Fréttablaðið - 16.11.2007, Page 31
Stefán Halldórsson hefur rekið verslunina
Skerjaver ásamt konu sinni Hjördísi Andrés-
dóttur um nokkurra ára skeið. Nýlega hættu
þau búðarrekstrinum og ætla að snúa sér að
kryddframleiðslu.
Verslunin Skerjaver fer ekki framhjá neinum sem
keyrir inn í Skerjafjörð en hún hefur staðið við Einars-
nes 36 um áratuga skeið. Þar hefur lengi verið búðar-
rekstur og hafa kaupfélagsstjórarnir iðulega búið á
efri hæðinni. Þau Stefán Halldórsson og Hjördís
Andrésdóttir hafa rekið verslunina síðastliðin sjö ár
en ákváðu nýlega að hætta búðarrekstrinum og nota
húsnæðið undir kryddframleiðslu. Krydd Stefáns,
Bezt á lambið, Bezt á fiskinn, Bezt á kjúklinginn og
Bezt á kalkúninn, hafa náð miklum vinsældum og má
finna í öllum helstu matvöruverslunum landsins.
Stefán byrjaði að fikta við að setja saman krydd-
jurtir til að nota á lambakjöt fyrir um það bil tíu
árum. Hann geymdi kryddið í stórum dalli og spurð-
ist ágæti þess út. Stefán gaf kryddið til vina og vanda-
manna og hafði brátt ekki undan. „Það var svo góð-
vinur minn Sigurður Steinþórsson hjá Gulli og silfri
sem hvatti mig til að hætta þessari vitleysu og fara
að selja kryddið. Ég tók hann nú ekki beint á orðinu
og spurði hvort hann hefði ekki komið í búð nýlega og
séð kryddrekkana, sem venjulega eru tíu metra
langir og tveggja metra breiðir,“ segir Stefán og
hlær. Hann segist þó hafa látið til leiðast og þá var
ekki aftur snúið. Bezt á lambið kom fyrst á markað
og í því má meðal annars finna steinselju, basilíku,
myntu, rósmarín, majoram, oreganó, sítrónupipar og
papriku og er blandan án allra aukaefna. Í kjölfarið
fór Stefán að þróa fleiri blöndur. „Ég prófaði mig
áfram með hjálp góðra aðila en hef ekki látið krydd á
markað fyrr en ég er búinn að láta að minnsta kosti
hundrað manns prófa það,“ útskýrir hann. Kryddin
eru hentug því ekki þarf að krydda hráefnið með
neinu öðru, nema ef til vill salti eftir smekk.
Stefán segir að vissulega sé eftirsjá í búðinni en
mörg spennandi tækifæri séu fram undan og er hann
þessa dagana að innrétta húsnæðið fyrir framleiðsl-
una. Hann ætlar að setja fullan kraft í kryddin,
hugsar stórt og stefnir jafnvel á erlendan markað.
Skiptu úr búðarrekstri
í kryddframleiðslu