
að mestu um leit ljósmóðurinnar
Önnu að uppruna sjúklings sem
dó á skurðarborðinu við að fæða
barn. Eina vísbendingin er dag-
bók og nafnspjald veitingastaðar
í miðborg Lundúna sem rekinn er
af hinum vinalega Semyon. Fljót-
lega kemst Anna þó á snoðir um
að á bak við föðurlegt útlit hans
er miskunnarlaus morðingi og
glæpaforingi.
Stemningin í Eastern Promises
er glettilega lík og í síðustu mynd
Cronenbergs. Framvindan er hæg
en örugg og inni á milli skellur
ofbeldið á áhorfandanum með
þeim áhrifum að hann veit ekki
hvort hann á að hlæja eða kúgast.
Á köflum gengur Cronenberg
hins vegar aðeins of langt og
endar í óþarfa og hálfgerðum per-
vertisma fyrir blóði og skurðum.
Leikurinn er traustur þótt
Viggo Mortensen sé ef til vill
aðeins of ýktur sem hinn tilfinn-
ingalausi Nikolai. Vincent Cass-
ell, Armin Mueller- Stahl og
Naomi Watts standa fyrir sínu og
þá er gaman að sjá „góðkunn-
ingja“ frá BBC bregða fyrir í
myndinni af og til. Eastern Prom-
ises nær ekki ekki sömu hæðum
og A History of Violence, sem
hún verður óhjákvæmilega borin
saman við, en hún er alveg örugg-
lega með því besta sem áhorfendur
geta séð um þessar mundir í kvik-
myndahúsum borgarinnar.
Í klóm rússnesku mafíunnar
Leikarinn Woody Harrelson hefur
ákveðið að leika á móti Bruce Willis
í stríðsmynd Olivers Stone,
Pinkville. Harrelson vann síðast
með Stone í hinni umdeildu Natural
Born Killers sem kom út árið 1994.
Pinkville er byggð á hinu þekkta
My Lai-fjöldamorði sem átti sér
stað í Víetnamstríðinu. Þá drápu
bandarískir hermenn hundruð
Víetnama með köldu blóði.
Hún verður fjórða
myndin sem Stone
gerir um stríðið í
Víetnam og er
óskarsverðlaunamynd-
in Platoon þar á
meðal. Tökur
hefjast á
næsta ári.
Harrelson í
Pinkville