Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 12

Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 12
[Hlutabréf] Hagnaður Kaupþings á þriðja ársfjórðungi var rúmir fjórtán milljarðar króna eftir skatta. Þetta er eilítið lakari afkoma en starfsfólk greiningar- deilda hafði spáð. Forstjóri Kaupþings segir óróa á alþjóðlegum skuldabréfa- mörkuðum hafa haft áhrif á reksturinn. Hagnaður eftir skatta á þriðja árs- fjórðungi dróst saman um 59,3 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Meginskýringin á þessum mikla mun er 21.4 milljarða króna hagnaður vegna sölu og skráning- ar á hlut Existu í fyrra. Sé horft framhjá því eykst hagnaðurinn milli ársfjórðunga um þrjú pró- sent. „Við höfum verið að tapa pening- um á hækkandi vöxtum á íslenskum krónum og óróa á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum. Skulda- bréfastöður okkar hafa verið að koma illa út á fjórðungnum. Þetta sýnir mikilvægi þess að vera með dreifða áhættu og fjölbreyttan rekstur,“ segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings. Af þeim sökum hafi bankinn náð að skila nítján prósenta arðsemi á eigin fé þrátt fyrir sveiflur. Greiningardeild Glitnis bendir á að skuldatryggingaálag Kaupþings sé í sögulegu hámarki. Álagið er mælikvarði á kjör bankans á alþjóðamörkuðum. Þegar álagið hækkar verður dýrara að fjár- magna starfsemina. Hreiðar Már lagði í gær áherslu á að innlán bankans yrðu notuð í auknum mæli til að fjármagna starfsemina. „Það verður áhersla á aukin innlán. Við erum með litla endurfjármögnunarþörf á næsta ári svo við teljum okkur ekki þurfa að gefa út mikið af skuldabréfum á evrópskum markaði.“ Hann telur að álagið muni ekki haldast hátt næstu mánuðina. Sé horft til fyrstu níu mánaða ársins jókst hagnaður eftir skatta um 31,3 prósent frá sama tímabili í fyrra og var rúmir sextíu milljarð- ar króna. Hreiðar Már segir fjár- festingaráðgjöf Kaupþings hafa gengið vel á þriðja fjórðungi. „Þetta er metfjórðungur þar. Við erum orðin mjög stór á Norður- löndunum og það er aðeins einn annar norrænn banki sem hefur verið að vinna í jafn stórum við- skiptum það sem af er ári og Kaup- þingssamstæðan.“ Töpuðu vegna óróans Sævar Freyr Þráinsson verð- ur forstjóri Sím- ans frá næstu mánaðamótum. Hann tekur við starfinu af Brynjólfi Bjarna- syni sem fram- vegis einbeitir sér að móðurfé- laginu Skiptum og fleiri tengdum félög- um. Sævar er 36 ára gam- all fjölskyldumaður. Hann hefur starfað hjá Símanum frá árinu 1995 þegar hann lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur setið í framkvæmda- stjórn Símans undanfarin þrjú ár. Seinast var hann fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs en þar áður stýrði hann far- símasviði. Sævar situr einnig í stjórn nokkurra fyrirtækja í eigu Skipta, í Bretlandi, Noregi og Svíþjóð. Þriðj- ungshlutur í Símanum verður seldur almenn- ingi og fjárfestum fyrir áramót. Nýr forstjóriViðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali Þjónustusími sölumanna eftir lokun 694 1401 Melabraut 21 - Seltjarnarnes Opið hús laugardag frá kl. 14 – 15 Fallega teiknað parhús með bílskúr og aflokuðum garði. Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi og glæsilegt baðher- bergi. Á neðri hæð er nýtt eldhús, stofa og sólstofa m/kamínu. Vönduð gólfefni. Rúmgóður bílskúr m/mikilli lofthæð. Húsið og garðurinn hefa verið mikið endurnýjað og eignin sérlega glæsileg. Verð 49.0 millj. Glæsileg eign með frábæra staðsetningu. Laugavegi 170, 2. hæð • Opið virka daga kl. 9:00-17:00 Sími 552 1400 • Fax 552 1405 • www.fold.is • fold@fold.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.