Fréttablaðið - 27.10.2007, Síða 34

Fréttablaðið - 27.10.2007, Síða 34
Daglangt námskeið fyrir óvana ökumenn á óbreyttum jeppum og jepplingum verður haldið á vegum Arctic Trucks hinn 3. nóvember. Arctic Trucks býður upp á nám- skeið í jeppaakstri í byrjun nóv- ember fyrir þá sem ekki eru bug- aðir af reynslu. Markmiðið er að að kenna ökumönnum að aka við hinar ýmsu aðstæður en fram- kvæmdin er háð færð og veðri. Komið verður saman kl. 9 að morgni í kennslusal Arctic Trucks við Klettháls þar sem haldin verð- ur stutt kynning og boðið upp á létta hressingu. Um kl. 9.30 verð- ur svo lagt af stað í dagstúrinn. Þátttakendur lenda á leiðinni í margvíslegum áskorunum svo sem mismunandi vegslóðum, háum hryggjum, bröttum brekk- um, lækjum og ám. Allir bílar fá VHF-talstöð að láni og leitast er við að koma sem mestum upplýs- ingum á framfæri allan daginn. Hámarksfjöldi bíla í ferðina er tíu, auk bíla leiðbeinenda og verð fyrir hvern bíl er 10.000 krónur. Innifalið er leiga á talstöð, jeppa- bók Arctic Trucks, léttar veitingar áður en lagt er af stað og samlokur og drykkir síðar um daginn. „Við héldum svona námskeið nýlega og almenn ánægja var með það. Það var meðal annars sótt af fólki sem hafði átt jeppa um skeið en aldrei sett í lágadrifið,“ segir Hallveig Andrésdóttir hjá Arctic Trucks og bendir á heimasíðuna www.arctictrucks.is Ökuleikni í óbyggðum Nú er hægt að tilkynna eig- endaskipti bíla og ganga frá skráningu þeirra með rafræn- um hætti á vef Umferðarstofu www.us.is. Umferðarstofa, í samstarfi við Glitni og Kaupþing, býður nú við- skiptavinum að tilkynna eigenda- skipti og ganga frá skráningu á vef Umferðarstofu www.us.is. Slíkt ferli hefur hingað til krafist ferða- laga og fyrirhafnar. Einar Magnús Einarsson, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir aðferðina auðvelda, þægilega og fljótlega og gefur hér dæmi um ferlið. „Viðskiptavinurinn fer inn á heimasíðu Umferðarstofu www. us.is og velur þar „Sjálfsaf- greiðsluvef“ þar sem eigenda- skiptin eru skráð. Síðan fer hann inn á netbanka sinn hjá Kaupþingi eða Glitni og gengur frá staðfest- ingu á viðskiptunum og greiðslu. Öllum sem málið varðar gefst síðan kostur á að fá staðfestingu á framgöngu mála senda með SMS- skeyti eða tölvupósti.“ Einar segir helsta nýmæli þessa kerfis vera að rafræn persónuauð- kenni komi sjálfkrafa ef eigenda- skiptin fari fram gegnum heima- banka. Því geti viðskiptavinurinn verið staddur hvar sem er í heim- inum. „Hjá Umferðarstofu eru árlega færð 80-100 þúsund eig- endaskipti á bifreiðum,“ segir hann. „Því er ljóst að mikill hagur er að því ef hægt er að auðvelda og stytta framkvæmdina.“ Nýjung í netþjónustu Ökunám í fjarnámi !!!! Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin í tölvunni heima þegar þér hentar. Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið. Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl. Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is Japan/U.S.A. STÝRISENDAR, SPINDILKÚLUR OG FÓÐRINGAR í jeppa í miklu úrvali Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 www.us.is EIGENDASKIPTI ÖKUTÆKJA Á VEFNUM Umferðarstofa, í samstarfi við Glitni og Kaupþing, býður nú þann möguleika að tilkynna eigenda- skipti og ganga frá skráningu meðeigenda og umráðamanna bifreiða með rafrænum hætti á vef Umferðarstofu. Kynntu þér þessa einföldu og þægilegu nýjung á www.us.is. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 7 -0 8 4 1 Alorka • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080 Heilsársdekk 31" kr. 12.900 (31x10.50R15) 33" kr. 15.900 (33x12.50R15) Úrval annarra stærða upp í 38". Felgustærð 15", 16" 17" og 18". Sendum frítt um land allt! Við mælum með míkróskurði P IPA R • S ÍA • 70 622 Nánar á jeppadekk.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.