Fréttablaðið - 27.10.2007, Side 66
Peking er mjög alþjóðleg þegar
kemur að framboði af veitinga-
stöðum enda er giskað á að meira
en 60.000 veitingastaðir séu hérna.
Það er liðin tíð að þú getir ekki
fengið magafylli þína nema að
borða hvítkál eða hrísgrjón með
prjónum.
Mikill fjöldi veitingastaða býður
upp á mat frá öllum heimshornum.
Sem dæmi má nefna ítalska staði,
ameríska, franska, japanska, arab-
íska, víetnamska, þýska, kóreska,
taívanska og fleiri mætti upp telja.
Gróskan er mikil og vikulega
heyrist af nýjum stöðum opna en af
öðrum sem eru að loka eða færa sig
um set.
Margir af þessum stöðum eru
mjög hipp og kúl og standast algjör-
lega samanburð við flotta veitinga-
staði í öðrum stórborgum. Þessir
staðir bjóða almennt upp á mat-
seðla á ensku en það sama verður
ekki sagt um kínversku veitinga-
staðina.
Hér er auðvitað engin vöntun á
veitingastöðum sem bjóða upp á
heimamat frá mismunandi héruð-
um Kína og jafnframt er mismun-
andi mikið lagt í matinn og útlit
staðanna. Eins og áður sagði eru
matseðlarnir sjaldnast á ensku
en ef þú ert heppin(n) eru myndir
af réttunum á matseðlunum. Það
getur því verið erfitt að panta sér
mat ef hvorki eru myndir af rétt-
unum né starfsfólk sem skilur
ensku en þá er bara að benda á
girnilegan rétt á næsta borði eða
treysta á lukkuna.
Kínverjar fara mikið út að
borða og er mikið af látlausum
stöðum sem bjóða uppá heimilis-
legan mat eins og soðkökur. Ekki
er hægt að ræða um mat í Peking
án þess að minnast á pekingönd.
Það eru margir staðir sem bjóða
upp á þennan sérrétt Peking-
borgar. Stökk að utan en mjúk að
innan er öndin borin fram með
pönnukökum og plómusósu.
Á fínni veitingastöðum er gæða-
vottorð borið fram með öndinni
þar sem númer hennar kemur
fram. Í Peking er mikil götu-
matarmenning.
Á morgnana er vinsælast að fá
sér stökkar pönnukökur með
steiktu eggi, lauk og kryddi og er
þessu skolað niður með soja-
mjólk. Annars er götumaturinn
árstíðabundinn og nú að haust-
lagi er algengast að sjá bakaðar
sætar kartöflur, soðinn maís, rist-
aðar kastaníuhnetur, sykurhúðuð
ber og mandarínur á spjótum.
Að versla hérna í matinn er ævin-
týri en það getur tekið virkilega á.
Það er varla nokkur hlutur sem er
merktur á ensku, hvað þá að upp-
lýsingarnar um matvörurnar séu
skiljanlegar. Hilla eftir hillu fullar
af sojasósu hjálpar manni ekki að
velja sojasósu þegar þú skilur ekki
hver munurinn á þeim á að vera.
Einnig er erfitt að finna pakkning-
ar af hrísgrjónum sem eru minni
en 5 kílóa. Þá er óendanlega mikið
af vörum sem líta skringilega út,
merktar á kínversku svo maður
getur staðið heillengi yfir þeim og
reynt að ímynda sér hvað þetta
getur eiginlega verið og hvernig
eigi að nota þær í matargerð. En
svo leynast kunnuglegar vörur inni
á milli eins og 2 tegundir af súkku-
laði, Snickers og Kit Kat. En þess
má geta að vestrænar matvörur
eru hér glæpsamlega dýrar, sem
dæmi má nefna að pakki af hrökk-
brauði kostar allt að 250 kr.
Allir stórir matvörumarkaðir
sem ég hef komið hér inn í hafa að
geyma fiskabúr full af sprelllifandi
matfiskum, en það gerist nú ekki
mikið ferskara en það. Einnig hef
ég orðið vör við þetta á veitinga-
húsum og hef ég upplifað það að fá
reidda fram á borðið mitt rækju á
spjóti enn hreyfandi alla anga.
Ekki er hægt að skrifa um mat í
Peking án þess að minnast á ýmsan
furðulegan mat sem hér er á boð-
stólum. Hægt er að gæða sér á
grilluðum sporðdrekum og snákum,
skjaldbökukássum og auðvitað
hundakjöti. Ég rakst einnig á svo-
kallaðan „hotpot“ veitingastað sem
er með á matseðli sínum getnaðar-
limi apa og dádýra.
Það ættu því allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi og mat-
gæðingar verða ekki fyrir von-
brigðum hér. kolafs@simnet.is
var sagt í útvarpinu. Reyndar
geta lærðir menn að vísu verið
leiknir, en orðtakið er nú samt
lærðir og leikir – í merkingunni
lærdómsmenn og leikmenn.
Við skulum heyra nasaþef... var
sagt á Rás 2, og þarf líklega sér-
staka hæfileika til. Að vísu tíðkast
í ljóðagerð ákveðin færsla milli
skynsviða, en tæpast held ég að
nokkru ljóðskáldi dytti í huga að
taka svo til orða.
Oft er farið ranglega með sam-
heitið Norðurlönd. Það gerðist
m.a. hér í Fbl. í liðnum mánuði:
„Auk hennar syngja lagið fjórar
stórsöngkonur, ein frá hverju
Norðurlandi.“ Þetta er auðvitað
misskilningur. Ekkert land heitir
Norðurland, einungis landshluti.
Þannig er t.d. Norrland í Svíþjóð,
eins og Norðurland hér. Ein frá
hverju Norðurlanda er eðlilegra
málfar. Svo eru heldur leiðinleg
orðin „stórsöngkona“ og „stór-
söngvari“ – en það er annað mál.
Óskar Aðalgeir Óskarssom skrifar:
„Ég tók eftir þessum kostulega
texta á vefsíðu, sem heitir torrent.
is. „...einnig viljum við koma því á
framfæri að skilmálar og reglur
hafa farið í gegnum endurnýjun.
Helstu breytingar má meðal ann-
ars nefna að notendur eru ekki
eyddir lengur og þeir sem hafa nú
þegar verið eyddir geta sótt um
afeyðingu sbr. nýju reglurnar.“
Hvað finnst þér? Mér finnst ljótt
að eyða fólki, en kannski er hugg-
un að því að geta sótt um afeyð-
ingu, hvernig svo sem það er gert.
Gott væri ef drepið fólk gæti sótt
um afdráp!
Kristján Gylfi Guðmundsson
skrifar: „Mín aðaláhugamál eru
fótbolti og íslensk tunga. Ég rek
því oftar en ekki nefið inn á vef-
síðuna fotbolti.net Þar er málfar
stundum varhugavert eins og víða
annars taðar. Hins vegar rak mig
algjörlega í rogastans, þegar ég
las pistil Jónasar Guðna Sævars-
sonar fyrirliða Keflavíkur. Jónas
segir: „Eftir á að hyggja hefur það
ef til vill haft eitthvað að segja þó
svo okkur leikmönnum hafi á
þeim tíma alls ekki fundist það
vera valdurinn að slæmu gengi.“
Eins og við vitum er nafnorðið
valdurinn ekki til og hefði ofan-
greind setning t.d. getað verið á
þessa leið: „Eftir á að hyggja
hefur það ef til vill haft eitthvað
að segja þó svo okkur leikmönn-
um hafi á þeim tíma alls ekki
fundist það hafa valdið slæmu
gengi.“ Þarna hefði farið vel á að
nota hjálparsögnina hafa til að
útkoman sé boðleg, í stað þess að
taka sér það bessaleyfi að búa til
nafnorð sem ekki er til í íslensku
máli.“ Þetta er klaufalegt, en
reyndar er no. valdur til í merk-
ingunni ráðandi, stýrir, en að vísu
í fornum kenningum, svo sem
himna valdur (guð) og fleina vald-
ur (hermaður).
Hímir undir hausti þreyttur holta-
gróður.
Lætur tæmast lokasjóður
ljósberi þá slokknar hljóður.
Vilji menn senda mér braghendu
eða góðfúslegar ábendingar:
npn@vortex.is
99 kr. smsið
Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐ á
númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef
svarið er Jón: Þá sendir þú SMS-ið: JA LAUSN JON
Þú gætir unnið
Skoppu og Skrítlu á DVD
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur