Fréttablaðið - 27.10.2007, Síða 59

Fréttablaðið - 27.10.2007, Síða 59
Auglýst er eftir þátttakendum í forvali fyrir lokaða samkeppni um gerð útilistaverks sem rísa á í maí 2008 á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ. Að verkefninu standa Mosfellsbær og Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, en tilefnið er 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi árið 2008, þar sem miðað er við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni standa að gerð útilistaverks í bænum. Ákveðið hefur verið að auglýsa eftir þátttakendum í forvali en að í kjölfarið fari fram lokuð samkeppni þriggja listamanna sem forvalsdómnefnd velur úr þátttakendum í forvali. Forvalið er opin samkeppni þar sem öllum myndlistarmönnum er heimilt að senda inn tillögur. Í lokaðri samkeppni taka þátt þeir þrír listamenn sem forvalsdómnefnd velur. Í störfum forvalsdómnefndar og dómnefndar lokaðrar samkeppni verður gætt nafnleyndar listamanna. Haldin verður sýning á öllum tillögum úr lokaðri samkeppni í Bókasafni Mosfellsbæjar. Tillögur í forval skal afhenda þann 21. nóvember, fyrirspurnir vegna forvals berist eigi síðar en 1. nóvember. Greidd verður þóknun, kr. 200.000, hverjum þeirra þriggja listamanna sem þátt munu taka í lokaðri samkeppni. Sá listamaður (tillaga) sem fyrir valinu verður fær auk þess kr. 800.000 í þóknun fyrir að fullvinna módel eða vinnuteikningar þannig að verkið verði tilbúið til fullvinnslu og við þá greiðslu hafa Samorka og Mosfellsbær tryggt sér rétt til að nýta vinningstillöguna til að gera eftir því útilistaverk. Loks verða listamanninum tryggð 2ja mánaða laun, sem samsvarar launum bæjarlistamanns Mosfellsbæjar, á meðan á vinnslu verksins stendur, til að fylgja eftir fullvinnslu verksins, samtals kr. 316.000. Nánari upplýsingar um samkeppnisreglur má finna á vefsíðum Samorku (www. samorka.is) og Mosfellsbæjar (www.mosfellsbaer.is). Samkeppni um útilistaverk á nýju torgi við Þverholt í Mosfellsbæ í tengslum við 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi Fr u m Florida – íbúð til sölu Til sölu tveggja herbergja íbúð, svefnherbergi, stofa, bað og eld- hús. Íbúðin er ca. 30 mín frá Sanford flugvelli í Orlando, á svæði sem heitir Ventura. Svæðið er lokað og innan svæðisins er meðal annars: 18 holu golfvöllur 3 sundlaugar (ein upphituð) Tennisvöllur Klúbbhús o.fl. Í nágrenninu er Disneyland, sundlaugargarðurinn Wet Wild, Sea World o.fl. Einnig er stutt í Florida Mall, Fashion Square Mall og alla aðra þjónustu. Nánari upplýsingar í síma 824 5157 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Fr u m Falleg 154,9 fm (þ.a. er bílskúr 31,1 fm) hæð + ris í tvíbýlishúsi. Eignin skiptist í m.a. í þrjár stofur, þrjú svefnherbergi, baðherb., gestasnyrtingu, geymslur o.fl. Bíl- skúr er fullbúinn. Mjög falleg og vel skipulögð eign í grónu og fal- legu hvefi. Íbúðin er laus við kaupsamning. Verð 39,9 millj. ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG LAUGARDAG FRÁ 15.00-16.00. LANGHOLTSVEGUR 97 – LAUS – OPIÐ HÚS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.