Fréttablaðið - 27.10.2007, Side 82
Makedónarnir Jovan
Zdravevski og Dimitar Karadzov-
ski spiluðu undanfarin tímabil með
Skallagrími og áttu mikinn þátt í
góðu gengi Borgnesinga, sem kom-
ust meira segja alla leið í lokaúrslitin
fyrra árið.
Jovan lék einn fyrsta árið en
Dimitar bættist síðan í hópinn og
undanfarin tvö ár voru þeir aðal-
skyttur Borgarnesliðsins. Í sumar
yfirgáfu þeir báðir Skallagrím,
Jovan samdi við Íslandsmeistara
KR en Dimitar fór til nýliða Stjörn-
unnar. Þessi vistaskipti hafa greini-
lega farið misvel í þá því á sama
tíma og Jovan hefur fundið sig illa
hjá KR hefur Dimitar blómstrað í
Stjörnuliðinu.
Jovan Zdravevski var með 21,8
stig, 2,9 stoðsendingar og 44,6 pró-
senta þriggja stiga skotnýtingu með
Skallagrími í deildinni í fyrra og
skilaði þá 20,5 framlagsstigum að
meðaltali til síns liðs í 22 leikjum.
Í fyrstu þremur leikjum sínum
með KR í deildinni í ár hefur Jovan
hins vegar skorað 11,7 stig, gefið
0,7 stoðsendingar og klikkað á 14 af
17 þriggja stiga skotum sínum.
Hann hefur skilað 8,7 framlagsstig-
um að meðaltali til KR-liðsins á
þeim 21,3 mínútum sem hann hefur
spilað í leik. Jovan er því að skora
10,1 færri stig í leik, gefa 2,2 færri
stoðsendingar, hitta 27 prósentum
verr úr þriggja stiga skotum og
skila 11,8 færri framlagsstigum til
síns liðs.
Dimitar Karadzovski var með
16,7 stig, 4,5 stoðsendingar og 32,3
prósenta þriggja stiga skotnýtingu
með Skallagrími í deildinni í fyrra
og skilaði 14,2 framlagsstigum að
meðaltali til síns liðs í 22 leikjum.
Í fyrstu þremur leikjum sínum
með Stjörnunni hefur Dimitar
skorað 20,0 stig, gefið 4,3 stoð-
sendingar og skorað 4,7 þrista að
meðaltali í leik þar sem hann hefur
hitt úr 46,7 prósentum skota sinna
fyrir utan þriggja stiga línuna.
Dimitar hefur skilað 18,3 fram-
lagsstigum að meðaltali til Garða-
bæjarliðsins á þeim 33,3 mínútum
sem hann hefur spilað í leik.
Dimitar er því að hækka sig frá
því í fyrra því hann er að skora 3,3
fleiri stig, setja niður 2,2 fleiri
þrista í leik og hitta 14,4 prósent-
um betur úr skotum yfir utan
þriggja stiga línuna. Með þessu er
Dmitar að skila 4,1 fleiri fram-
lagsstigi til síns liðs að meðaltali í
leik.
Því má ekki gleyma að Jovan
var að fara í mun sterkara lið þar
sem er mun harðari samkeppni
um mínútur en engu að síður fer
það ekki framhjá neinum að á
sama tíma og Dimitar hefur bætt
sinn leik hefur Jovan misst
dampinn.
Eina tölfræðin sem er Jovan
hagstæð er sigurhlutfallið því KR
hefur unnið tvo leiki í fyrstu þrem-
ur umferðunum en Stjarnan aðeins
einn.
Dimitar blómstrar en Jovan dalar mikið
Snæfell er eina liðið í
Iceland Express deild karla sem
hefur ekki náð að vinna leik í
fyrstu þremur umferðum
tímabilsins en liðið tók fyrsta titil
tímabilsins þegar liðið varð
Powerade-meistari fyrir mót.
Snæfell hefur tapað fyrir
Njarðvík og KR á útivelli og svo í
framlengingu gegn Keflavík á
heimavelli. Snæfellsliðið hefur
ekki byrjað verr í níu ár, eða
síðan liðið tapaði þremur fyrstu
leikjum sínum þegar það var
nýliði í deildinni tímabilið 1998-
99.
Snæfell vann þá Njarðvík á
heimavelli í fjórða leiknum og
síðan næstu fjóra leiki á eftir.
Næsti leikur Hólmara er gegn
Stjörnunni á heimavelli á
sunnudagskvöldið.
Versta byrjun
Snæfells í 9 ár
KR ákvað að semja
ekki við Ernestas Ezerskis,
tvítugan litháískan bakvörð sem
hefur verið til reynslu hjá liðinu,
en hann kom úr herbúðum
stórliðsins Lietuvos Rytas
Vilnius.
Ezerskis lék tvo leiki með KR-
liðinu, var með 3 stig á 14
mínútum í tapi í úrslitaleik
Powerade-bikarsins gegn
Snæfelli og skoraði síðan 15 stig
og gaf 3 stoðsendingar á 19
mínútum í 100-78 sigri á Fjölni í
1. umferð Iceland Express
deildarinnar.
KR samdi í staðinn við banda-
ríska bakvörðinn Avi Fogel sem
er af ísraelskum ættum. Fogel
hefur skorað 22,0 stig, gefið 6,0
stoðsendingar og hitti úr 60
prósentum þriggja stiga skota
sinna í fyrstu tveimur leikjum
sínum í KR-búningnum.
KR-ingar létu
Litháann fara
Erla Dögg Haraldsdóttir,
nítján ára sundkona úr ÍRB, vann
100 metra bringusund á danska
meistaramótinu í gær þegar hún
kom í mark á 1 mínútu og 10,60
sekúndum.
Erla Dögg bætti átján ára met
Ragnheiðar Runólfsdóttur í
undanúrslitunum og synti aftur
undir gamla metinu í úrslitasund-
inu en dagsgamalt Íslandsmet
hennar hélt þó velli.
Erla Dögg byrjaði ekki eins vel
og í undanúrslitasundinu og var
önnur eftir 50 metra en hún kom
sterk inn í lokin og tryggði sér
gullið, aðeins þremur hundruð-
ustu á undan Louise Jansen frá
Danmörku.
Vann gullið en
metið hélt