Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 60
BLS. 14 | sirkus | 16. NÓVEMBER 2007
■ 5 leiðir til að lifa
helgina af H rafnhildur er á vissum lokapunkti í lífi sínu. Hún skuldar engum
neitt og er með hreint borð fyrir
framan sig,“ segir Sigríður Klingen-
berg um fegurðardrottninguna Hrafn-
hildi Hafsteinsdóttur. „Hrafnhildur er
að raða upp taflmönnum sínum til að
athuga hvaða stöðu hún ætlar að
leika. Hún er náttúrulega drottning
sem lætur engan snúa á sig til lengdar.
Hrafnhildur á eftir að koma fram á
sjónarsviði með hraði, fyrr en alþjóð
heldur, og taka hlutina með bravúr.
Dálítillar spennu mun þó gæta, jafn-
vel í sambandinu, en Hrafnhildur veit
hvað hún er að gera. Eitthvað sem
hún er búin að óska sér lengi verður
að veruleika. Heimili hennar verður
líkt og höll en hún hefur smekk fyrir
hlutum með sál og hlutum með stíl.
Þar af leiðandi ef maður gengur inn á
heimili Hrafnhildar og Bubba þá lýtur
maður létt höfði. Hrafnhildur byrjar
nýjan þriggja ára kafla árið 2009 sem
verður spennandi og árangursríkur
en margt gæti verið að krauma undir
niðri í augnablikinu því desember
fram í apríl eru mánuðir sem virðast
eiga eftir að gefa henni miklar og
ómældar breytingar. Hrafnhildur er
fimma, eins og frú Klingenberg, og
þar af leiðandi á hún að nota orðið og
gæti komið vel út í sjónvarpi. Kannski
Þórhallur ætti bara að ráða hana í
sjónvarpið því hún Hrafnhildur hefur
bein í nefinu.“
DROTTNING
„Hún er náttúrulega drottning sem lætur
engan snúa á sig til lengdar,“ segir
Sigríður Klingenberg um Hrafnhildi
Hafsteinsdóttur, fyrrverandi fegurðar-
drottningu og kærustu Bubba Morthens.
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
Rétt svör: 1. Bjartmar Guðlaugsson. 2. Lay Low. 3. Stefán
Hjörleifsson. 4. Ball á Bessastöðum. 5. Gunnlaug Egilsson. 6.
Knut Ödegard. 7. Roma. 8. Garðabær. 9. Ég skemmti mér um
jólin. 10. Toshiki Toma.
■ Ásgrímur
1. Veit ekki.
2. Lay Low.
3. Stefán Hjörleifsson.
4. Veit ekki.
5. Gunnlaugur Egilsson.
6. Ekki hugmynd
Hannes Heimir bar sigur af hólmi og jafnar þar með met Helga Seljan. Hannes hlaut sex stig af tíu
mögulegum á móti fjórum stigum Ásgríms. Ásgrímur skorar á Friðrik Erlingsson rithöfund til að binda
enda á sigurgöngu Hannesar.
1. Hvaða ástsæli söngvari var fótbrotinn í
27 ár án þess að fá meina sinna bót?
2. Hver semur tónlistina fyrir verkið Ökutím-
ar, sem er sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar?
3. Hver er framkvæmdastjóri tónlistarvefs-
ins Tónlist.is?
4. Hvað heitir nýútkomin barnabók rithöf-
undarins Gerðar Kristnýjar?
5. Eftir hvaða Íslending er dansverkið
„Degenerator“ sem frumsýnt var í Konung-
lega leikhúsinu í Stokkhólmi í síðustu viku?
6. Hver hlaut alþjóðlegu Jan Smrek ljóðlist-
arverðlaunin nú á dögunum?
7. Með hvaða ítalska liði leikur körfuknatt-
leikskappinn Jón Arnór Stefánsson?
8. Hvaða bæjarfélag hlaut leiðtogaverðlaun
Dale Carnegie nýverið?
9.Hvað heitir platan sem tvíeykið Guðrún
Gunnars og Friðrik Ómar gefa út fyrir jólin?
10. Hvað heitir prestur innflytjenda á
Íslandi?
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. TRYMBILLINN HANNES HEIMIR VIRÐIST ALGER-
LEGA ÓSIGRANDI. HANNES HEFUR ÞEGAR UNNIÐ SJÖ STERKA MÓTHERJA OG NÚ RÆÐST
HVORT HANN NÆR METI HELGA SELJAN, EN HELGI VANN ALLS ÁTTA MÓTHERJA. HÉR REYNIR
HANNES VIÐ ÁSGRÍM SVERRISSON DAGSKRÁRGERÐARMANN OG KVIKMYNDASPEKÚLANT.
6 RÉTT SVÖR 4 RÉTT SVÖR■ Hannes Heimir
1. Bjartmar Guðlaugsson.
2. Lay Low.
3. Stefán Hjörleifsson.
4. Hef ekki hugmynd.
5. Ég giska á
Ernu Ómarsdóttur.
6. Veit ekki.
7. Napolí
8. Garðabær.
9. Ég skemmti mér um jólin.
10. Toshiki Toma.
7. Nú stend ég á gati.
8. Ég giska á
Hafnarfjörð.
9. Ég er í svaka stuði.
10. Toshiki Toma.
Kæmi vel út í sjónvarpi
Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus
www.klingenberg.is
Þegar piparkökur bakast…
Dustaðu rykið af piparkökumótunum og
hentu í deig, það er ekkert skemmtilegra
á þessum árstíma en að dunda sér við
að búa til piparkökukalla áður en allt
stressið byrjar. Þeir sem ekki finna
kökukeflið geta keypt fínustu piparkökur
í næstu matvöruverslun og látð sér
nægja að skreyta þær af hjartans lyst.
Sundferð
Slakaðu á eftir vinnuvikuna og skelltu þér
í sund, það er fátt jafn afslappandi en að
láta líða úr sér og skilja þreytuna eftir í
heita pottinum.
Morgunmatur í rúmið
Njóttu þess að geta sofið út, dekraðu við
þig og borðaðu morgunmatinn í rúminu.
Það þarf enginn að leigja sér hótelher-
bergi til að lifa eins og blómi í eggi.
Stanslaust stuð
Það veit enginn hvar hann dansar næstu
jól, en í þessum ómótstæðilegu skóm er
víst að gamanið er ekki langt undan.
Útgáfutónleikar Páls
Óskars
Farðu á útgáfutónleik-
ana á Nasa og
skvettu ærlega úr
klaufunum við
dúndrandi
danstónlist. Á
tónleikunum
ætlar hann að
spila lögin af nýjustu
plötunni sem rýkur út
úr verslunum þessa
dagana. Ekki skrítið þar sem þetta er
engin venjuleg stuðplata.
ÞRÍR ÆTTLIÐIR Bryndís Guðmundsdóttir er hér ásamt móður sinni, Hervöru Guðjónsdóttur og dóttur sinni Védísi
Hervöru Árnadóttur.
B ryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur og bæjarstjórafrú í Reykjanesbæ, er nýbúin að
gefa út bókina, Einstök mamma, sem fjallar um
Ásdísi og Óla sem eiga mömmu sem er heyrnarlaus.
Bryndís miðlar af eigin reynslu í bókinni en sjálf er
hún alin upp hjá heyrnarlausri móður. „Mér fannst
vera þörf fyrir bók af þessu tagi og langaði til að
skrifa niður þætti úr mínu lífi sem ég upplifði sem
barn. Ég var búin að hugsa lengi um þetta efni og
upplifði það sterkt að kannski hefði ég eitthvað að
segja,“ segir Bryndís. Hún segir að skrifin hafi
runnið vel en það hafi kannski verið vegna þess
hvað efnið var nálægt. „Það sem var kannski
erfiðast var að lesa bókina fyrir mömmu og ég verð
að viðurkenna að ég var með svolítið í maganum
yfir því hvað hún segði.“ Hervör Guðjónsdóttir
móðir Bryndísar brást hins vegar vel við. „Mamma
er ótrúlega góð fyrirmynd og hún hefur alltaf sýnt
það í verki að hún gefst ekki upp og er enginn
eftirbátur heyrandi mæðra.“ Þegar Bryndís er spurð
að því hvort það hafi ekki verið erfitt að alast upp
hjá heyrnarlausri móður segir hún svo ekki vera.
„Þetta var öðruvísi reynsla en að sama skapi jákvæð
og lærdómsrík. Ég á heyrandi pabba og hann var
mjög sterkur inni á heimilinu. Auðvitað komu upp
erfið atvik en ég held að allir upplifi það sem alast
upp við óhefðbundið fjölskyldumunstur. Mín
skilaboð eru þau að þeir sem eru aldir upp við
öðruvísi fjölskylduaðstæður eigi að gera það að
jákvæðri og uppbyggilegri reynslu,“ segir Bryndís.
Erfi ðast að lesa bókina fyrir mömmu
BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR SKRIFAÐI BÓK UM EIGIN UPPLIFANIR